Morgunblaðið - 27.12.2011, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.12.2011, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sigurður KáriKrist-jánsson hef- ur setið á þingi megnið af þessu kjörtímabili eftir að hafa fallið af þingi í síðustu kosningum. Hann datt út í þeim miklu um- skiptum sem urðu í kosning- unum 2009, tiltölulega skömmu eftir bankahrunið og á tímum mikillar ólgu í sam- félaginu. Sigurður Kári er einn af þeim mönnum sem slæmt er að missa af þingi því að hann hef- ur lagt gott til mála, beitt sér fyrir jákvæðum hlutum og ver- ið fylginn sér. Allt of fáir slíkir eru á þingi nú um stundir og þess vegna er eftirsjá að hon- um þegar hann stofnar nú, ásamt nokkrum félögum sín- um, nýja lögmannsstofu eins og fram kom í viðtali við hann í Sunnudagsmogganum um helgina. Hann er að vísu enn vara- þingmaður, en eins og hann lýsir því í viðtalinu beinist hug- ur hans nú að lögmennskunni. Um leið, og ekki síst vegna þess að hann er að hverfa á önnur mið, er forvitnilegt að lesa lýsingar hans á þingstörf- unum á þessu kjörtímabili eftir að stjórn landsmálanna og þingsins komst í nýjar hendur. Sigurður Kári lýsir því hvernig vinnubrögðunum hef- ur hrakað á Al- þingi og virðing þeirra sem þar sitja fyrir þinginu og störfum þess hefur minnkað. Hann segir að kastað sé til höndum varðandi mikilvægar lagabreytingar, sem þyrftu miklu meiri yf- irlegu. „Ég hef horft upp á að mikilvægum lagabálkum hefur á síðustu misserum verið breytt nánast án allrar um- ræðu. Þetta þekktist ekki áð- ur,“ segir Sigurður Kári. Þetta er vissulega alvarlegt mál og ábending sem stjórn þingsins hlýtur að taka til at- hugunar. Ekki er þó síður alvarlegt að lesa lýsingu Sigurðar Kára á því hvernig mál sem hann flutti hafi ekki náð fram að ganga vegna þess að flutningsmað- urinn hafi ekki verið núverandi stjórnvöldum þóknanlegur. Í þessu efni tekur hann dæmi af frumvarpi sem hann lagði ítrekað fram og „hefði tryggt að öll dómsmál sem tengdust hruninu, s.s. um gengistryggð og verðtryggð lán, fengju flýti- meðferð í gegnum dómskerfið. Það hefði hraðað uppgjörinu og eytt óvissu“. Lýsingar á vinnubrögðum á Alþingi um þessar mundir eru ófagrar og víst er að þær batna ekki ef þingmönnum á borð við Sigurð Kára fer enn fækkandi. Fróðlegt er að lesa lýsingar Sigurðar Kára Kristjánssonar á þingstörfunum} Vinnubrögð á Alþingi Nýjasta heftiÞjóðmála er efnisríkt, og fullt tilefni væri til að vekja athygli á fjölmörgum grein- um sem þar birt- ast. Á því eru ekki tök. Látið skal nægja að nefna greinar Björns Bjarnasonar og Gunn- ars Rögnvaldssonar, þar sem þær varpa nýju ljósi á tvo þætti, sem eru ofarlega á blaði hjá þeim sem enn berjast fyrir því að koma Íslendingum inn í ESB. Björn bendir á að sambandið stendur á krossgötum, leitar að nýju lögmæti og innan þess og utan ræða lykilmenn op- inskátt um að óhjákvæmilegt sé að breyta sambandinu hið fyrsta í átt til sambandsríkis, sem fari með meginvald við fjármála- og efnahagsstjórn ríkjana sem eiga undir evruna og eigi lokaorðið um þann meginþátt, sem er þó úrslita- atriði um hvort ríki telst sjálf- stætt eða ekki. Reyndustu menn blása á það sem hvert annað bull að veik staða ESB hafi eitthvað með „samningsstöðu“ Íslands að gera. Þeir benda á að Ís- land sé, a.m.k. í orði kveðnu, að sækjast eftir aðild að ESB og sú um- sókn breyti engu um tilveru sambandsins í þeim erf- iðleikum sem það er heltekið af, á hvorn veginn sem hún veltist. Gunnar Rögnvaldsson skrif- ar um „Áhlaupið á íslensku krónuna“. Grein Gunnars ber með sér, eins og önnur skrif hans, að hann hefur traustari grunn en flestir til að fjalla um tengsl ESB við önnur ríki og um þau lögmál sem leiða af að- ild einstakra ríkja að fjölþjóða myntsamstarfi. Væri æskilegt að svokallaðir Evrópufræð- ingar kæmust með tærnar þangað sem Gunnar hefur hæl- ana í slíkri umfjöllun. Honum er lagið að gera flókin mál ein- föld en forsenda þess er að þekkja þau út í hörgul. Og áhlaupið sem lýst er í þessari eftirtektarverðu grein er ekki úr þeim áttum sem áhlaups á gjaldmiðil er oftast að vænta. Þjóðmál hafa yfir- burðastöðu sem tímarit um stjórn- mál og menningu} Ný sjónarhorn S tundum er sagt að tölur ljúgi ekki en leikur einn sé að láta tölur ljúga. Með því að velja sér viðmið og for- sendur megi alltaf komast að þeirri niðurstöðu sem hentar málstað hverju sinni. Svona mælskubrögð hafa tíðkast á öllum tímum og eru kannski ekki verri en hver önnur. Fólk lítur veruleikann hvað af sín- um kögunarhól og víst er misjafnt hverju „mennirnir leita að / og misjafn tilgangurinn sem fyrir þeim vakir“ eins Tómas Guðmunds- son segir í ljóði sínu, Hótel jörð. Fyrr í desember hverfðist þjóðfélags- umræðan um þau ummæli Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra að flutningar fólks af landi brott í dag væru ekki meiri en gengi og gerðist. Jóhanna hefur sjálfsagt skýringar á hreinu en samantekt vopnabróður hennar úr Þjóðvaka, Ágústs Einarssonar prófessors við Háskólann á Bifröst, setur hlutina í annað samhengi. Í tölum sem Ágúst sendi fjölmiðlum kemur fram að á fjögurra tímabili, það er 2008-2011, hafi 2% af íbúum landsins með íslenskt rík- isfang flutt af landi brott umfram aðflutta eða samtals um 6.300 manns. Þetta sé langmesti fjöldi Íslendinga sem hafi flutt af landi brott á hverju fjögurra ára tímabili Íslandssögunnar síðustu öldina. Skýrara verður þetta varla. Tvöfeldni og eigingirni einkennir viðhorf til landflutn- inga Íslendinga. Í yfirstandandi kreppu – sem líkja má við heimskautaleiðangur heillar þjóðar – er auðvitað er hræðileg blóðtaka þegar handan um höf, í leit að betri og lífvænlegri afkomu, fara þúsundir fólks, í flestum tilvikum ungt og harðduglegt, sem með tilleggi sínu ætti að skapa öllum öðr- um meira í þjóðarkökuna. Ekkert er þó eðli- legra en freistað sé gæfunnar annars staðar þegar harðnar á dalnum á heimaslóð. Allir þurfa að tryggja sér og sínum lífvænlega af- komu. Einkum og helst hafa iðnaðarmenn farið utan síðustu ár, hinir sömu og höfðu yfrið nóg að gera í góðærinu svokallaða. Og raunar var kúfurinn þá svo rosalegur á þeim tíma að svo byggja mætti sem mest voru hingað fengnir erlendir verkamenn í þúsundatali, til dæmis frá Póllandi, Lettlandi, Litháen, Ítalíu og víð- ar og þótti það ekkert sérstakt vandamál. Þá hefur á undanförnum árum flykkst hingað í þúsundavís fólk frá Austurlöndum fjær og víðar sem allt hefur aukið menningarlega fjölbreytni á Íslandi. Og úr því allir telja fínt mál að hingað flykkist fólk frá fjarlægum löndum er marklaust að telja áhyggjuefni að Íslendingar hasli sér völl við núverandi aðstæður í út- löndum. Sjávarföll í samspili við himintungl sveiflast milli flóðs og fjöru og efnahagskreppur koma alltaf með reglulegu millibili. Þegar góðæri fjarar út rær fólk á ný mið en þegar fellur að snúa einhverjir til baka aftur, reynslu ríkari og sem víðsýnna fólk. Máltækið segir líka að fátt sé svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Fólksflutningar á flóði og fjöru STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is D ekkjabruninn á athafna- svæði endurvinnslufyr- irtækisins Hringrásar við Klettagarða í sum- ar dregur dilk á eftir sér því heilbrigðisnefnd Reykjavík- urborgar, Hringrás og Slökkvilið höf- uðborgarsvæðisins takast enn á um takmarkanir á starfsemi á svæðinu en enn er í gildi samþykkt nefnd- arinnar um að magn gúmmís á svæð- inu fari ekki yfir þrjú hundruð rúm- metra á hverjum tíma. Tilkynnt var um eldinn rétt fyrir klukkan þrjú aðfaranótt þriðjudags- ins 12. júlí sl. og voru þegar gerðar áætlanir um hugsanlega rýmingu íbúða í nágrenninu en ekki kom til þess vegna hagstæðra aðstæðna. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæð- isins sagði að magnið af efni sem log- aði í hefði verið yfirþyrmandi og lagði SHS til að heildarmagn af óunnum og tættum hjólbörðum og öðru gúmmíi færi ekki yfir 300 rúmmetra á hverj- um tíma, að stöflunarhæð óunninna og tættra hjólbarða og annars gúmmís færi ekki yfir þrjá metra auk þess sem öll vinnsla og geymsla hjól- barða og annars gúmmís færi fram í þeirri þró sem til þess er ætluð. Auk þess var lagt til að gerð yrði áhættugreining á starfseminni og að takmörkun á starfseminni yrði ekki aflétt fyrr en henni væri lokið. Dregur úr hagkvæmni Samkvæmt starfsleyfi er leyfilegt að hafa allt að þúsund rúmmetra af efni á svæðinu. Í bréfi sem fram- kvæmdastjóri Hringrásar sendi heil- brigðisnefnd segir að takmörkun á því magni dragi mjög úr hagkvæmni vinnslunnar. Einnig að það sé óraun- hæft markmið miðað við vinnslu og innflæði að takmarka starfsleyfi við aðeins þrjú hundruð rúmmetra. „Það sem við viljum fara fram á er að stjórnsýslan gæti meðalhófs við af- greiðslu málsins og tryggi að rekstr- argrundvellinum sé ekki kippt undan endurvinnslu dekkjanna,“ segir í bréfinu og er lagt til að svæðinu verði frekar skipt í þrjú þrjú hundruð rúm- metra hólf. Auk þess benti framkvæmdastjór- inn á og ítrekaði í öðru bréfi að brun- inn hefði orðið af völdum íkveikju. Í svarbréfi heilbrigðisnefndar sem lagt var fram til kynningar á síðasta fundi nefndarinnar kemur fram að í reglubundnu heilbrigðiseftirliti sem fram fór í síðasta mánuði hafi komið í ljós að birgðir af gúmmíi hafi verið með minnsta móti, vinnsla gúmmís virkað vel og ástand svæðisins betra en verið hefði varðandi umgengni og birgðasöfnun. Í ljósi þess óskar nefndin eftir svörum um það hvort og í hvaða tilvikum nauðsynlegt er að hafa meiri birgðir á svæðinu. Einnig er komið inn á þá fullyrð- ingu forsvarsmanna fyrirtækisins að um íkveikju hafi verið að ræða. Segir að nefndin hafi sjálf óskað eftir því við lögreglustjóra með bréfi sendu í ágúst sl., að hann upplýsti um orsakir brunans. Þrátt fyrir ítrekanir hafi svar ekki borist. Fer nefndin því fram á að fá afrit af staðfestingu lög- reglustjóra til fyrirtækisins. „Þetta atriði skiptir máli varðandi kröfur til fyrirtækisins því ljóst er að ef um er að ræða íkveikju af manna- völdum eins og fyrirtækið fullyrðir að hafi verið, er þörf á frekari úrbótum í öryggismálum á svæðinu.“ Heilbrigðisnefndin segir þá að meðalhófs hafi verið gætt en gera þurfi áhættumat, fá skýringar á or- sökum brunans og ákvarða í kjölfarið hámarksmagn gúmmís. „[Það er] staðreynd að fyrirtækið er staðsett í næsta nágrenni við íbúðarbyggð með starfsemi sína og núgildandi starfs- leyfi leyfir meira magn gúmmís en SHS treystir sér til að slökkva í við óbreyttar aðstæður.“ Enn er takmörkun í gildi hjá Hringrás Morgunblaðið/Júlíus Eldsvoði Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn en mikill eldur var í dekkjum á athafnasvæði Hringrásar. Um þrjá tíma tók að hemja eldinn. Meðal þess sem Hringrás hef- ur látið gera eftir brunann í júlí er að meta svæðið út frá brunahættu og slökkvigetu. Þá eru dekk aðeins geymd í lok- uðum gámum sem ekki er hægt að opna. Gámarnir eru tuttugu talsins en í umræddu mati segir að ásættanlegt sé að geyma allt að áttatíu gáma á svæðinu út frá brunavarn- arsjónarmiðum. Fyrirtækið segir að með þeim aðgerðum og úrbótum sem unnið sé að verði dregið úr áhættu og afleiðingum sem gætu orðið af völdum íkveikju. Dekk geymd í gámum MARGÞÆTTAR AÐGERÐIR Slökkt í Erfitt er orðið að kveikja í.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.