Morgunblaðið - 27.12.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
The last days of the Arctic, hin óskaplega fal-
lega mynd Magnúsar Viðars Sigurðssonar um
Ragnar Axelsson (RAX), ljósmyndara á
Morgunblaðinu, var sýnd á RÚV á jóladags-
kvöld. Tveimur dögum fyrr, á Þorláksmessu,
hafði hún verið sýnd á sjónvarpsstöðinni Arte
sem nýtur mikilla vinsælda í Þýskalandi,
Frakklandi og Sviss og hefur tölvubréfunum
rignt yfir Ragnar frá Evrópulöndum síðan.
„Það er nautn að horfa á norðrið í gegnum
linsuna þína, aðdáun mín á þér er einlæg,“
segir aðdáandi hans frá Þýskalandi.
Ragnar segir viðbrögðin snerta sig og
sérstaklega hin góðu viðbrögð sem urðu við
sýningunni hér á Íslandi. „Ég er hrærður yfir
þessu og ef maður gæti sungið og dansað eins
og Mugison myndi ég halda tónleika fyrir ís-
lensku þjóðina til að þakka fyrir mig,“ segir
Ragnar. „Reyndar horfði ég ekki á hana sjálf-
Hugsanlega hreyfir þetta líka við bókinni en
annars er ég ekkert mikið inni í þessu. Mynd-
in ferðast víða, sýningin og bókin, en þetta er
meira í höndunum á öðrum. Ég er alveg ró-
legur yfir þessu. Ég er bara eins og Andrés
önd úti í horni,“ segir Ragnar og hlær.
Þegar Morgunblaðið heyrir í Magnúsi
Viðari Sigurðssyni, leikstjóra myndarinnar,
segist hann vera afskaplega ánægður. „Þetta
er stór og virt sjónvarpsstöð, Arte, og þeir
hafa sýnt myndina á besta tíma,“ segir Magn-
ús Viðar. „Maður hlakkar til að heyra áhorf-
endatölur sem verða væntanlega ljósar á
næstu dögum.
Við gerð myndarinnar vorum við í sam-
starfi við Arte, BBC og bandaríska fyrirtækið
ITVS – PBS. Nú er búið að sýna hana í Bret-
landi og Þýskalandi og á næsta ári verður hún
sýnd í Bandaríkjunum. Það er mikill sigur
fyrir okkur að hún verður sýnd þar. Síðan
verður hún sýnd í Skandinavíu, – Finnlandi,
Noregi og Svíþjóð – og í Hollandi.“
Aðspurður hvaða áhrif þessi mikla dreif-
ing á heimildarmyndinni muni hafa fyrir
hann segir hann að það sé búið að biðja mikið
um ljósmyndasýninguna sem hann er með
um sama efni. „Sú sýning verður opnuð í
London í febrúar og fer síðan til Mílanó.
ur, mér finnst svo ömurlegt að hlusta á sjálf-
an mig. En það er gott að heyra viðbrögðin.“
Myndin fékk afbragðsdóma hér á Íslandi
þegar hún var sýnd í bíóhúsum en hún fékk
meðal annars fjórar stjörnur í dómi hér í
Morgunblaðinu.
Milljónir Evrópubúa sáu RAX
Sjónvarpsstöðin Arte sýndi myndina um RAX og norðrið á Þorláksmessu Íslendingar hafa
tekið myndinni mjög vel og hún ferðast núna út um allan heim Verður sýnd í Bandaríkjunum
Heillandi Norðrið er efniviður RAX í ljósmyndum hans en Saga film gerði góða heimild-
armynd um hann sem verður meðal annars sýnd í Bandaríkjunum á næsta ári.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það er búin að vera ágætis jóla-
verslun,“ segir Sigurjón Örn Þórs-
son, framkvæmdastjóri Kringlunn-
ar, en kaupmenn eru nú margir
hverjir byrjaðir að huga að útsöl-
um. Fyrstu útsölur Kringlunnar
hefjast mánudaginn 2. janúar og í
tilefni þess verða verslanir opnar
lengur en ella eða til klukkan 21.
„Kaupmönnum er heimilt að
hafa útsölur frá 2. janúar til 5.
febrúar. Þeir geta svo sem haldið
útsölur hvenær sem er innan þess
tímaramma. Byrjað á sama tíma
eða seinna og endað fyrr eða á
sama tíma og útsölum lýkur,“ seg-
ir Sigurjón Örn og bætir við að
vetrarútsölur Kringlunnar hafi
hingað til alltaf verið mjög vel
sóttar og vonast hann til þess að
slíkt verði jafnframt raunin í ár.
„Það er ekki að búast við neinu
öðru núna, miðað við að jólaversl-
unin var með svipuðu móti og í
fyrra.“
Guðrún Margrét Örnólfsdóttir
er markaðsstjóri Smáralindar.
„Þetta er alveg mánuðurinn og við
endum alltaf á götumarkaði í lok
mánaðar,“ segir Guðrún Margrét
aðspurð hvernig útsölum Smára-
lindar verður háttað í ár en þær
hefjast einnig 2. janúar líkt og í
Kringlunni.
Guðrún Margrét segir jólasöl-
una í ár hafa farið mjög vel fram
og kaupmenn Smáralindar séu al-
mennt sáttir við afraksturinn.
„Salan fór aðeins fyrr af stað en
undanfarin ár, þetta var svolítið
afslappaðra. En það var mikil um-
ferð þessa síðustu daga, bara eins
og gengur og gerist þegar líða fer
að jólum,“ segir Guðrún Margrét
og bætir við að mjög margt fólk
hafi sótt Smáralindina bæði í nóv-
ember- og desembermánuði. „Það
var mjög mikið að gera og hélst út
allt tímabilið.“
Kaupmenn undirbúa komandi útsölur
Morgunblaðið/Kristinn
Afsláttur Nú þremur dögum eftir aðfangadag líður senn að útsölum.
Óðum styttist í útsölur verslana og útlit fyrir að þær verði með hefðbundnu sniði líkt og undanfarin ár
Talsmenn stærstu verslunarmiðstöðvanna tveggja segja kaupmenn nokkuð sátta við jólasöluna
Ártúnsbrekkan er vinsæl hjá fjölskyldufólki í
jafnmiklum snjó og verið hefur á höfuðborg-
arsvæðinu undanfarið. Þótt það komi fyrir að
menn fari sér að voða við skíða- og snjó-
brettaiðkun heldur það ekki aftur af ungum of-
urhugum og þessi lét sig ekki muna um glæfra-
legt stökk sem fær kalt vatn til að renna á milli
skinns og hörunds á manni. En hann lenti án
þess að meiða sig alvarlega, sem er fyrir mestu.
Morgunblaðið/Golli
Skíða- og snjóbrettahetjur í Ártúnsbrekku
Jólasnjórinn kom sér vel fyrir skíðaáhugafólk
Tveir voru
fluttir á slysa-
deild Landspít-
alans eftir
árekstur á
Vesturlands-
vegi í gær-
kvöldi. Líðan
fólksins var eft-
ir atvikum seint
í gærkvöldi, það er ekki í lífs-
hættu en þarf einhverja frekari
meðferð, að sögn læknis á slysa-
deild.
Áreksturinn var afar harður
og sex bílar lentu að einhverju
leyti í honum. Tveir bílar rákust
fyrst saman og aðvífandi bílar
ýmist lentu á þeim eða sveigðu
frá og höfnuðu utan vegar.
Vesturlandsvegi var lokað við
Álftanes í báðar áttir og mynd-
uðust langar bílaraðir. Að sögn
ökumanns þar var hann fastur í
nærri klukkutíma í röðinni, sem
var orðin um kílómetri að lengd.
Tveir flutt-
ir á slysa-
deild LSH
Sex bíla árekstur
varð í gærkvöldi
„Ég er ekki með neinar beinar
tölur um sölu en það sem við
sjáum er umferð fólks um hús-
ið, sem yfirleitt helst í hendur
við sölu hjá kaupmönnum,“ seg-
ir Guðrún Margrét Örnólfs-
dóttir, markaðsstjóri Smára-
lindar, aðspurð hvort greina
megi aukningu í sölu fyrir jólin í
ár samanborið við jólin í fyrra.
Að sögn hennar lagði mikill
fjöldi fólks leið sína í Smáralind
fyrir þessi jól, líkt og undanfarin
ár.
Fjöldi fólks
JÓLASALAN