Hermes - 01.05.1969, Blaðsíða 16
pósturinn
Kristrún Magnúsdóftir spjallar vi5
Steinþór Þorsteinsson, kaupfélagsstjóra
Steinþór Þorsteinsson — kaupfélagsstjóri hjá Kf.
Hvammsfjarðar í Búðardal er fæddur á Skaga-
strönd í Austur-Húnavatnssýslu 25. maí 1937. —
Hann var einn vetur í Reykholtsskóla og tók það-
an landspróf. Síðan lá leiðin í Kennaraskólann, og
ætlaði Steinþór að taka að sér að kenna ungum
Islendingum undirstöðuatriði menntunar og dvaldi
tvo vetur í skólanum í þeim tilgangi. Þá snerist
honum hugur, og fór hann í Samvinnuskólann,
hvaðan hann útskrifaðist vorið 1958. Það sumar
vann Steinþór í Innflutningsdeild S. I. S., og velti
fyrir sér möguleikum á því að kynna sér starf-
semi erlendra samvinnufyrirtækja.
En margt fer öðruvísi en ætlað er, og í desem-
ber sama ár tók hann við störfum hjá Kf. Hvamms
fjarðar, þá yngsti kaupfélagsstjóri á landinu . . . .
Við lítum inn til Steinþórs á skrifstofu hans og
spyrjum örfárra spurninga:
— Hvemig fannst þér að taka við svo umfangs-
miklu starfi strax að loknu námi?
— Eg myndi segja, að það væri talsverð áhætta
fyrir svo unga menn að leggja út í þannig fyrir-
tæki, og það leið nokkur tími þar til ég uppgötv-
aði hvað ég var kominn út í. Að vísu má kannski
segja, að það gildi aðrar reglur um fyrirtæki úti
á landsbyggðinni en í þéttbýlinu. Viðskiptavinir
kaupfélaganna ætlast til þess, að kaupfélagið þeirra
veiti þeim meiri aðstoð en aðeins að selja þeim
vörur.
— En þetta hefur samt gengið vel og þér tek-
izt að leysa vandann.
— Ég var heppinn að því leyti, að ég kom í gott
hérað og tók við vel stæðu kaupfélagi.
— Hvað viltu segja okkur um framtíðina?
— Hún er óráðin. Þegar ég kom hingað hafði
ég hugsað mér að vera hér í 5 ár. Nú eru þau orðin
10 og það er alltof langur tími. Eg álít nauðsyn-
legt að skipta um starf, bæði vegna manns sjálfs
og fyrirtækisins. Það þarf nýtt blóð og nýja menn
og betra fyrir þá eldri að kynnast nýjum störfum
áður en þeir verða of rótgrónir . .. .
Að lokum viljum vér geta þess, að er Steinþór
hafði verið nokkurn tíma í Dölum vestur, kvænt-
ist hann Gunni Axelsdóttur frá Akranesi, og eiga
þau tvö börn, Þorstein 5 ára og Lovísu 3 ára.