Morgunblaðið - 27.12.2011, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011
STÓRRÝMINGARSALA
VERSLUNIN HÆTTIR
DOMTI.IS SMÁRATORGI
STÓRRÝMINGARÚTSALA,
VERSLUNIN HÆTTIR
ALLT Á AÐ SELJAST
50-80% AFSLÁTTUR
OPNAR 27. DESEMBER KL. 10
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Garpar Það er frískandi að hlaupa í fallegu vetrarveðri þótt kalt sé í veðri.
Gamlárshlaup eru haldin víða um
land á gamlársdag. Eftirfarandi hlaup
er að finna á vefsíðunni hlaup.is en
það er um að gera að leita sér upplýs-
inga um hlaup í sínum heimabæ.
Á Húsavík hefst hlaup klukkan 11
og er í boði bæði 5 og 10 km hlaup
með tímatöku svo og 3 km hreyfingu
án tímatöku. Á Akureyri stendur
langhlauparadeild UFA fyrir gaml-
árshlaupi sem hefst klukkan 11 og er
hlaupinn 10 km hringur frá Bjargi. Þá
er vetrarhlaup á Egilsstöðum þennan
dag, gamlárshlaup Skagamanna,
gamlárshlaup Króksara og gaml-
árshlaup á Húsavík. Hér í borginni
eru það gamlárshlaup ÍR og gaml-
árshlaup skokkhóps Hauka. Nú er
bara að nota vikuna til að undirbúa
sig og hlaupa síðan af stað.
Endilega …
… hlaupið um allt land
Þríþrautardeild sundfélags Hafn-
arfjarðar kallast 3SH og er mjög virkt
félag í þríþrautinni. En vefsíðu þessa
er að finna á slóðinni 3sh.is. Hóp-
urinn sem æfir innan deildarinnar
leggur stund á sund, hjólreiðar og
hlaup. Deildin var stofnuð formlega
16. september 2010 en á vefsíðunni
segir meðal annars að stefnan hafi
verið sett á að hámarka árangur, lífs-
gæði og vellíðan félagsmanna. Þá
muni 3SH bjóða félagsmönnum
bestu mögulegu forsendur til að þróa
hæfileika sína í þríþraut.
Reglulegar kynningar eru haldnar
á deildinni og má fylgjast með dag-
setningum á slíku á vefsíðunni. Einn-
ig má þar skoða æfingatöflu deild-
arinnar og lesa sér til um þríþraut
almennt og ýmsar fréttir úr þeim
heimi. Athyglisverð síða fyrir þá sem
vilja kynna sér þríþraut og prófa að
taka þátt í henni.
Vefsíðan www.3sh.is
Járnkarl Hér er keppt í hálfum járnkarli í Hafnarfirði árið 2009.
Þríþrautardeild Hafnarfjarðar
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Morgunblaðið/RAX
Léttur á fæti Ingólfur reynir að hlaupa fjórum sinnum í viku en sættir sig stundum við tvö skipti.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég tók fyrst þátt í Gaml-árshlaupi ÍR fyrir 25 ár-um og hef hlaupið það áhverju ári síðan, utan
einu sinni, þegar ég mætti klukku-
tíma of seint af því tímanum hafði
verið breytt,“ segir Ingólfur Sveins-
son, geðlæknir og hlaupari.
„Þá var hlaupið frá Landakoti
og vestur á Seltjarnarnes. Þetta er
10 kílómetra hlaup og það var lagt
upp frá Alþingishúsinu en frá því
óeirðir komust í tísku hefur það verið
fært til og nú verður startið við
Hörpuna.“
Ingólfur segir að í Gamlárs-
hlaupinu sé önnur stemning en í öðr-
um hlaupum. „Það er mjög létt yfir
þessu og þátttakendur mæta í ýms-
um búningum. Trausti Valdimars-
son, sem er mikill og góður hlaupari,
mætir til dæmis alltaf í mjög fínum
jakka með pípuhatt. Aðrir eru í jóla-
sveinabúningum og vinkonuhópar
mæta í sérsaumuðum hópbúningum,
í pilsum og allskonar óvenjulegum
hlaupaklæðum. Veðrið er með mjög
svo mismunandi móti á þessum árs-
tíma sem og færðin, en ég segi fyrir
mig að mér finnst mest gaman þegar
veðrið er verst. Allir hlauparar þurfa
að kunna á veður og búa sig eftir að-
stæðum. Sumir hlaupa á nöglum ef
það er mikil hálka, enda þarf að fara
gætilega, fólk hefur vissulega dottið
og meitt sig í þessu hlaupi.“
Eins og mæðiveik rolla
Ingólfur hefur alla tíð haft mikla
ánægju af því að hlaupa. Hann segist
hafa þurft að hlaupa mikið sem
krakki og fram eftir öllum árum þar
sem hann ólst upp í sveitinni á
Barðsnesi austur á fjörðum. „Ég
smalaði kindum á löppinni og gerði
hvað ég gat til að hafa við þeim. En
ég hljóp mitt fyrsta maraþon árið
1985 sem var í annað sinn sem
Reykjavíkurmaraþon var haldið.
Nokkrum misserum áður hafði vinur
minn sem bjó í Svíþjóð komið í heim-
sókn til mín, en hann hafði verið að
hlaupa heilmikið. Hann vildi endi-
lega að við færum út að skokka, í frá-
bæru umhverfinu við Elliðaárnar,
þar sem ég bjó þá. Ég hélt það nú og
við hlupum af stað. En ég varð alveg
steinhissa á því að ég var orðinn
móður eins og mæðiveik kind eftir
fimm hundruð metra. Í kurteisi sinni
hægði vinur minn á sér og við klár-
uðum hringinn. En mér líkaði ekki
að ég var alls ekki í eins góðu formi
og ég hafði haldið. Ég fór því að
hlaupa á morgnana áður en ég fór til
vinnu. Sumarið eftir fór ég svo að
þjálfa markvisst fyrir maraþonið
með góðum félaga mínum og ég tók
þátt í fyrrnefndu Reykjavíkur-
maraþoni. Þá hljóp ég hálft maraþon
og allar götur síðan hef ég ýmist
Hljóp á eftir
kindum í bernsku
Hann er alinn upp í mikilli nálægð við náttúruna og honum finnst mest gaman
þegar veðrið er verst í Gamlárshlaupi ÍR. Hann hefur tekið þátt í því á hverju ári
undanfarinn aldarfjórðung. Hann hleypur líka hálft eða heilt maraþon á hverju
ári og hefur gert sér ferð til Kína til að taka þátt í maraþoni þar.
Gamlárshlaup ÍR verður með
breyttu fyrirkomulagi í ár en til að
tryggja öryggi hlauparanna var
ákveðið að flytja hlaupaleiðina. Nýja
hlaupaleiðin liggur um Sæbraut,
Vatnagarða og Klettagarða. Verður
nyrðri akbraut Sæbrautar lokað fyr-
ir umferð meðan á hlaupinu stend-
ur. Vegalengd hlaupsins er 10 km.
Hlaupið verður nú þreytt í 36.
sinn á gamlársdag en hefð hefur
skapast fyrir því að hlauparar mæti
í hinum ýmsu búningum og í ár
verða veitt verðlaun fyrir bestu bún-
ingana. Því er nú um að gera að
leggja höfuðið í bleyti og finna sér
sniðugan búning til að hlaupa í. Ef-
laust þó best að hann sé ekki of
fyrirferðarmikill.
Í ár fer skráning fram í Hörpu og
þar verður bæði rásmark og enda-
mark. Með þessu hefur umgjörð og
aðstaða hlaupsins verið aukin til
muna. Þá verður í ár notast við
flögur til að mæla tíma keppenda.
Hlaupið verður ræst stundvíslega
klukkan 12 á gamlársdag og er rás-
markið á Sæbraut fyrir utan Hörpu.
Þess skal getið að forskráning
verður á vefsíðunni hlaup.is til mið-
nættis hinn 30. desember og eru
þátttakendur hvattir til að nýta sér
það, en skráningargjald hækkar fyrir
þá sem skrá sig á hlaupdag. Þeir
sem skrá sig fyrir kl. 16:00 fimmtu-
daginn 30. desember geta sótt
gögnin sín í anddyri Frjáls-
íþróttahallarinnar í Laugardal á milli
klukkan 18 og 19:30 fimmtudaginn
30. des. Annars verður einnig hægt
að skrá sig á gamlársdag í Hörpu
frá kl. 10:00 þar til 15 mínútum fyr-
ir hlaup og eru keppendur vinsam-
legast beðnir að virða þau tíma-
Gamlárshlaup ÍR
Verðlaun verða veitt fyrir
bestu búningana í hlaupinu í ár