Morgunblaðið - 27.12.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011
STÓRÚTSALA
LAUGARDAGA 11 – 16
SHAGGY
SHAGGY 140x200 cm verð áður 35.000,–
verð nú 21.000,— stgr.
25-40%
Afsláttur
Bæjarlind 16, Sími 568 6999
Opið kl. 11-18 laugard. kl. 11-16
www.persia.is
FR
U
M
Lokað í dag
þriðjudaginn
27. desember
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Við viljum óska
viðskiptavinum
okkar
gleðilegra jóla
og þökkum
fyrir viðskiptin
á liðnum árum.
bærilegar klappir hafi mátt finna víða
en á flestum stöðum hafi verið byggt
yfir þær. „Þessar jökulsorfnu klappir
eru alveg tíu þúsund ára gamlar, frá
því að síðasti jökull hörfaði og rák-
irnar í þeim eru mjög skýrar. Tími
jarðfræðinnar er svo sýnilegur þarna
og þetta er því falleg tenging við tím-
ann.“
Ljóðrænt í einfaldleika sínum
Listamennirnir þrír sem valdir
voru til að þróa tillögur kynntu þær
fyrir valnefnd sem samanstóð af inn-
kaupanefndinni, þ.e. Margréti El-
ísabeti Ólafsdóttur, Brynhildi Þor-
geirsdóttur og Hafþóri Yngvasyni
safnstjóra, auk Steinunnar Þórhalls-
dóttur, formanni Íbúasamtaka 3.
hverfis og Hilmars Sigurðssonar, for-
manns hverfisráðs Hlíða.
Samkvæmt upplýsingum frá Haf-
þóri var valnefndin sammála um að
allar þrjár tillögurnar væru vandaðar
og að verkin myndu sóma sér vel í
Litluhlíð. Tillaga Sólveigar hefði ver-
ið valin vegna þess hversu vel hún
brygðist við náttúrulegu umhverfi
staðarins. „Með því að draga athygl-
ina að verksummerkjum um ísald-
arjökulinn sem lá yfir Reykjavík-
ursvæðinu fyrir um 10.000 árum
tengir verkið áhorfandann við um-
hverfi sitt og jarðsögulegan tíma
þess. Þetta er óvenjulegt umhverf-
isverk sem sýnir alúð og virðingu fyr-
ir náttúrunni. Það er ljóðrænt í ein-
faldleika sínum – engu er bætt við og
klöppunum er á engan hátt breytt –
en um leið er það ögrandi því það
tengist þeirri umhverfisumræðu sem
nú er í þjóðfélaginu,“ segir í nið-
urstöðu dómnefndar.
„Falleg tenging við tímann“
Listaverk Sólveigar Aðalsteinsdóttur valið fyrir Litluhlíð í stað Vatnsberans
Gróðurþekja sem hylur að hluta til jökulsorfnar klappir verður fjarlægð
Morgunblaðið/Golli
Á snjóbrettum Erfiðlega gengur að finna klappirnar eftir fannfergið að
undanförnu. Betur gengur að renna sér niður hlíðina á snjóbrettum.
SVIÐSLJÓS
Andri Karl
andri@mbl.is
Óvenjulegt umhverfislistaverk Sól-
veigar Aðalsteinsdóttur mun prýða
Litluhlíð í stað Vatnsberans sem
fluttur var í miðborg Reykjavíkur
fyrr á þessu ári. Hugmyndin er að
fjarlægja gróðurþekju sem hylur að
hluta til jökulsorfnar klappir efst á
hæðinni og leyfa þeim að njóta sín.
Stefnt er að því að ráðast í verkið
snemma vors þannig að svæðið hafi
jafnað sig fyrir næsta sumar.
„Þetta er merkileg hæð sem maður
fer eiginlega aldrei upp á, og ég hafði
aldrei komið þangað áður,“ segir Sól-
veig sem var einn átta listamanna
sem Innkaupanefnd Listasafns
Reykjavíkur valdi til viðtals í ágúst
síðastliðnum. Ekki var óskað eftir til-
lögum í viðtölunum en listamennirnir
kynntu fyrri verk sín og ræddu al-
mennt um hvernig þeir myndu bera
sig að við að gera verk fyrir staðinn.
Eftir viðtölin voru svo þrír listamenn
valdir til að þróa tillögur.
Tími jarðfræðinnar sýnilegur
„Þegar ég fór að skoða svæðið sá
ég að þar eru svo fallegar jökuls-
orfnar klappir. Og þegar ég fór að
rannsaka það nánar sá ég að efst á
kolli hæðarinnar eru stór og mynd-
arleg hvalbök, þ.e. stórar heilar
klappir, og tillaga mín felst í því að
moka ofan af háhæðinni,“ segir Sól-
veig en um er að ræða 20 x 15 metra
sporöskjulaga svæði.
Sólveig segir að þegar bergkort af
Reykjavík eru skoðuð sjáist að sam-
Ekki þarf að bæta aðgengi að lista-
verki Sólveigar en heitavatns-
stokkur sem liggur um svæðið er
alltaf heitur og snjólaus, og hentar
því vel að fara upp á hæðina yfir
vetrartímann.
Sólveig segir Litluhlíð álíka háa
og Öskjuhlíð en þar sé fjallasýnin
fegurri. „Þegar maður stendur
uppi á háhæðinni er svo falleg
fjallasýn og maður sér fjallahring
Reykjavíkur alveg órofinn. Ég held
jafnvel að þetta sé eini staðurinn í
Reykjavík þar sem maður sér
fjallahringinn
órofinn.“
Sólveig segist
hafa leitað að
öðrum slíkum
stað og hafi end-
að í turni Hall-
grímskirkju, en
þar þurfi að
ganga hringinn,
líkt og á útsýnispalli Perlunnar.
„En þarna getur maður bara snúið
sér á hæli og allur fjallahringurinn
fylgir.“
Fjallahringurinn sést órofinn
LITLAHLÍÐ ÁLÍKA HÁ ÖSKJUHLÍÐ
Sólveig
Aðalsteinsdóttir
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is