Morgunblaðið - 27.12.2011, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.12.2011, Blaðsíða 28
28 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÉG VEIT EKKI HVERJU ÉG Á AÐ TRÚA KÆRI „SPURÐU HUND”... „HUNDURINN MINN STARIR STUNDUM KLUKKUTÍMUM SAMAN Á SVARTAN BLETTA Á VEGGNUM SEM HANN HELDUR AÐ SÉ FLUGA. ER HANN EITTHVAÐ VERR GEFINN EN AÐRIR HUNDAR?” ODDI? ODDI? ÉG HEF ALDREI VERIÐ MJÖG HRIFINN AF GRILLVEISLUM HVERN LANGAR Í HAMBORGARA OG HVER VILL PYLSU? EFTIR OLÍUSLYSIÐ UM DAGINN ÞÁ VIRÐAST ALLAR STELPUR VERA ORÐNAR UPPTEKNAR AF DÝRUM Í ÚTRÝMINGARHÆTTU VISSIRÐU AÐ ÞAÐ ERU AÐEINS FIMM HUNDAR EFTIR Í HEIMINUM SEM ERU AF MÍNUM STOFNI? EKKI SNERTA MIG ÓGEÐIÐ ÞITT! OG NÚNA ERU BARA FJÓRIR EFTIR ÞÚ ERT AÐ REYNA AÐ DREPA MIG! EN ÞÚ GETUR EKKI KRAMIÐ... ...ÞAÐ SEM ÞÚ SÉRÐ EKKI ÉG SÉ EKKERT! PABBI, HVAÐ ER AÐ MÖMMU? MAMMA ÞÍN GLEYMDI AÐ SKIPTA UM SÍU Á ÞVOTTAVÉLINNI OG ALLT FÓR Á FLOT. ÉG VARÐ REIÐUR OG ÖSKRAÐI Á HANA HÚN FÓR INN Í HERBERGI OG LOKAÐI Á EFTIR SÉR, EN HÚN KEMUR BRÁÐUM ÚT HÚN ER AÐ HENDA FÖTUNUM ÞÍNUM ÚT UM GLUGGANN HVAÐ!?! Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, fé- lagsvist kl. 14. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8. Félagsheimilið Gjábakki | Línudans kl. 18 og samkvæmisdans kl. 19. Félagsheimilið Goðaland | Handa- vinnustofan opin, jóga kl. 10.50, hádeg- isverður og kaffi á könnunni. Félagsmiðstöðin Vesturgötu 7 | Setu- stofa, fótaaðgerðir og hárgreiðsla kl. 9, handavinna kl. 9.15, spurt/spjallað og leshópur kl. 13. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Heitt á könnunni í Jónshúsi kl. 9:30-16. Innritun í íþróttir og námskeið 3. til 6. janúar. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Séra Hjálmar Jónsson dóm-kirkjuprestur yrkir á jólum: Komdu með jólin þín, Kristur til mín kveiktu það ljós er alltaf skín. Gefðu mér náð til að gleðjast með þér, gestur minn vertu og næstur mér. Láttu mig heyra þitt helga mál hreinleika færðu minni sál. Hugsjón um frið er fædd í kvöld fyrirheit rætast á nýrri öld. Réttlæti þitt mun þá ríkja eitt, rangindin hverfa og allt mun breytt. Mátturinn þinn fær myndað trú og milli himins og jarðar brú. Heilagi Guð, ekki fara mér frá, fáðu mér von til að lifa á. Lýsi hún dag sem dimma nótt, dafni og vaxi, stillt og hljótt. Vinur og bróðir, þitt bænarmál blessi með jólum hverja sál. Pétur Stefánsson kastar fram vísu af sama tilefni: Þótt sumra herðist sultaról og sár sé margra fórnin, gefi öllum gleðileg jól, Guð og ríkisstjórnin. Ólafur Stefánsson sendir líka jóla- kveðju í bundnu máli: Árstíðirnar áfram steðja, eftir sumar kemur haust. Jólin heilsa, jólin kveðja, en Jóhanna situr endalaust. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af ljósinu sem alltaf skín Blóðugt myndband og fleira Ég er hneyksluð á frétt sem var í Frétta- blaðinu um hljómsveitina Diktu, sem er ein sú vinsælasta hjá unga fólkinu, þar sem hljómsveitin segist vera að gera ansi blóðugt myndband. Mér finnst nóg af ofbeldi í þjóð- félaginu. Nafngift á fjáröfluninni Geðveik jól finnst mér óviðeigandi. Smá jákvætt í lokin, ég vil hrósa góðri þjónustu hjá Rafvörumark- aðnum í Fellsmúla og Rafkaupum í Ármúla, þar eru kurteisir og þjónustulundaðir menn við afgreiðslu. Kona í austurbænum. Velvakandi Ást er… … þegar hann er hrókur þíns fagnaðar. - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is –– Meira fyrir lesendur - nýr auglýsingamiðill Bridsfélag Kópavogs Spilamennskan fyrir jól endaði á tveggja kvölda jólatvímenningi. Spilað var á níu borðum og gilti samanlagður prósentuárangur til verðlauna. Lokastaða efstu para varð þessi: Úlfar Friðrikss. – Ingvaldur Gústafss. 113,4 Guðm. Pálss. – Jón Páll Sigurjónss. 112,8 Birna Stefnisd. – Aðalst. Steinþórss. 108,5 Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 108,4 Gísli Tryggvas. – Leifur Kristjánsson 106,8 Flest bronsstig fram að jólum hlutu þeir Ingvaldur Gústafsson, 189, og Úlfar Örn Friðriksson, 170. Spilamennska hefst aftur á nýju ári fimmtudaginn 5. janúar kl. 19. Öll úr- slit og dagskrá fram að vori má sjá á bridge.is/bk. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.