Morgunblaðið - 27.12.2011, Side 25

Morgunblaðið - 27.12.2011, Side 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011 böndin og var ættarhöfðingi og sameiningartákn Ásgarðs-familí- unnar en það er samheldinn hópur sem syrgir hana nú sárt. Sextán frænkur og systkinadætur Did- dömmu hittast á hverju ári og verja einni helgi saman við veislu- höld, dans og gleði og þær systur Diddamma, Jóna og mamma komu gjarnan til að heilsa upp á hópinn. Þá talaði hún oft um hversu dýrmæt þessi vinátta okk- ar væri og að við mættum aldrei glutra henni niður. Nú er lokið farsælu lífshlaupi Diddömmu, krabbamein lagði hana að velli eftir langa baráttu en minning hennar lifir í hjörtum allra sem kynntust henni. Við leið- arlok vil ég þakka fyrir allt, þá um- hyggju sem hún alltaf sýndi mér, traust og vináttu, heilræði og hús- ráð. Mér kemur í hug ljóð sem Böðvar Guðmundsson orti við fráfall Hildigunnar frænku úr sama sjúkdómi 1987 og á vel við nú eins og þá: Leiðarvísan Enginn þarf að spyrja hvar gröf þín er því hún er þar sem grasið er grænast. Þar er vetrarsnjórinn hvítastur himinninn heiðastur og þar syngur vorfuglinn skærast. Nei, enginn þarf að spyrja hvar gröf þín er. Hún er þar sem tár okkar þorna og orð okkar þagna. Ég votta Adda, börnum þeirra hjóna og fjölskyldum þeirra, frændgarði og afkomendum öll- um einlæga samúð. Steinunn Inga Óttarsdóttir. Elskuleg mágkona og æsku- vinkona er farin frá okkur eftir langa baráttu við krabbamein. Svo sannarlega var erfitt að sjá og skynja nokkurn bilbug á Diddu en hún var þó bjartsýn til síðustu mánaða og bar með sér reisn og yfirvegun sem var henn- ar guðsgjöf. Mig langar að þakka mágkonu minni fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, fyrst sem stelpuhnokkar á sportsokkum og stuttpilsum, síðan unglingsárin þegar við brölluðum ýmislegt, frjálsar sem fuglinn. Svo komu skólaárin og vinnan á sumrin, við nutum alls þess sem lítil þorp úti á landi hafa upp á að bjóða, eins og til dæmis sveitaböll á Bakka- firði og í Ásbyrgi, og ungar bund- umst við okkar lífsförunautum og eignuðumst börn og buru og urð- um fullorðnar. Didda var algjör fyrirmyndar- húsmóðir, eiginkona og móðir; hjá henni var allt á sínum stað, aldrei drasl, aldrei gat á sokki, alltaf til kæfa og kleinur, og svo saumaði hún kjóla og prjónaði peysur á dæturnar fjórar, sem fæddust hver af annarri, og aldrei högguðust slaufurnar í hárinu á þeim. Löngu síðar, þegar prins- inn fæddist, reis sólin fyrir alvöru og Didda hafði tíma til að njóta þess að vera með lítið barn, stelp- urnar orðnar stálpaðar og orðnar þátttakendur með þeim Adda í að gera þessum gleðigjafa, „elsk- unni hennar mömmu sinnar“, til góða. Það var fallegt að fylgjast með því. Það var líka fallegt að fylgjast með Diddu og Adda síðustu árin, hvernig þau héldu utan um hóp- inn sinn með stolti og gleði; líka heimilið þeirra, Ingimarsstaði, sem öll ættin ber taugar til í minningu afa Ingimars og ömmu Oddnýjar. Enginn hefði getað gert það betur en Didda og Addi gerðu. Fram undan eru erfiðir tímar fyrir Adda bróður minn og megi góður Guð styrkja hann og styðja og börnin hans og barnabörn, þennan samheldna og sterka hóp sem stendur svo vel vörð um pabba sinn. Hvíl í friði, elsku mágkona og vinkona. Guðný Helgadóttir (Dunna). Það er komið að kveðjustund- inni hennar Lóu sem lifði langa gifturíka ævi en kvaddi eftir stutt en snörp veikindi. Það voru forréttindi að þekkja hana og njóta alls þess góða sem hún gaf með kærleika og umhyggju. Grímur tengdafaðir minn og Lóa urðu nánir vinir en bæði höfðu þau misst maka sína, bjuggu í sama húsinu, sama stigaganginum og á sama stiga- pallinum í nærfellt þrjátíu ár. Ólafía Guðmundsdóttir ✝ Ólafía Guð-mundsdóttir fæddist á Ket- ilvöllum í Laug- ardal 29. ágúst 1921. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. desember 2011. Útför Ólafíu fór fram frá Grens- áskirkju 20. des. 2011. Samband þeirra var náið og ein- kenndist af virð- ingu og kærleika. Grímur lést haustið 2002. Um hana Lóu eigum við góðar og kærar minningar sem við í dag þökk- um fyrir. Viðmót hennar einkenndist af glaðværð og já- kvæðni og hún hafði einstakt lag á að draga fram það bjarta og góða úr tilveru sinni og af- komendanna sem hún var svo stolt af og fylgdist ætíð náið með. Lóa var sannkallaður ljós- beri sem fékk samferðamennina til að líta bjartar fram á veginn en þeir hefðu ella gert. Við Anna Dísa og fjölskylda vottum hennar nánustu okkar dýpstu samúð vitandi að minn- ingin um góða konu lifir. Sveinn Ingi Lýðsson. Elskulegur afi okkar er fallinn frá. Ekki hefðum við trúað því þegar hann fór frá Grímsey í ágúst til læknis að hann ætti ekki eftir að koma hingað aftur á lífi. Veikindi hans drógu úr honum líkamlegan styrk, en afi hélt and- legri heilsu fram á síðustu stundu og var staðráðinn í að koma heim í eyjuna sína aftur í vor. Við systkinin vorum svo hepp- in að alast upp í Grímsey aðeins nokkrum húsum frá afa og ömmu í Garði og áttum hjá þeim ótal ómetanlegar stundir. Þær minn- ingar ylja okkur nú þegar við höf- um kvatt afa. Minningar um hlýja rólegheitamanninn sem alltaf stóð eins og klettur upp úr hafinu líkt og eyjan okkar góða sem hann elskaði og dáði. Stóru, hlýju hendurnar hans afa sem struku hendurnar okkar þegar við komum í heimsókn og áttu jafnauðvelt með að munda heykvísl og þæfa agnarsmáa ull- arsokka fyrir ömmu. Vangarnir hans voru alltaf mjúkir og aldrei munum við eftir afa órökuðum hvort sem hann var að koma úr fjárhúsum eða af Kiwanisfundi. Greiðuna hafði hann líka ætíð í vasanum og var alltaf vel greidd- ur. Þetta einstaka snyrtimenni hafði það eitt sinn að orði við þrí- bbana þegar þeir voru að moka undan með honum að þeir væru miklir dugnaðarforkar, en ótta- legir sóðar við verkin! Afi var ótrúlega nákvæmur og skipu- lagður og sýndi ótrúlega þolin- mæði við að útskýra fyrir okkur nauðsyn þess að fara vel með hlutina sína, vita hvar maður lagði þá frá sér og ganga vel um. Ef amma sendi okkur með miða í búðina þá sá afi sjálfur um að setja þá í vasa okkar og renna upp svo við týndum þeim ekki – og ekki að ástæðulausu, hann þekkti sitt heimafólk. Verkin vildi hann vinna skipulega og snyrtilega og oft heyrðum við hann segja „Didda mín og brói minn, gerðu þetta nú heldur Þorlákur Sigurðsson ✝ Þorlákur Sig-urðsson fædd- ist í Grímsey 5. jan- úar 1932. Hann lést á lungnadeild Borgarspítalans 11. desember 2011. Þorlákur var jarðsunginn frá Miðgarðakirkju í Grímsey 19. desem- ber 2011. svona“ þegar hann var að kenna okkur rétt handtök. Ekki er hægt að rifja upp minningar um afa án þess að sjá hann fyrir sér á Ursusinum sínum í heyskapnum eða við önnur verk. Sama hve mikið var að gera í sláturtíð eða heyskap var alltaf gott kaffi hjá afa og ömmu. Ann- aðhvort var farið niður í Garð þar sem amma fyllti borðið af bakk- elsi eða þau komu með nesti og þá var annaðhvort sest niður á steinana við súrheysgryfjuna eða inni í geymslu til að borða og spjalla. Ósjaldan skar afi síld og magál ofan í lystuga munna uppi í geymslu og ekki var verra að fá hjá honum harðfisk beint af mið- stöðinni. Þegar við hugsum heim í Garð kemur upp mynd af afa að hlusta á fréttir í eldhúsinu og ömmu að fylla borðið af heimatilbúnum kræsingum. Minningar um ein- stakan afa lifa með okkur áfram þótt hann hafi kvatt. Elsku afi, þú ert eflaust farinn að skera síld og magál ofan í Konna bróður okkar núna á góð- um stað sem við hittum ykkur á síðar. Bless þangað til elsku afi okk- ar, Hulda Signý, Svafar, Bjarni og Konráð. Nú er Þorlákur vinur minn í Grímsey fallinn frá eftir erfið veikindi. Ég átti því láni að fagna að halda til hjá þeim elskulegu hjónum, nokkur vor, þegar ég var í Grímsey við sundkennslu. Síðan hefur sá vinskapur haldist. Við Hulda erum báðar haldnar sömu áráttu, en það er berjat- ínsla, og höfum við átt þar marg- ar ánægjustundir. Ég hefi farið nokkrum sinnum út í Grímsey, með skólasystkini mín úr ýmsum skólum. Alltaf beið okkar hlaðið veisluborð hjá þeim hjónum og Þorlákur ætíð boðinn og búinn að keyra liðið út og suður, sýna og segja frá. Og það er ekki allt, margar hafa matargjafirnar komið, bjargfuglsegg, hvalur og fiskur. Elsku Hulda og allir ykkar af- komendur, hjartans þakkir fyrir allt. Guð gefi ykkur styrk í sorg- inni. Rósa. Vilborg Guðsteinsdóttir ✝ Vilborg Guð-steinsdóttir fæddist í Reykjavík 10. ágúst 1927. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspítala v. Hringbraut 7. des- ember síðastliðinn. Útför Vilborgar fór fram frá Há- teigskirkju í Reykjavík þriðju- daginn 20. desem- ber 2011. Elsku Villa. Mig langar að minnast þín með nokkrum orðum og þakka þér fyrir alla þá visku og leiðögn sem þú veittir mér á mínum uppvaxt- arárum. Efst í huga mér núna er teppið sem þú prjónaðir fyrir Ársæl Pál þegar hann fæddist, þú kenndir mér að vefja hann þétt með teppinu og þá sofnaði hann umvafinn ör- yggi, ást og hlýju í vöggunni sem þú lánaðir mér, með sæng- urföt sem þú saumaðir út – sem eru hreint listaverk, því allt sem þú gerðir varð að listaverki og mun minning þín fylgja þess- um munum sem ég varðveiti vel. Þú varst til jafns á við mína foreldra í uppeldi okkar systk- ina, því þessi tvö heimili voru sem eitt. Já þú lékst stórt hlut- verk í mínum uppvexti. Elsku Villa, ég þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og syni mína. Hvíl í friði. Guðrún Ársælsdóttir og synir. Þegar ég minnist bróður míns hans Jóns Freys kemur jákvæðni hans mér fyrst í hug. Og vilja- styrkur. Ég hef ekki hitt nokkurn sem tók áskorunum lífsins á jafnjákvæðan máta – og margar af þeim áskorunum sem Jón Freyr mætti voru ekki þær ein- földustu. Hann hafði líka ótrúleg- an viljastyrk – ef hann hafði sett sér eitthvað fyrir gátum við hin í fjölskyldunni alveg eins gleymt því að reyna að breyta þeim áætl- unum! Ákveðni erfðum við systkinin Jón Freyr Finnsson ✝ Jón FreyrFinnsson fædd- ist í Stykkishólmi 14. júní 1976. Hann lést á deild B-2 á Landspítalanum í Fossvogi hinn 13. desember 2011. Útför Jóns Freys fór fram frá Sel- tjarnarneskirkju mánudaginn 19. desember 2011. öllsömul og átti Jón Freyr stundum erf- itt með litlu systur sem ekki alltaf vildi hlýða. Hann elskaði að sigla um á fjöl- skyldubátnum Hörninni þegar við bjuggum í Stykkis- hólmi og ég fékk stundum að koma með, auðvitað með því skilyrði að fara eftir skipunum skipstjórans. Ein bátsferðin endaði þó skjótt fyrir mig og vinkonu mína sem hafði fengið að koma með. Við stelp- urnar áttum eitthvað erfitt með að sitja kyrrar eins og skipstjór- inn hafði beðið okkur um og var okkur því skilað upp í næstu fjöru. Við þurftum að klöngrast upp úr fjörunni og labba heim í hinn enda bæjarins, grautfúlar yfir því að þurfa að horfast í augu við afleiðingar óþekktarinnar. Seinna meir höfum við systkinin rökrætt um allt milli himins og jarðar og áttum við bæði erfitt með að eiga ekki síðasta orðið. Best var þó að snúa rökræðum um hver hefði rétt fyrir sér upp í glens, þá gátum við hlegið að öllu saman. Tvo hluti gátum við þó aldrei orðið sammála um: pólitík og ágæti fisks. Þegar Jón Freyr fermdist vildi hann bara hafa uppáhaldsmatinn sinn á boðstól- um: fisk. Ég trúði ekki alveg á áform hans og sagði víst eitthvað um að „það er ekki hægt að halda svona veislu með bara fisk á boð- stólum“! Mér er sagt að ég hafi verið hálffúl allan daginn í þess- ari fiskiveislu, en Jón Freyr hafði sjaldan fengið betri veitingar í nokkurri veislu. Pólitíkina vorum við sammála um að vera ósammála um. Síðustu 18 árin hef ég horft á bróður minn heyja margar bar- áttur í veikindum sínum, sem hann alltaf hefur unnið – og var það því sárt og erfitt að sætta sig við það hér á haustmánuðum að nú væru kraftarnir uppurnir og komið að kveðjustund hér í byrj- un mánaðarins. Minningarnar um jákvæðan og glaðan stóra bróður held ég fast í og reyni mitt besta að lifa að hans fordæmi og horfa á jákvæðu hliðarnar á áskorunum sem mæta mér í líf- inu. Freyja Finnsdóttir. Fallinn er í valinn fyrrver- andi félagi okkar í Kiwanis- klúbbnum Setbergi, skipstjórinn Haukur Dan Þórhallsson. Hauk- ur gekk til liðs við okkur á árinu 1989 og var virkur félagi til árs- ins 1994 eða í fimm til sex ár. Haukur var okkur félögunum minnisstæður og þótti sjónar- sviptir að því þegar hann hætti störfum með klúbbnum. Hann var þá farinn að eldast nokkuð og ef til vill orðinn þreyttur á því stelli sem Kiwanismenn þurfa að stunda í tilraunum sín- um til þess að bæta heiminn. Flestir þeirra sem enn starfa með Kiwanisklúbbnum Setbergi voru samtímamenn Hauks þar. Oft urðu fagnaðarfundir með Hauki og þessum fyrrverandi félögum hans. Hann var oft á röltinu á Garðatorgi, þangað sem margir áttu erindi, og þannig hittust þessir gömlu fé- lagar alltaf af og til. Þar urðu fagnaðarfundir og Haukur heilsaði ávallt með breiðu brosi og spurði frétta af klúbbstarf- inu. Nú þegar skipstjórinn, þessi gamli félagi okkar, hefir Haukur Dan Þórhallsson ✝ Haukur DanÞórhallsson fæddist á Höfn í Hornafirði 29. október 1923. Hann lést á Landspít- alanum Fossvogi 10. desember 2011. Útför Hauks fór fram frá Vídal- ínskirkju 21. des- ember 2011. tekið sína síðustu höfn, þá þökkum við félagar hans samstarfið og kunningsskapinn og vottum frú Önnu og fjölskyldu þeirra okkar bestu samúð. F.h. Setbergs- félaga, Björgvin Kjartansson. Haukur mætti mér í dyrun- um, glettinn, glaðbeittur með stríðnisglampa í augum og sagði: „Ertu að koma að ná í stelpuna?“ Ég hafði reyndar um nokkurt skeið vanið komur mín- ar í Hvassaleitið en hitti heim- ilisföðurinn þarna í fyrsta skipti. Þetta voru mín fyrstu kynni af tengdaföður mínum, Hauki Dan Þórhallssyni skipstjóra. Lífshlaup Hauks mótaðist fyrst og fremst af starfinu. Hann byrjaði ungur til sjós á Hornafirði, leiðin lá síðan til Eimskipafélagins en þar starf- aði hann í fjörutíu og fjögur ár. Fyrst sem háseti og síðan stýri- maður og skipstjóri. Haukur var farsæll í sínu starfi og hans ljúfa skapgerð gerði honum auðvelt að umgangast sam- starfsfólk sitt. Sem skipstjóri var hann ávallt vel liðinn og stjórnaði af festu og öryggis- málin voru ávallt í fyrirrúmi. Skip er ekki eingöngu vinnu- staður, það er einnig heimili þeirra sem þar starfa og dvelja fjarri vinum og ættingjum lang- tímum saman. Það hvílir því mikil ábyrgð á starfi skipstjór- ans sem ber ábyrgð á að skila skipinu, áhöfninni og farminum heilu í höfn. Haukur upplifði í sínu starfi allar þær framfarir og tæknibreytingar sem urðu á vöruflutningum, frá því að hann byrjaði sem háseti á Fjallfossi þegar öllu var handraðað í lest, sem tók stundum marga daga, til stóru gámaflutningaskipanna sem eru lestuð og losuð á nokkrum klukkutímum. Það var alltaf fjör í kringum Hauk, hann var hrókur alls fagnaðar þegar fjölskyldan kom saman og hafði gaman af að ærslast við barnabörnin. Ekki er hægt að minnast Hauks nema Hornafjörður komi þar við sögu. Haukur fæddist á Hornafirði og ólst þar upp. Það fór ekki fram hjá nokkrum manni að Hornafjörður var hans sveit, þvílík voru lýsingarorðin og virkuðu því aðrar sveitir sem lítil tún og aðrir firðir sem litlir pollar og stóðust ekki á nokk- urn hátt samanburð við sveitina hans, Hornafjörð. Hann átti þaðan góðar minningar frá æsku- og unglingsárum. Á 88 ára afmælinu hans í október síðastliðnum var heilsu hans farið að hraka, samt tók hann á móti mér teinréttur, glaðbeittur með sama stríðnis- glampann í augunum og þegar ég hitti hann fyrst. Haukur hefur leyst landfest- ar í síðasta sinn og siglir skipu sínu um ný óþekkt höf. Ég kveð tengdaföður minn, Hauk Dan Þórhallsson, með söknuði og af virðingu. Anna mín, megi hinn hæsti höfuðsmiður himins og jarðar veita þér styrk í sorginni. Sigurður Skúli Bárðarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.