Hermes - 01.05.1969, Side 22
röst með því að leggja fyrir hann nokkrar spurn-
ingar.
— Hvernig hefur þér líkað vistin hér að Bif-
röst?
„Fósturlandsins Freyja" — Fró fegurðarsamkeppni karla
1968—1969.
Frófarandi spókonungur drúpir höfði, eftir að hann hefur krýnt
hin nýju konungshjón og tilkynnt að hann hyggist ganga í klaust-
ur. Til vinstri er biskup, en hœgra megin mó sjó stallara konungs.
Hin nýkrýndu konungshjón í hósœti.
— Dável, ég hef braggazt mikið á þessum árum
ef ég má nota það orð. Mér finnst ekki hægt að
hugsa sér betri stað en þennan fyrir skóla, og
kemur þar margt til. Hér er mikil náttúrufegurð,
og hér gefst gott tækifæri til tómstundastarfa.
— Hefurðu vinnu að námi loknu?
— Nei, því er ekki að heilsa. Ætli ég verði ekki
að fara á „styrkinn“, ef atvinnuhorfur breytast
ekki. Hins vegar hef ég fullan hug á að vinna fyrir
samvinnuhreyf inguna.
— Hvað viltu segja um Grábrókarátökin, sem
fræg eru orðin?
— Það er fátt eitt um þau að segja. Þær réðust
þarna á mig varnarlausan, en tókst ekki að fram-
kvæma ætlunarverk sitt. Kom það mest til af því
skipulagsleysi sem alltaf einkennir störf kvenna.
—• Hver heldurðu að hafi verið ætlun þeirra
með þessum aðgerðum?
—• Ætlunin var fyrst og fremst sú, að „fórna“,
svo ég noti þau orð sem þær sjálfar notuðu á
fundinum, þegar þetta var ákveðið. Ég veit hvað
þeim fór þar í milli, og var ekki að heyra, að þær
hefðu neinar hugmyndir um það hvað ,,fórn“ í
raun og veru er.
— Eitthvað að lokum.
— Ég vona að sem flest bekkjasystkina minna
gerist félagar í Nemendasambandinu. Þessi sam-
tök eiga og verða að starfa með blóma, en til þess
að svo megi verða, verða allir að leggja eitthvað
af mörkum.
Ég tek undir þau orð Þorleifs, og sendi að end-
ingu beztu kveðjur okkar Bifrestinga til lesenda
Hermesar.
Bifröst, 21. apríl
Atli Freyr Guðmundsson.