Morgunblaðið - 27.12.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.12.2011, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Formaður stjórnar Lands- sambands hestamannafélaga segir að í ákvörðun stjórnar um að halda landsmót hestamanna 2014 á Hellu felist engin stefnumörkun til framtíðar um að halda tvö mót á Suðurlandi á móti einu á Norð- urlandi. Stjórnin sé ekki bundin af neinum reglum um röð móts- svæða. Hörð gagnrýni hefur beinst að stjórninni vegna ákvörð- unar um næstu landsmót. Eyfirð- ingar hyggjast láta á það reyna fyrir dómstólum íþróttahreyfing- arinnar hvort ákvörðun um lands- mót 2016 standist. Stjórn Landssambands hesta- mannafélaga (LH) er ekki öfunds- verð af því hlutverki að ákveða hvar halda skuli landsmót hesta- manna. Að þessu sinni þurfti að velja tvö mótssvæði úr fjórum um- sóknum sem allar höfðu sitthvað til síns ágætis. Eins og við mátti búast urðu fulltrúar þeirra sem ekki fengu mót óánægðir en einn- ig forsvarsmenn annars svæðisins sem fékk vegna þess að þeir vildu hitt mótið. Sumir hlutaðeigandi hafa gerst nokkuð stórorðir í gagnrýni sinni. Meðal gagnrýnisradda sem fram hafa komið opinberlega er að með ákvörðun um að halda mótið á Hellu nú, beint í kjölfar Reykja- víkur, sé verið að brjóta þá reglu að halda landsmótin til skiptis sunnanlands og norðan. Einnig að mótshaldari í Skagafirði hafi ekki sótt um mótið 2016 og því uppfylli ákvörðun LH um að ráðstafa því þangað ekki kröfur Íþrótta- sambands Íslands. Ekki að breyta neinu Landsmót hestamanna hafa síð- ustu áratugi verið haldin til skiptis á Norðurlandi og Suðurlandi, yf- irleitt á Vindheimamelum í Skaga- firði og Gaddstaðaflötum á Hellu. Þó var Melgerðismelum og Reykjavík skotið inn í röðina 1998 og 2000. Síðast var landsmót haldið á Vindheimamelum og næsta mót hefði samkvæmt því átt að halda á Hellu á næsta ári. Stjórn LH ákvað að halda það í Reykjavík og fékk ákúrur fyrir. Skagfirðingar vildu halda áfram eins og ekkert hefði ískorist og lögðu mikla áherslu á að fá mótið 2014 en það vildu einnig nágrannar þeirra í Eyjafirði og Sunnlendingar sem buðu að venju fram mótssvæðið á Hellu. Gaddstaðaflatir urðu fyrir val- inu og fyrir því voru færð fjár- hagsleg rök. Reynslan hefur sýnt að þangað koma flestir gestir og því mest von á tekjum fyrir lands- mótsfélagið og mótssvæðið en bæði þessi fyrirtæki skulda mikið og þurfa á tekjum að halda. Meiri óvissa var um staðarval fyrir mótið 2016. Fyrir lá fyrir ákvörðunarfundinn að ef mótið yrði á Hellu 2014 þá yrði það fyrir norðan tveimur árum seinna. Vindheimamelar urðu hlutskarpari og þar virðast fjárhagsleg rök hafa ráðið. Aðstaðan er fyrir hendi og von á fleiri gestum en á Mel- gerðismelum. Sú ákvörðun stjórnar LH að halda mótið á Hellu 2014 felur það í sér að norður-suður hefðinni er slitið í raun. Haraldur Þór- arinsson, formaður LH, tekur að- spurður fram að ákvörðunin sé ekki stefnumarkandi um framtíð- ina, þannig að framvegis verði tvö mót fyrir sunnan á móti einu fyrir norðan, eins og hugmyndir hafa áður komið fram um. „Við erum Deilur um staðarval halda áfram  Röð landsmóta hestamanna ekki verið ákveðin til framtíðar  Hörð gagnrýni beinist að stjórn Landssambands hestamannafélaga vegna staðarvals næstu móta  Fer fyrir dómstól ÍSÍ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Hópreið Við setningu landsmóts gleymast gamlar væringar um staðarval og fulltrúar hestamannafélaganna ríða með íslenska fánann og fána síns félags. ekki að breyta neinu, vinnum að- eins eftir lögum og reglum LH sem fela stjórninni þetta hlutverk. Ef ætlunin væri að takmarka vald stjórnarinnar með slíkum reglum yrði að gera það á landsþingi,“ segir Haraldur. Hann bendir einn- ig á að það hafi gerst nokkrum sinnum í sögu landsmóta að mót hafi verið haldin tvisvar í röð í sama landshluta. Illa samrýmanleg markmið Engar reglur er að finna í sam- þykktum LH um hvar landsmót skuli halda. Þar er einungis kveðið á um að við staðarval skuli stjórn LH hafa til hliðsjónar „fjárhags- lega hagkvæmni svo og yfirsýn á félagslegt réttlæti“. Óvíst er að þessi atriði séu samrýmanleg. Væntanlega er hagkvæmast fjár- hagslega að halda mótin á sem fæstum stöðum til að nýta fjár- festinguna og þá þar sem von er á mestu tekjunum. Á hinn bóginn virðist félagslegt réttlæti vísa til þess að halda mótin sem víðast þótt það hugtak megi túlka á ýms- an hátt. Í landsmótsreglum er hins veg- ar kveðið á um að mótsstað skuli ákveða að minnsta kosti fimm ár- um fyrir mót. Eftir því var ekki farið við ákvörðun nú og það kann að hafa takmarkað möguleika nýrra staða. Forsvarsmenn hestamanna- félagsins Funa í Eyjafirði hafa vísað til félagslegs réttlætis í rök- stuðningi fyrir sínu mótssvæði, telja að jafnræði skuli viðhaft þannig að sem flestum skuli gefast kostur á að halda mótin og njóta þeirrar innspýtingar til uppbygg- ingar aðstöðu sem þeim fylgi. Togstreitan um landsmótin er ekki síst á milli mótssvæða innan landshlutanna. Þannig voru þrír staðir fyrir norðan í umræðunni fyrir þessa ákvörðun, Akureyri til viðbótar við Vindheimamela og Melgerðismela. Svo fór að Ak- ureyringar drógu umsókn sína til baka og lýstu yfir stuðningi við Melgerðismela þótt hestamanna- félagið Funi ætlaði að standa eitt að mótshaldinu með stuðningi Eyjafjarðarsveitar. Með því að mæta tvístraðir til leiks eru Norðlendingar dálítið að færa ákvörðunarvaldið og ábyrgð- ina af staðarvali annað. Ef þeir kæmu sér saman um umsóknir væri erfiðara að ganga fram hjá þeim. Sóttu ekki um Gullhylur sem rekur móts- svæðið á Vindheimamelum sótti ekki um mótið 2016 þar sem félag- ið vildi virða gömlu regluna um að halda mótin til skiptis norðanlands og sunnan og lagði höfuðáherslu á að fá mótið 2014. Töldu þeir tor- velt að sækja um 2016 í þeirri stöðu. Þegar stjórnarmenn LH spurðu forsvarsmenn Gullhyls að því hvort umsóknin tæki til 2016, ef þeir fengju ekki 2014, tóku þeir af vafa um þetta atriði. Sögðu að ef reglunni yrði breytt myndi þeirra umsókn ná til 2016. Þetta hafa stjórnir hestamannafélaganna í Skagafirði og Gullhyls nú stað- fest með yfirlýsingu um að þær séu tilbúnir að ganga til samninga við stjórn LH um landsmótið eftir fjögur ár. Stjórn hestamannafélagsins Funa í Eyjafirði gagnrýnir harð- lega úthlutun á grundvelli um- sóknar sem ekki fullnægi kröfum að þessu leyti. Telur stjórnin að taka þurfi ákvörðunina upp og hefur lýst því yfir að hún muni senda málið til meðferðar Íþrótta- sambands Íslands. Búist var við að kæran yrði send um eða strax eftir jólahátíðina. Formaður LH hefur ráðfært sig við lögfróða menn um þetta atriði og telur að ákvörðunin muni standast þótt hún yrði kærð til dómstóls ÍSÍ. Á þetta mun væntanlega reyna. Rétt er að hafa í huga að eftir er að semja við mótssvæðin. Ef ekki nást samningar er úr fleiri umsóknum að velja. Fyrst verður samið um mótið 2014. Ef ekki tak- ast samningar við Rangárbakka um að halda mótið á Hellu, með þeim fjárhagslegu skilyrðum sem stjórn LH hyggst setja, liggja fyr- ir umsóknir Eyfirðinga og Skag- firðinga. Með sama eru fleiri í spilinu ef Vindheimamelar ganga úr skaftinu. Melgerðismelar yrðu væntanlega nærtækasti kosturinn en umsóknir liggja einnig fyrir frá Reykjavík og Hellu. 1950 Þingvellir 1954 Þveráreyrar 1958 Skógarhólar 1962 Skógarhólar 1966 Hólar 1970 Skógarhólar 1974 Vindheimamelar 1978 Skógarhólar 1982 Vindheimamelar 1986 Hella 1990 Vindheimamelar 1994 Hella 1998 Melgerðismelar 2000 Reykjavík 2002 Vindheimamelar 2004 Hella 2006 Vindheimamelar 2008 Hella 2011 Vindheimamelar 2012 Reykjavík 2014 Hella 2016 Vindheimamelar Landsmót hestamanna 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011 „Það er gleðilegt að geta haldið áfram að nýta þessar miklu fjár- festingar sem lagt hefur verið í,“ segir Ingvar P. Guðbjörnsson, formaður stjórnar Rangárbakka ehf. sem rekur mótssvæðið á Gaddstaðaflötum um ákvörðun stjórnar LH. Fram hefur komið að stjórn LH vonast til að ákvörðunin hjálpi félaginu að leysa fjárhags- mál sín til framtíðar. Sett verða skilyrði um að hestamanna- félögin haldi mótssvæðinu og það geti rekið sig til framtíðar. Rangárbakkar skulda um 50 milljónir kr., að sögn Ingvars, og dótturfélagið Rangárhöllin sem rekur reiðhöllina, annað eins. Skuldirnar eru vegna fram- kvæmda á svæðinu vegna tveggja síðustu landsmóta og byggingar reiðhallarinnar. Segir Ingvar að félögin séu í viðræðum við viðskiptabanka sinn um skuldaskil. Segir hann enga launung á því að bankinn telji þörf á meiri tekjum af svæðinu í framtíðinni til þess að það geti staðið undir afborgunum. „Við þurfum helst einn eða tvo stór- viðburði á hverju ári. Í ár björg- uðum við okkur með Bestu útihátíðinni og vonumst til að önnur eins hátíð verði næsta sumar. Landsmótið er einnig mikilvægt,“ segir Ingvar. Hann vekur athygli á því að búið sé að leggja í miklar fjár- festingar á svæðinu, meðal ann- ars að kröfu LH. Því sé það sið- ferðileg skylda að nýta það áfram. Átta hestamannafélög á Suð- urlandi og sjö sveitarfélög eru hluthafar í Rangárhöllinni. Þurfa stórviðburð hvert ár til að standa undir afborgunum BANKINN TELUR ÞÖRF Á MEIRI TEKJUM AF SVÆÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.