Morgunblaðið - 27.12.2011, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.12.2011, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011 Almenn stjórnmála- umræða á Íslandi hef- ur undanfarin misseri verið sérkennileg, enda lifum við á áhuga- verðum tíma í stjórn- málum og efnahags- málum. Konfúsíus sagði að það væri bölv- un að lifa á áhugaverð- um tímum, svo sann- arlega má tala um að í einhverjum mæli er hægt að kalla núver- andi ástand bölvun. Það hlýtur að vera bölvun yfir landinu og myrkratímabil þegar það tíðkast að kalla menn sem berjast fyrir trú sína á einstaklingsfrelsið, réttlætið og sjálfstæði þjóðarinnar öfga- og harðlínumenn. Er það gert vegna þess að slíkir menn hafna þessum svokölluðu „nýjungum og nútímavæðingu“, neita því að henda gömlum rótgrónum gildum á haug- ana og standa í lappirnar þegar þarf að verja grunnstoðir þjóðfélagsins. Nú til dags er allt gamalt slæmt og hið „nýja“ Ísland á að rísa upp með auknu „lýðræði“ og betri stjórn- arháttum. Einstaklingsfrelsið sem er arfleifð Bill of Rights frá 1688, réttarríkið sem á rætur að rekja til Rómar til fórna og þjóðríkið sem bundið er við vesturfalíska friðarsamninginn frá 1648 eru vissulega gömul og rótgróin gildi. Þessi gömlu gildi, sem við byggjum þjóðfélag okkar Íslendinga á, komu til vegna reynslu mannkyns og stöð- ugrar þróunar. Þróun- ar sem fór hægt og í takt við samtíma sinn. Við verðum að muna að þessi gildi urðu ekki sjálfsögð fyrr en eftir seinni heimsstyrjöld, en nú er spurning hvort þau verða sjálf- sögð í framtíðinni. Í dag er verið að tak- marka einstaklings- frelsið, sniðganga réttarkerfið og draga úr sjálfsákvörðunarrétti þjóð- arinnar í nafni efnahagslegs „rétt- lætis“ og „aukins“ lýðræðis. Þetta minnir óneitanlega á áróður sem heyrðist í byrjun 20. aldar. En þetta er alls ekki sá áróður, heldur eru þetta sameiginleg einkenni málflutn- ings róttæklinga og umrótsmanna, sama hvaða stjórnmálastefnu þeir aðhyllast. Það sem vekur furðu mína sér- staklega er hvernig menn sem boða hið „nýja“ neita að læra af sameig- inlegri kunnáttu og visku mannkyns- ins sem er að finna í sögu þess. Það var einmitt hin „nýja“ hagfræði og „nýja“ efnahagsstefna sem stuðlaði meðal annars að heimskreppunni, og nú á að skapa hið „nýja“ Ísland. Fyr- ir hrun hentu menn gömlu hags- tjórnarstefnunni og reynslu fyrri kynslóða á haugana og nú á að end- urtaka mistökin undir formerkjum þess að leiðrétta stöðuna sem upp er komin. Þessi ofurtrú á yfirburðagetu nútímamannsins og höfnun visku fortíðarinnar er einmitt grundvall- arvandamálið. Það er augljóst að eina leiðin fyrir þessa þjóð út úr þeirri bjöguðu efnahagsstöðu sem upp er komin er að fara löngu, leið- inlegu og erfiðu leiðina; þá leið sem sagan kennir okkur að fara. Byggja upp á forsendum uppgjörs skulda og raunverulegrar verðmætasköpunar. Öll von er ekki úti þótt vegurinn áfram verður erfiður, með rísandi sólu munu betri tímar koma. Það er eins og enska skáldið Alfred Tenny- son hafi talað beint til okkar þegar hann ritaði ljóðið Ulysses: „Þótt við séum ekki nú sá styrkur sem áður hreyfði himin og jörð, þá erum við það sem við erum – sameinuð hugrökk hjörtu gerð veikburða af tíma og örlög- um, en með sterkan vilja til að vinna, að leita, að finna, og aldrei gefast upp.“ Hugrökk hjörtu Eftir Gunnlaug Snæ Ólafsson » Það var einmitt hin „nýja“ hagfræði og „nýja“ efnahagsstefna sem stuðlaði meðal ann- ars að heimskreppunni, og nú á að skapa hið „nýja“ Ísland. Gunnlaugur Snær Ólafsson Höfundur er formaður Félags íhaldsmanna. Stjórnmálahreyf- ingin Hægri grænir, flokkur fólksins er endurreisnarflokkur sem vill opið þjóðfélag og beint lýðræði. Gamla íslenska fjór- flokks- og embættis- mannakerfið er úrelt og það sýndi sig best í aðdraganda íslenska efnahagshrunsins. Vandamálið var og er samtrygging og samkrull stjórn- málamanna og embættismanna fjór- flokksins með verkalýðshreyfing- unni, lífeyrissjóðunum og bönkunum. Þetta er það sem heldur landinu föstu í heljargreipum verð- tryggingarinnar sem er áskrift- arávöxtun fjármagnseigenda í gegn- um handstýrða verðbólgu sem orsakast af háum neyslusköttum, peningastefnu Seðlabankans og 3,5% raunávöxtunarkröfu lífeyr- issjóða. Ástandið í efnahagsmálum er nú það alvarlegt að það býður ekki upp á þau forréttindi að fresta aðgerð- um. Án nokkurs vafa verða menn að geta komið sér saman um hlutina og hugsa um framtíð Íslands og þá ætti það ekki að vera mikið mál að hefja uppbyggingu efnahagslífsins, út- rýma verðtryggingu, fátækt og at- vinnuleysi. Leysa vandamál heim- ilanna og koma atvinnulífinu í gang með tilheyrandi aukningu kaup- máttar og bættum lífskjörum. Hitt vandamálið er að stjórn- málamenn efna ekki sín fyrirheit og það verður að skipta út fólki sem hefur ekki staðið sig. Við höfum ekk- ert að gera með það að borga fólki laun sem ræður ekki við verkefnin. Við viljum nýtt alþingi með fólki sem ber kærleika til lands og þjóðar og skilur engan útundan. Þetta er lítið land með eitt tungumál og við eigum öll sömu hagsmuna að gæta og eig- um að skila landinu til afkomenda okkar í betra standi en við tókum við því. Þeir sem vilja vinna í þessum anda munu ná kjöri í næstu kosn- ingum. En ef það er ekki vilji hjá meirihluta þjóðarinnar fyrir þessum breytingum, verða hér áfram sér- hagsmunahópar sem flokkurinn vill ekki vera þátttakandi í og áfram sama fólkið og hagsmunaklíkurnar. Þá verða sömu vandamál um ókomna tíð þar til ný kynslóð kemur og gerir uppreisn gegn þessu sjálf- skaparvíti. Margt í stefnu flokksins er sótt í hag- og atvinnusögu landsins og annað í smiðju meistaranna. Flokk- urinn er raunsæis- og endurreisn- arflokkur og leggur áherslu á sjálf- bærni og að njóta náttúrunnar án þess að ganga á möguleika komandi kynslóða til hins sama. Framtíð Ís- lands er samofin framleiðslu á mat, orku og blómlegum ferðaiðnaði. Ís- land er fjársjóður framtíðarinnar og við viljum landið sem stærsta þjóð- garð Evrópu, friðland dýralífs og náttúru. Raunsæisstefna flokksins vill stefnumarkandi lausnir í þeim málum þar sem erfitt er að vernda almannaeign. Þessi raunsæisstefna er stundum kölluð blágræn hug- myndafræði, „Blue Green“ eða „Conservative Green“ en stefnan að- hyllist umhverfisvæn haggildi. Flokkurinn vill byggja upp „grænt hagkerfi“ á Íslandi. Raunverulega geta bæði íhaldssamir náttúruvernd- arsinnar og frjálslyndir félagshyggjumenn sem aðhyllast frjálst mark- aðshagkerfi aðhyllst stefnu flokksins um al- hliða náttúruvernd. Ís- lendingar hafa ávallt verið í fararbroddi fyrir náttúruvernd og sýnt það í verki. Náttúran fer ekki í flokkadrætti, en náttúran býr yfir verðmætum og flest vinnanleg nátt- úruverðmæti skil- greinir flokkurinn sem endurnýj- anleg vistgæði sem hafa mælanlega og áþreifanlega verðmætaaukningu með áframvinnslu. Í þessu samhengi er nýting náttúrulegra verðmæta undirstaða hagkerfisins. Sjálfbærni lands og sjávar er nauðsynlegt til þess að halda landinu í byggð. Flokkurinn vill trúa því að íslenskt velferðarsamfélag og viðhald þess byrji og endi á Íslandi. Ísland á að vera góður fjárfest- ingakostur fyrir Íslendinga og er- lenda fjárfesta en gæta verður þess umfram allt að Ísland sé góður stað- ur til þess að búa á. Íslendingar þurfa að endurheimta hugrekki sitt til þess að takast á við þann fjölda vandamála sem steðja að þjóðinni. Við þurfum að leysa úr læðingi hafsjó hugmynda til nýsköpunar og vekja upp þann kynngikraft sem blundar með þjóðarsálinni. Flokk- urinn vill gera nýja samfélagssátt við íslensku þjóðina. Íslendingar verða að losna úr viðjum fjór- flokkakerfisins og embættismanna hans. Hægri grænir, flokkur fólksins, vill byggja upp náttúruvænt þekk- ingarþjóðfélag á Íslandi. Sýna um- hverfi og auðlindum þjóðarinnar við- eigandi virðingu. Einstaklingsfrelsi er lykillinn að gæfu þjóðarinnar ásamt lágum sköttum, friðsömum og haftalausum milliríkjaviðskiptum, traustum gjaldmiðli, frjálsri sam- keppni og sem minnstum ríkisaf- skiptum. Hagvöxtur framtíðarinnar bygg- ist á hátækni, hraða, aðgangi að upp- lýsingum og hæfileikum til að nýta þær. Frí þráðlaus nettenging og há- hraðanet verður að vera í þéttbýlis- kjörnum og á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er framtíðin og Íslendingar með eitt elsta löggjafaþing veraldar eiga að vera brautryðjendur í þróun beins lýðræðis í heiminum. Allt sem til þarf er hugdjörf framtíðarsýn og vilji til verks. Við þurfum nýtt Al- þingi, nýja sýn, nýja stefnu, nýjan trúnað við málefni og þjóðarhags- muni. Hugdjörf framsýn, hagnýt skref Eftir Guðmund F. Jónsson Guðmundur F. Jónsson »Einstaklingsfrelsi er lykillinn að gæfu þjóðarinnar ásamt lág- um sköttum, friðsömum og haftalausum milli- ríkjaviðskiptum, traust- um gjaldmiðli, frjálsri samkeppni og sem minnstum ríkisaf- skiptum. Höfundur er viðskiptafræðingur og formaður Hægri grænna, flokks fólksins. Ég kynntist fyrst verðtryggingu og verð- bólgu í Sviss, er ég fékk útborguð janúarlaun. Þau voru örlítið hærri en í desember. Sviss- arar reiknuðu verð- bólgu yfir árið og leið- réttu laun miðað við „Teuerungszulage“ (= dýrtíðaruppbót) fyrir nýliðið ár. Mismunur var greiddur út í jan- úar og grunnlaun leiðrétt í leiðinni. Þannig eru verkföll óþörf í Sviss. Ég setti niður kartöflur fljótlega eftir að ég flutti heim. Útsæðið kost- aði 18 kr/kg. Kartöflur lækkuðu í 3,6 kr/kg rétt eftir að ég setti niður. Fimmfalda uppskeru þurfti til að fá útsæðiskostnaðinn til baka. Laun voru vísitölutryggð og fyrir nýtt vísi- tölutímabil fiktuðu stjórnmálamenn- irnir í vísitölunni með niðurgreiðslum t.d. á kartöflum. Í starfi mínu á verkfræðistofu og hjá verktaka kynntist ég bygginga- vísitölu, sem var notuð til að verð- bæta tilboðsverk. Húsaleiga breyttist líka miðað við byggingavístölu. Hjá Plastos bjó ég til okkar eigin verð- tryggingu fyrir plastpokatilboð til sveitarfélaga og IR. Verðbætur mið- uðust 40% við launataxta iðnverka- fólks og 60% við verðskrá Reykja- lundar. Plastpokavísitalan var einföld en mældi rétt. Hækkun á brennivíni, tóbaki og öðrum óþarfa höfðu engin áhrif á hana. Verðskrá Reykjalundar var háð heimsmarkaðsverði á plasthráefnum og þar með olíu. Lífeyrissjóðslán eru næstum 100% til kaupa á húsnæði. Þau eru verð- tryggð miðað við ýmislegt, sem hefur engin áhrif á byggingarkostnað, t.d. brennivín og tóbak. Hvers vegna í ósköpunum eru húsnæðislán ekki verðtryggð miðað við bygginga- vísitölu? Rökstyðjið það verkalýðs- foringjar, sem verjið verðtrygg- inguna. Getið þið það ekki, þá er kominn tími til að leiðrétta verð- tryggingagrunninn. Verðtryggingin hef- ur áhrif til hækkunar vaxta, sem svo hækka verðbólguna. Þannig var það fyrir þjóð- arsátt, en þá voru hag- fræðingarnir með kenningu um ruðn- ingsáhrif, sem átti að lækna ástandið. Vinnu- félagi minn í Sviss kom í heimsókn og spurði hvernig stæði á svo háum vöxtum, sem voru 40-50%. Ég sagði að þeir ættu að slá á verðbólguna. Hann sagði: Heima í Sviss voru vextir hækkaðir í 3%, þegar verðbólgan var kominn yf- ir 2% og síðan koll af kolli þar til vext- ir voru 7% og verðbólgan komin yfir 5%. Þá skildu þeir samhengið. Lækk- uðu vexti og verðbólgan hopaði. Hjá okkur elti verðbólgan vextina, sem fóru í 70-80%. Ruðningsáhrifin hefðu rústað öllu, ef þjóðarsáttin hefði ekki komið til. Því miður voru bankarnir ekki með í sáttinni. Þeir höfðu lent í svo miklum útlánatöpum að vextir urðu að haldast háir. Svo fóru þeir að græða og vextir voru áfram háir. Við sölu bankana voru væntingar um lækkun vaxta. Það fór þó þannig að fyrst tóku þeir lán í útlöndum á lág- um vöxtum og lánuðu heima í krón- um á hærri vöxtum. Svo keyptu þeir banka í útlöndum og lánuðu í gjald- eyri á hærri vöxtum en í útlöndum, sem þó voru lægri en vextir krónul- ána. Þenslan jókst og þar með verð- bólgan. Seðlabankinn hafði greini- lega ekkert lært af ástandinu fyrir þjóðarsátt og ætlaði lækka verðbólg- una með hækkun stýrivaxta, sem hafði þveröfug áhrif. Gengi krón- unnar hækkaði, eyðsla jókst og þar með verðbólgan. Fjárglæframenn notuðu aðstöðuna og rændu bankana uns allt hrundi haustið 2008. Stjórnvöld sáu enga aðra lausn á vandanum en þá að ganga í ESB og taka upp evru, sem átti að lækna allt. Ýttu vandanum á undan sér með því að setja verðtryggð lán í frost og tala krónuna niður. Úr frysti koma lán með viðbættri verðtryggingu síðustu þriggja ára. Staðan getur verið 40 millj. kr skuld í fasteign, sem nú er metin á 30 millj. kr. Skjaldborgin býður Jóni og Gunnu lækkun skulda í 33 millj kr gegn því að halda áfram að borga af húsnæði, sem þau eignast aldrei. Ástandið væri mikið léttara fyrir heimilin, ef stjórnvöld hefðu leiðrétt verðtrygginguna og miðað við byggingavísitölu, eins og eðlilegt er. Í stað þess að greiða af lánum hefði komið negatíf verðtrygging og skuldurum greitt til baka í takt við lækkun húsnæðis. Endurgreiðsluna hefði mátt nota til að greiða niður höfuðstól og áfallnar verðbætur. Hróplegasta óréttlætið er að fjár- málastofnanir fengu lánin með mikl- um afföllum, sem svo hafa verið vit- laust verðbætt í 3 ár. Ekki að furða að bankarnir sýni tugmilljarða hagn- að þrátt fyrir miklar niðurfellingar hjá útvöldum. Ókostur við „skjaldborgina“ er að bankinn leggur línurnar og er ósveigjanlegur. Skuldarar eiga ekk- ert val. Sumir taka þessum afarkost- um og aðrir flýja land. Bankinn væri viðræðuhæfur og gengi ekki eins hart að þeim, sem eru að missa hús- næði „sitt“, ef þeir hefðu þann val- kost að skila lyklunum, eins og Lilja lagði til. Töfralausnin evran er ónýt, en áfram skal haldið og ekkert til sparað í að komast undir stjórn ESB. Í við- bót við ónýta stjórn sitjum við uppi með seðlabankastjóra, sem ekki skil- ur samspil verðtryggingar, vaxta og verðbólgu. Ég batt miklar vonir við, að hann kom frá Sviss. Svo komst ég að því að hann sem ráðgjafi Seðla- banka var prímusmótor í hækkun stýrivaxta, sem drógu að krónu- og jöklabréfabraskara með tilheyrandi hækkun verðbólgu. Það breytir þó ekki því að verðtrygging byggð á röngum grunni er upphafið. Verðtrygging, vextir og verðbólga Eftir Sigurð Oddsson »Hvers vegna í ósköp- unum eru húsnæð- islán ekki verðtryggð miðað við bygginga- vísitölu? Rökstyðjið það verkalýðsforingjar, sem verjið verðtrygginguna. Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur. AUGLÝSINGASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.