Hermes - 01.05.1969, Blaðsíða 24
Tvímenningskeppni N.S.S. 1969
Nýlega efndi N.S.S. til tvímenningskeppni í bridge
14 pör tóku þátt í keppninni og bendir sá þátt-
takendafjöldi til þess að grundvöllur sé fyrir end-
urreisn bridge-klúbbs á vegum Nemendasam-
bandsins.
Friðrik Ágúst Helgason:
brldge
þáttur
Sigurvogarar í tvímenningskeppni NSS í bridge, þeir Friðrik Ág,
Helgason til vinstri og Elías R. Helgason með verðlaunabikar, sen-
þeir hlutu að launum. (Ljósm. Guðmundur Bogasoni
Sigurvegarar í þessari keppni urðu þeir Elís R.
Helgason og Friðrik Á. Helgason, hlutu 622 stig,
sem verður að teljast yfirburðasigur, þar sem
næstu pör hlutu 512 stig. Röð 5 efstu parana þessi:
1. Elís — Friðrik 622 stig
2.-3. Snæþór — Ólafur 512 stig
2.-3. Eiríkur — Eiríkur 512 stig
4. Pétur — Grímur 510 stig
5. Þorsteinn — Jörgen 500 stig
Eg hefi verið beðinn um að gefa skýringar á vel-
gengni okkar Elísar í þessari keppni, ef vera mætti
öðrum til árangursauka. Ég mun að sjálfsögðu
verða við þeirri ósk, enda þótt mér sé engan veg-
inn ljúft að opinbera hernaðarleyndarmálið.
I upphafi keppninnar var hamingjudísin okkur
mjög hliðholl og fengum við þá góða ,,toppa“
(bridgemál). Þessi heppni hafði tvíþætt áhrif. —
Stór hluti keppenda áleit að þarna væru á ferð svo
góðir spilarar, að sigur gegn þeim væri óhugsandi
—• afleiðing þess þankagangs var sú, að þeir spil-
uðu undir styrkleika. Afgangur keppenda, sem
vissu betur um styrkleika okkar sögðu að mínu
viti of frekjulega á spilinn þ. e. þeir fóru að segja
óeðlilega hraðar sagnir og lega spilana var þeim
sjaldan hagstæð.
Hræsnislaust verð ég því að viðurkenna að sig-
urinn vannst því með mjög lítilli fyrirhöfn, sem
leiðir hugann að því sem sagt hefur verið, að það
gefi 60% árangur að segja eingöngu pass.
Ég vil svo að endingu þakka stjórn N. S. S. fyrir
að hafa efnt til þessarar keppni og óska þess um
leið að hún verði endurtekin að ári liðnu. Undir þá
ósk reikna ég með að hin 13 pör keppninnar taki,
enda hyggja margir á hefndir.
P. S. Mér að skaðlausu þarf hinsvegar ekki að
efna framar til Framsóknarvistar.