Morgunblaðið - 27.12.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011
Seðlabanki evrunnar ákvað óvæntfyrir jól að lána bönkum óhemju
fé á útsöluprís, svo þeir gætu lánað
ríkissjóðum evrulanda í vandræðum
þá, en það er
bankanum sjálf-
um bannað. Ekki
er þó ólíklegt að
bankarnir nýti
þetta „fundna fé“
ekki eftir upp-
skriftinni.
En að auki er þessi gjörð, eins ogVef-þjóðviljinn bendir á, „al-
veg dæmalaus hringavitleysa því
hún hefur aldrei farið fram með svo
samstilltu átaki í fjölda ríkja sam-
tímis.
Hins vegar er þetta gamalt hús-ráð ríkisstjórna, allt frá því
þær tóku sér einkaleyfi á útgáfu
gjaldmiðla. Prentvélarnar eru sett-
ar í gang og valdir aðilar, yfirleitt
fjármálafyrirtæki, fá volg seðla-
búntin til að „koma í veg fyrir sam-
drátt“ og deila til valinna aðila.
Smám saman leiðir aukið framboð
auðvitað til lægra virðis og seðlarnir
falla í verði með því sem nefnt er
verðbólga.
Og hér er komið að brilljansinumí þessu öllu saman fyrir stjórn-
málamennina, ekki síst þá stjórn-
lyndu. Frá bæjardyrum hins al-
menna neytanda séð eru það
vörurnar sem hækka í verði hjá
gráðuga kaupmanninum en ekki
ónýta mynt stjórnvaldanna sem fell-
ur í verði. Er ekki ASÍ með verð-
lagseftirlitið í sölubúðum frekar en
seðlabankanum?
Á sama hátt álykta menn að„græðgisvæðing“ á markaði
leiði af sér verðbólur og kreppur
eftir að ríkisseðlabankar hafa rugl-
að alla fjárfestingu á markaði með
því að dæla út fjármagni á alltof lág-
um vöxtum.“
Húsráðið hringa-
vitleysa
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.12., kl. 18.00
Reykjavík -2 hagl
Bolungarvík -5 snjókoma
Akureyri -5 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -4 snjókoma
Vestmannaeyjar -1 léttskýjað
Nuuk -3 upplýsingar bárust ek
Þórshöfn 4 skýjað
Ósló 5 skýjað
Kaupmannahöfn 8 alskýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 3 heiðskírt
Lúxemborg 7 þoka
Brussel 10 skýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 12 alskýjað
London 12 alskýjað
París 7 heiðskírt
Amsterdam 12 skýjað
Hamborg 11 skýjað
Berlín 10 skýjað
Vín 7 alskýjað
Moskva 2 slydda
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 10 heiðskírt
Aþena 7 léttskýjað
Winnipeg 0 skýjað
Montreal -5 léttskýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 0 léttskýjað
Orlando 20 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:35
ÍSAFJÖRÐUR 12:09 14:59
SIGLUFJÖRÐUR 11:54 14:40
DJÚPIVOGUR 11:02 14:55
Ágúst Einarsson, við-
skiptafræðingur og
fyrrv. forstjóri, lést á
Landspítalanum við
Hringbraut að morgni
aðfangadags, 63 ára að
aldri. Ágúst fæddist í
Reykjavík, sonur Einars
Gunnars Guðmunds-
sonar aðalgjaldkera og
k.h., Margrétar Sigríðar
Ágústsdóttur.
Ágúst lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1969 og viðskiptafræði-
prófi frá Háskóla Íslands 1973. Hann
var fulltrúi framkvæmdastjóra LÍÚ
um árabil, var forstjóri Lýsis hf í
Reykjavík og jafnframt fram-
kvæmdastjóri dótturfélaga þess,
Lýsis og Mjöls hf og Hydrols hf, og
síðar forstjóri Stálsmiðjunnar hf í
Reykjavík.
Ágúst sat í fjölda nefnda um hin
ýmsu málefni sjávarútvegsins sem
fulltrúi LÍÚ og kom m.a. að samn-
ingaviðræðum vegna fiskveiðideil-
unnar 1974. Hann var um skeið vara-
formaður Félags viðskiptafræðinga,
sat í verðlagsráði sjávarútvegsins í
rúman áratug, í stjórn Aflatrygging-
arsjóðs sjávarútvegs-
ins og stjórn Sam-
ábyrgðar Íslands á
fiskiskipum. Hann sat í
sambandsstjórn Vinnu-
veitendasambands Ís-
lands, Félags íslenskra
iðnrekenda, Samtaka
iðnaðarins, í stjórn
Verslunarráðs Íslands
og í stjórn Lands-
nefndar Alþjóða versl-
unarráðsins.
Ágúst var stjórn-
arformaður Björgunar
hf um árabil, stjórn-
arformaður Faxamjöls hf, Tækniþró-
unar hf og Stálverktaks hf og sat í
stjórnum ýmissa annarra fyrirtækja,
s.s. Olís hf, Lifrarbræðslu ÁB ehf í
Grindavík, Tólf tóna, Nordic Photos
og Eskimo Model.
Eftirlifandi eiginkona Ágústs er
Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir,
sagnfræðingur og framhaldsskóla-
kennari.
Synir Ágústs eru Jóhannes
Ágústsson, kaupmaður í Tólf tónum,
og Hreinn Ágústsson, kerfisfræð-
ingur hjá Nordic Photos, en fóst-
urdóttir Ágústs er Andrea Brabin,
framkvæmdastjóri Eskimo Model.
Andlát
Ágúst Einarsson
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
Heimskautsgerðið á Raufarhöfn
hefur vakið nokkra athygli en hug-
myndasmiðurinn, Erlingur Thor-
oddsen, segir það laða að sér
hundruð ferðamanna í hverri viku
yfir sumartímann. „Hugmyndin að
Heimskautsgerðinu er að búa til
ferðamannasegul fyrir Norðurþing.
Einblínt hefur verið á Ásbyrgi og
hvalasafnið á Húsavík en Mel-
rakkasléttan hefur verið vanrækt
og ég vil vinna það upp og koma
sléttunni á kortið,“ segir Erlingur.
„Mig langaði að gera eitthvað til að
vekja athygli á þessu svæði og það
varð ofan á að leika sér með ljós og
skugga og reyna að nota miðnæt-
ursólina sem aðdráttarafl.“
Gerðið er hinsvegar ekki tilbúið
og liggur vinna við það niðri þar
sem fé skortir. Að sögn Erlings
vantar 80-100 milljónir til að klára
gerðið en þegar hafa verið lagðar
um 50 milljónir í það. „Þetta er í
raun ódýr framkvæmd miðað við
möguleikana sem gerðið gefur af
sér. Það á að skapa 15-20 manns at-
vinnu þegar fram í sækir, t.a.m. við
framleiðslu á minjagripum auk af-
leiddra starfa í veitingasölu, gist-
ingu o.fl.,“ segir hann.
Það var árið 1998 sem Erlingur
hóf að velta fyrir sér hvernig hægt
væri að bæta ferðaþjónustuna í
Norðurþingi. „Ég hugsaði sem svo
að ég vildi vekja athygli á miðnæt-
ursólinni, innramma hana einhvern
veginn, en Raufarhöfn liggur næst
heimskautsbaug allra þéttbýlis-
staða á landinu og því er dagurinn
hvað lengstur þar á sumrin og
stystur á veturna,“ segir Erlingur.
Hann fór í samstarf með Hauki
Halldórssyni listamanni og unnu
þeir að hönnun gerðisins í tæp sex
ár áður en afraksturinn var kynnt-
ur opinberlega.
Vildi innramma
miðnætursólina
Heimskautsgerðið á Raufarhöfn í frosti
Heimskautsgerði Eins og sjá má
verður gerðið afar tilkomumikið.
Heimskautsgerðið verður 50 metr-
ar að þvermáli, girt hlöðnum vegg,
með fjórum hliðum, sex til sjö
metra háum, sem opnast hvert á
móti sinni höfuðátt. Nú þegar er
búið að reisa þrjú hlið. Út frá hlið-
unum eru 17 sólport þar sem sólris
og sólsetur eru mörkuð. 68 steinar
mynda hring og táknar hver þeirra
einn dverg úr Snorra-Eddu og
Völuspá. Að auki verða ofan á hlið-
unum steinar sem tákna dvergana
Norðra, Suðra, Vestra og Austra. Í
miðju hringsins er 8-10 metra há
súla, sem hvílir á fjórum stöplum.
Þá verða þar hádegissteinn, pól-
stjörnusteinn, geislasteinn og sól-
úr. Grjótið er fengið úr námu sem
tilheyrir Raufarhafnarhreppi og er
rúman kílómetra frá gerðinu.
Hlið, sólport og steinar
GRJÓT FENGIÐ ÚR NÁMU Í GRENNDINNI
Ekki hefur verið mikið um hálku-
slys á höfuðborgarsvæðinu þótt
hálkan hafi verið mikil yfir hátíð-
arnar. Mikil lægð fór yfir rétt fyrir
hádegi á aðfangadag. „Þegar svona
lægðir fara yfir fylgir þeim hlýtt
loft,“ segir Teitur Arason veður-
fræðingur. „Á höfuðborgarsvæðinu
var á aðfangadagsmorgun suðaust-
anátt og rigning, það var í hlýja
loftinu með lægðinni og þá kom svo-
kallað svikalogn. Þegar lægðin var
farin yfir kom slydduél og bleytti
vel í götunum en síðan dróst inn
kaldara loft úr vestri sem myndaði
þessa miklu hálku sem var seinni-
partinn á aðfangadaginn.
Þetta er búin að vera útsynnings-
veðrátta síðan þá eins og er oft á
eftir lægðum. Það er mjög vara-
samt þegar það verður svona flug-
hált og snjóar síðan yfir það.“
Þegar rætt var við lækni á slysa-
og bráðamóttöku Landspítalans
sagði hann samt hafa verið lítið um
hálkuslys enda fólk minna á ferli á
götunum yfir hátíðarnar. Einnig
hefði lítið verið um ofbeldi.
Það sama var ekki upp á ten-
ingnum á lyfjadeild slysa- og bráða-
móttökunnar. Þar var mikið að gera
og heimsóttu hjarta- og lungnasjúk-
lingar móttökuna oft yfir hátíðarnar
og virðist vírus vera að ganga á höf-
uðborgarsvæðinu.
borkur@mbl.is
Þrátt fyrir mikla hálku
hefur lítið verið um slys