Boðberi K.Þ. - 01.12.1997, Page 6
því að fjölbreytt starfsemi félags eins og
Kaupfélags Þingeyinga verði mikilvægur
hlekkur í þeirri byggðaþróun sem við munum
vilja hafa í héraðinu. Hins vegar þarf
kaupfélagið að vera meðvitað um mikilvægi
sittogábyrgðþessverðuralltafmikil. Félagið
þarf að taka þátt í að rækta trú á byggðimar
og jákvæð þróun þarf að vaxa og dafna
innra með því fólki sem býr í héraðinu.”
í þessu samhengi er því mjög mikilvægt að
umræða sé virk um hlutverk Kaupfélags
Þingeyinga og hvert skuli stefnt í rekstri
félagsins, og móta þarf markvissa stefnu til
næstu ára.
Stefnumótun Kaupfélag Þingeyinga.
Á aðalíundi félagsins síðastliðinn vor, var í
framhaldi af vinnu framtíðarnefndar,
samþykkt að hefja gagngera
stefnumótunarvinnu innan félagsins. í
samræmi við samþykkt aðalfundar og
sanþykkta stjómar félagsins hófst sú vinna
á haustmánuðum. Nú í desember hefúr verið
gert nokkur hlé, en hafist verður handa aftur
af krafti í janúar.
Stjórn ákvað að leita til
Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri
um að leiða þessa vinnu með stjómendum
félagsins og hefur Valtýr Þór Hreiðarsson
sinnt því hlutverki, en einnig höfúrn við notið
aðstoðar fleiri starfsmanna Háskólans.
Skipulag vinnunnar hefúr verið hópvinna
stjórnenda og almennra starfsmanna
félagsins. Ætlunin er einnig þegar lengra er
komið að efna til almennari umræðu og virkja
þannig og fá ffam viðhorf sem flestra.
Þessi vinna sem kölluð er stelhumótun er í
raun verkfæri eða stjómtæki sem innleiða
þarf til reglulegrar notkunar í starfsemi
félagsins. Stefnumótun er í raun það að
spyija skipulega réttu spuminganna og lýsa
má eðli ferilsins á einfaldan hátt með þremur
spumingum:
1. Hver er staða félagsins ídag?
2. Hvert vill félagið komast og hvenær?
3. Hvemig kemst félagið þangað ?
Stefnumótunarvinna í forgangi -
deildarfundum frestað.
Ákveðið var að stefnumótunarvinnan hefði
forgang umffam annað undanfamar vikur og
því var ákveðið að efna ekki til deildarfúnda
félagsdeilda nú á haustmánuðum, eins og
gert hefur verið síðustu ár. Þess í stað er
ætlunin að byija deildarfúndi þegar náðst
hefúr áfangi í stefhumótunarvinnunni, þannig
að hægt sé að kynna og fjalla um helstu
niðurstöður í öllum félgasdeildum á svipuðum
tíma.
Líður aðjólum.
Það líður óðum að jólum og undirbúningur
jólanna er kominn í fullan gang. Svo er
einnig í rekstri félagsins, bæði í verslun og
ffamleiðslu. í ljósi meginefhis þessa pistils,
skal það annarsvegar dregið fram að það er
byggðamál hvemig félagið stendur sig í að
bjóða samkeppnisfært verð í verslunum
félagsins nú fyrir jól sem aðra tíma ársins og
hinsvegar er það ekki síður mikilvægt mál
hvemig fójk hagar sinni verlun. Hvort fólk
verslar í heimabyggð eða ekki. Líkur þar
umræðu um byggðamál að sinni.
Með jóla- og nýárskveðjum !
Þorgeir B. Hlöðversson, Björgum