Morgunblaðið - 27.12.2011, Blaðsíða 11
Vilt þú létta á líkamanum
Birkisafinn frá Weleda er vatnslosandi og
virkar vel á eðlilega hreinsun líkamans.
Útsölustaðir:
Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Blómaval, Lyfja og Apótekið Lyf og heilsa og
Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin,
Lifandi markaður, Lyfjaval, Heilsuver, Apótek vesturlands, Reykjavíkur apótek,
Yggdrasill, Árbæjarapótek, Lyfjaborg, Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Garðabæjar,
Apotek Akureyrar, Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi apótek um allt land
Velkomin að skoða www.weleda.is
Lífrænt ræktaður, án aukaefna
Losar bjúg
Léttir á liðamótum
Losar óæskileg efni úr líkamanum
Góður fyrir húð, hár og neglur
Blanda má safann með vatni
Má einnig drekka óblandað
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011
Jólasveinar af öllum stærðum og
gerðum sáust hlaupa á harðaspretti
eftir götum þýsku borgarinnar Mich-
endorf fyrr á dögunum. Þessir
sveinkar voru þó hvorki á hlaupum til
að kaupa gjafir né forðast Grýlu held-
ur var hér kominn hópur hlaupara
sem tóku þátt í þriðja Michendorfer
Nikolaus-jólahlaupinu fyrr í mán-
uðinum. Alls hlupu rúmlega 700
manns í hlaupinu sem haldið var á
vegum hlaupaklúbbsins í Michendorf.
Ekki er annað hægt að segja en
hlaupararnir hafi verið jólalegir og
glaðir í bragði. Alvörujólasveinar
gætu kannski tekið þessa sér til fyr-
irmyndar og komið sér í svolítið betra
form áður en þeir halda í heimferðina
upp á Esjuna.
Jólasveinahlaup
Reuters
Sprettur Jólasveinarnir okkar gætu örugglega fengið góð hlauparáð hjá þessum f́ríða hlaupaflokki.
Í góðu formi fyrir heimferð á Esjuna
Fjör Þessi hlaupari hafði gaman að því að klæða sig upp sem jólasvein.
Eftir jólin vilja margir taka sig á og koma sér af stað í
líkamsræktinni. Margir ástunda hlaup sem lífsstíl og
hafa lengi gert á meðan aðrir eru rétt að byrja. Hlaup
verða sífellt vinsælli hér á landi og var til að mynda
metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar.
Víða eru starfræktir hlaupahópar en einnig er hægt að
sækja hlaupanámskeið. Eitt slíkt er haldið á vegum vef-
miðilisins hlaup.is. Á námskeiðinu er farið yfir helstu at-
riði í tengslum við hlaupaþjálfun og flest þau atriði sem
huga þarf að í tengslum við hlaup. Þeirra á meðal má
nefna hvað þurfi að hafa í huga þegar byrjað er að
hlaupa, hlaupastíl, mataræði og fyrirbyggjandi aðgerðir
gegn meiðslum svo fátt eitt sé nefnt.
Slík námskeið hafa verið haldin frá árinu 2009 og eru
ætluð fyrir hlaupara, byrjendur og lengra komna. Um-
sjónarmaður vefsíðunnar hlaup.is, Torfi H. Leifsson, er
leiðbeinandi á námskeiðinu. Hann hefur stundað hlaup í
25 ár og séð um hlaup.is frá 1996. Næsta námskeið
hefst í janúar en nánari upplýsingar má nálgast á hlaup-
.is.
Hlaupanámskeið
Morgunblaðið/Eggert
Hlaupagleði Víða um land eru starfræktir skokkhópa.
Helstu grunnatriðin í
hlaupaþjálfun kennd
hlaupið hálft eða heilt maraþon á
hverju ári.“
Lúxus að geta mætt í
hlaupahópinn góða
Ingólfur segir að honum finnist
það vera lífsgæði að geta hlaupið.
„Ég get fullyrt að munurinn á
vel heppnaðri helgi fyrir mig og síður
heppnaðri, liggur í því hvort ég get
hlaupið að minnsta kosti í tvo
klukkutíma eða ekki. Þegar maður
hefur átt erfiðan dag í vinnunni er
mikill lúxus að geta mætt í hlaupa-
hópinn sinn og farið 8-12 kílómetra,“
segir Ingólfur sem er í traustum
hlaupahóp allan ársins hring. „Mér
finnst frábært að eiga þennan hóp að
og geta mætt á vissum tíma og
hlaupið með þessu góða fólki. Það er
alltaf einhver hlaupafélagi sem
hleypur á svipuðum hraða og maður
sjálfur. Það er mikil hvatning í þessu.
Ég þykist góður ef ég hleyp fjórum
sinnum í viku, tvisvar í viku er líka
gott. Það koma tarnir þar sem ég
hleyp mikið en vissulega dettur þetta
stundum tímabundið niður, til dæmis
ef maður fær slæmt kvef. Þá dirfist
maður ekki að fara út að hlaupa fyrr
en kvefið er horfið, en þá er hægt að
hlaupa á bretti innandyra,“ segir
Ingólfur sem vill ekki skrifa undir að
hann sé svo háður hlaupunum að
hann verði ómögulegur ef hann geti
ekki hlaupið í einhverja daga. „En
mig fer vissulega að langa út.“
Hlaupið í Færeyjum með
kindur í hlíðunum
Ingólfur lætur ekki duga að
hlaupa hér heima, hann bregður sér
stundum út fyrir landsteinana til að
taka þátt í hlaupum. „Annað sum-
arið sem maraþon var í Færeyjum
tók ég þátt og þá rættist um leið
gamall draumur um að komast
þangað. Þetta var mjög flott hlaup
út frá Þórshöfn, kindur í hlíðunum
og alveg dásamlegt. Eitt sinn hljóp
ég líka maraþon í Kína, það var gott
tilefni til að fara þangað. Þegar
maður er hlaupari gefur maður sér
leyfi til að fara til hinna ýmsu staða
af því að þar er maraþon.“ Á nýju
ári stefnir Ingólfur á að hlaupa
Laugaveginn, sem hann gerði líka
síðasta sumar. „Og ég ætla að
hlaupa að minnsta kosti eitt mara-
þon, kannski tvö. Maður þarf að
vera maraþonfær mánuði fyrr, til að
komast alla leið. Ég miðaði hér í
gamla daga alltaf við að vera undir
fjórum tímum, en núna horfi ég til
míns aldurshóps, því það hægist
auðvitað á manni með aldrinum. Ég
ætla að halda áfram að hlaupa svo
liðamót og annað fari ekki að bila.“
Hlaupari Ingólfur segir það lífsgæði að geta hlaupið.
mörk. Verða gögn afhent á sama
tíma.
Þátttökugjald fyrir forskráða er
1.500 krónur fyrir 16 ára og eldri (f.
1995 og fyrr) og 500 krónur fyrir 15
ára og yngri (f. 1996 og síðar).
Skrái fólk sig á keppnisstað er
gjaldið 2.000 krónur fyrir 16 ára og
eldri og 500 krónur fyrir 15 ára og
yngri.
Morgunblaðið/Eggert
Búningar Lína Langsokkur mætti sannarlega tvíefld í hlaupið í fyrra.