Morgunblaðið - 27.12.2011, Side 23

Morgunblaðið - 27.12.2011, Side 23
Í maí 2004 var Ingi Þór ráð- inn í stöðu æskulýðsfulltrúa Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði. Hann var fyrsti fastráðni starfs- maður hinnar nýju sóknar en engu var líkara en að við hefðum fengið fjölda manns í vinnu, slík var starfsorka hans og vinnu- gleði. Ingi Þór aðstoðaði sókn- arprest við guðsþjónustur, sá um sunnudagaskólann og tók að sér ritstjórn safnaðarblaðs og heimasíðu kirkjunnar. Um tíma tók hann meira að segja að sér þrifin eftir að kirkjan flutti í nýtt bráðabirgðahúsnæði á Kirkjuvöllum 1. Ingi Þór var alltaf reiðubúinn að hjálpa til og gerði allt með brosi á vör og léttri lund. Fyrstu árin, áður en Ástjarn- arkirkja komst í eigið húsnæði, fór æskulýðsstarfið fram í Ás- landsskóla og vann Ingi Þór ná- ið með starfsmönnum félagsmið- stöðvarinnar Ássins. Var til þess tekið hversu vel hann náði til barnanna og unglinganna, enda voru þau ófá sem fylgdu honum niður í Ástjarnarkirkju þegar hann færði starfsemi sína þang- að. Það leið langur tími frá því að Ingi Þór veiktist fyrst þangað til ljóst varð hvað var að. Þrátt fyr- ir skerta starfsgetu barðist hann áfram, alltaf með bros á vör, og sagði gjarnan með glettni í aug- um að nú væri kominn tími til að taka út frá almættinu það sem hann hefði verið að leggja inn alla tíð. Ingi Þór missti aldrei vonina um að ná bata og hann missti aldrei trúna. Við erum mörg sem eigum góðar minningar um Inga Þór og samskiptin við hann. Við þökkum Guði fyrir góðan dreng og blessum minningu hans. Starfsfólk og sóknarnefnd Ástjarnarsóknar vottar aðstand- endum hans og vinum dýpstu samúð. Erlendur Geir Arnarson. Ég trúi því varla að ég sitji og skrifi þessi orð um þann ein- staka mann sem þú hafðir að geyma. Þó að við höfum ekki verið í miklu sambandi síðustu ár þá langaði mig að fá að kveðja þig á minn hátt. Við kynntumst í Vatnaskógi í gegnum KFUM og K starf, ég var 14 ára og þú 17 ára. Mér finnst eins og þetta hafi gerst í gær, þetta er mér svo ljóslifandi í minningunni. Þessi fallegi peyi, með þvílíka útgeislun og þetta töfrandi bros. Eftir þessa helgi í Vatnaskógi urðum við kærustu- par. Ég var frekar sjóveik alltaf en eitt af ráðunum við sjóveiki er að þefa af rakspíra. Ég sigldi því heim á leið með rauðan Joop rakspíra í pappír til að þefa af og var í fyrsta skipti í langan tíma ekki sjóveik. Ingi Þór Hafbergsson ✝ Ingi Þór Haf-bergsson fædd- ist í Reykjavík 8. júní 1978. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 13. des- ember 2011. Útför Inga fór fram frá Graf- arvogskirkju 21. desember 2011. Samband okkar stóð nú ekki lengi en ég gleymi því samt aldrei og eign- aðist út frá því ein- stakan vin í þér. Trúrækni þín var mikil og mættirðu óvænt í ferminguna mína. Þú komst að sjálfsögðu í kirkj- una, það var eitt það mikilvægasta að þínu mati. Þú varst einn af þessum vin- um sem maður tók alltaf upp þráðinn þar sem frá var horfið með. Jafnframt gat maður alltaf treyst á þig. Eitt atvik í lífi mínu lýsir þér svo vel. Ég hafði fengið sorglegar fregnir og varð að fara ein í jarðarför sem reyndist mér mjög erfið. Mig vantaði svo að fá einhvern með mér til að komast í gegnum þennan dag og eina manneskjan sem mér datt í hug að biðja um svona stóran greiða varst þú. Þú varst ekki lengi að segja já og hélst í hönd- ina á mér alla jarðarförina, ásamt því að mæta í erfidrykkj- una með mér og standa við bak- ið á mér allan tímann. Þetta var ekta þú. Ég hitti þig síðast á Þjóðhá- tíð, hressan og kátan að vanda. Við spjölluðum aðeins um lífið og tilveruna og þá varstu byrj- aður að veikjast en ekki komið á hreint hvað væri að angra þig. Þú varst samt svo bjartsýnn og ákveðinn í að tækla þetta eins og hvert annað verkefni. Þú barðist víst allan tímann og ertu einn af þeim sem maður á að taka sér til fyrirmyndar í lífinu. Núna er baráttan búin en þú væntanlega kominn með eitt- hvert ótrúlega mikilvægt verk- efni hjá Guði. Minningin um þig lifir og lýsir okkur hinum rétta leið. Ljóðabókina þína sem þú gafst mér geymi ég eins og gull. Finnst mér þetta ljóð í raun segja allt sem segja þarf. Hver minning um þig flýtur um í kær- leika hjarta míns. Hver mynd af þér er innrömmuð í huga minn. Gleði þín og hvert tár, allt þetta ég á inni í mér. (Ingi Þór Hafbergsson) Elsku Freydís, Hafberg, Lára og Sóley, mínar dýpstu samúð- arkveðjur til ykkar. Megi góður Guð vaka yfir ykkur á þessum erfiðu tímum. Kristín Ósk Óskarsdóttir. „Þú manst þú ætlar að verða presturinn minn.“ Svona hljóm- uðu síðustu orð mín til Inga Þórs eftir klapp og knús á stúd- entsútskriftinni hans frá Borg- arholtsskóla fyrir réttu ári. Ég var ekki sú eina af kennurunum sem í tilefni þessa gleðilega áfanga bara urðu að hylla þenn- an sómadreng. Kennararnir allt frá litlum konum til stæðileg- ustu karlmanna fundu hjá sér þörf til að þyrpast á athöfnina og knúsa hann Inga. Ófáir með tárin í augunum, því svo mikil var eftirsjáin að honum jafn- framt því sem við samglöddumst honum með prófin og ekki síður vorum við að þakka honum fyrir útskriftarræðuna sem hann flutti flottur að vanda. Undir ræðunni hans sat ég gamli dönskukennarinn úti í sal, eig- inlega að rifna úr monti því í mínum huga var þetta nefnilega minn nemandi. En þannig var það nú reyndar ekki því allir sem kynntust Inga áttu hann. Hvert einasta bein. Við Ingi vorum vinir. Þannig var það bara og þurftum við ekkert mörg orð um það. Frá fyrstu kennslustund. Vinir. Reyndar tók ég ekkert sérstak- lega eftir honum í byrjun þessa fyrsta tíma þar sem hann sat á fremsta bekk. En það breyttist þegar umræður milli mín og nemenda fóru að spinnast um mannræktarsamtök. Ingi sneri sér þá að krökkunum á sinn af- slappaða og gæðalega hátt og tók að kynna fyrir þeim töfra mannræktarinnar. Það var sem við manninn mælt, allt datt í dúnalogn og líflegir nemendur mínir sátu agndofa og drukku í sig orð hans. Það endaði með að ég settist út í horn og gaf hon- um kennslustundina og fannst mér þessum dönskutíma vel var- ið. Þarna strax gerði ég mér grein fyrir þvílíkur gullmoli þessi nemandi minn var. Síðan höfum við verið vinir. Mikið sem var gott að hafa hann Inga í kennslustundum, gegnheilan, skynsaman og yfir engan hafinn. Hafði bætandi áhrif á umhverf- ið. Hann ætlaði sér að verða prestur. Það voru hans stóru áform í lífinu. Það sem ekki var verra þá lofaði hann að verða presturinn minn og þótt hann sé farinn allt of ungur eru áhrif af veru hans hér á jörðinni mikil og stór. Framkoma hans, gæska og æðruleysi verður okkur sem þótti vænt um hann sem leið- arvísir í lífinu. Á þann hátt gerir hann gagn hjá okkur um ókomin ár. Með það í huga get ég sann- arlega þakkað fyrir mig. „Elsku Ingi takk fyrir að vera prest- urinn minn.“ Öllum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Inga Jóhannsdóttir. „Nefndu mig bara, ef þér liggur lítið á,“ sagði hann þegar hann kvaddi fyrir réttu ári, kankvís á svip og umfram allt bjartsýnn á framtíðina. Hann var að kveðja Borgarholtsskóla og á leið í guðfræðinám, þangað sem hugur hans stefndi. Það er erfitt að sætta sig við að nú skuli hann allur, að héðan í frá verði aldrei af því að ég fái hann í kennslustund til að skeggræða trúarbrögð eða kvikmyndir. „Ég er eiginlega einn af inn- anstokksmununum,“ sagði hann þegar leiðir okkar lágu fyrst saman í ársbyrjun 2009, með þennan hlýja glettnisglampa í augum sem aldrei virtist yfir- gefa hann. Með því átti hann væntanlega við að hann hefði, með hléum, verið í Borgarholts- skóla næstum jafn lengi og skól- inn hafði starfað. Fyrir mér áttu þessi orð eftir að merkja að hér færi hinn góði andi skólans. Allt varð með öðrum og jákvæðari brag þegar hann var í kennslu- stund. Meira að segja geð- stirðustu kennarar urðu mildari, víðsýnni og betri manneskjur þegar hann var nærri. Skáldið Stephan G. Stephans- son segir á einum stað að hinn eini gildi mælikvarði menntunar sé: Að hve góðum manni hefur menntunin gert þig? Samkvæmt þessum kvarða var Ingi Þór þrátt fyrir ungan aldur sann- menntaður maður. Skólaganga hans féll vissulega ekki að nein- um hraðsuðuhugmyndum um þriggja ára stúdentsnám. Hann fór sínar eigin leiðir og ekki allt- af þær auðveldustu. Í fyrstu máttu skólabækurnar að miklu leyti víkja fyrir fé- lagsstörfum. Síðar tóku við störf úti í þjóðfélaginu. Þegar hann varð nemandi minn í trúar- bragðasögu og síðan rokk- og kvikmyndasögu kom í ljós að hann hafði ekki einungis starfað að æskulýðsmálum á vegum kirkjunnar heldur einnig unnið við rekstur eins af kvikmynda- húsum borgarinnar. Þessi lífs- reynsla hans varð okkur skóla- systkinum hans að ómetanlegu gagni. En okkur varð líka fljótlega ljóst að Ingi Þór átti við erfið veikindi að stríða, líklega erf- iðari en okkur samferðafólk hans gat nokkurn tíma grunað. Því sjálfur tókst hann á við sjúk- dóm sinn af slíku æðruleysi að fáum datt annað í hug en að hann myndi hafa í fullu tré við hann um ókomin ár. Annað kom á daginn. Ingi Þór kom í heiminn á þeim árstíma þegar hvað bjart- ast er. Honum fylgdi alla tíð birta og hlýja. Það er því kannski táknrænt að hann skuli kvaddur á þeirri stundu þegar dagur er stystur og aftur tekur að birta, hátíð ljóssins framund- an. Megi minning þessa góða drengs ævinlega vera okkur for- dæmi bjartsýni og æðruleysis. Vigfús Geirdal. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011 Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, SR. BJÖRN JÓNSSON, Ásabraut 2, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness að morgni þriðju- dagsins 20. desember. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð sonardóttur hans, Klöru Smith Jónsdóttur, 0552-14-401455, kt. 010455-3249. Sjöfn Pálfríður Jónsdóttir, Sossa Björnsdóttir, Ólafur Jón Arnbjörnsson, Ingibjörg Jóna Björnsdóttir, Hörður Kári Jóhannesson, Jón Páll Björnsson, Ásdís Kr. Smith, Gunnhildur Björnsdóttir, Pétur Sigurðsson, afa- og langafabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN ANDRÉS ÓSKARSSON vélstjóri, Barðastöðum 7, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 16. desember, verður jarð- sunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 28. desember kl. 13.00. Davíð Björnsson, Ólöf Lilja Sigurðardóttir, Óskar Björnsson, Halla Katrín S. Arnardóttir, Sigurður Jón Björnsson, Sigrún Jónsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN JÓNSSON, Sléttuvegi 23, Reykjavík, áður Hlégerði 5, Kópavogi, lést föstudaginn 16. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag aðstandenda alzheimersjúklinga www.alzheimer.is eða í síma 533 1088 eða láti líknarfélög njóta þess. Guðbjörg Óskarsdóttir, Olga Kristjánsdóttir, Hrönn Kristjánsdóttir, Lilja Kristjánsdóttir, Lára Kristjánsdóttir, Dóra Hjálmarsdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ BOGI HELGASON frá Brúarfossi sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi miðvikudaginn 21. desember, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju föstudaginn 30. desember kl. 13.00. Alúðarþakkir fyrir sýnda samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi fyrir góða umönnun. Aðstandendur. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, lang- afi og langalangafi, JÓN JÓSTEINSSON, síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu Eir, sem lést sunnudaginn 18. desember, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju fimmtu- daginn 29. desember kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Karen Jónsdóttir, Tómas J. Brandsson, Sveinn Jónsson, Sólmundur Jónsson, Ingigerður Arnardóttir, Guðni Jónsson, Dagný Ragnarsdóttir, Drífa Jónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir hlýhug við andlát og útför KLÖRU KLÆNGSDÓTTUR kennara. Margrét Ólafsdóttir, starfsfólk Hlaðhamra og Vorboðarnir gerðu ævikvöld frænku okkar ánægjulegt og innihaldsríkt. Gunnar Klængur og Móeiður, Rannveig og Haukur, Margrét og Steingrímur, Jón Gunnar, Runólfur og Guðný, Urður, Theódór, Katla, Klængur, Hrafn, Úlfur, Illugi, Ingibjörg, Ragnheiður og Kría. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og sambýlismaður, KRISTJÁN SIGFÚSSON, Hálsvegi 5, Þórshöfn, sem lést á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn miðvikudaginn 21. desember, verður jarð- sunginn frá Þórshafnarkirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Helena Kristjánsdóttir, Sigurður Þórðarson, Sigfús Kristjánsson, Lilja Ólafsdóttir, Natalia Kravtchouk og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.