Monitor - 15.12.2011, Side 16
Monitor FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2011
stíllinn
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum í fimm orðum?
Þægilegur, ódýr, einfaldur, afslappaður og fjölbreytilegur.
Áttu þér fyrirmynd hvað varðar tísku og fataval?
Nei, get ekki sagt það. En ég sé að sjálfsögðu oft
myndir af vel klæddum dömum og hef gaman af.
Gillian Zinser finnst mér til dæmis alltaf mjög
töff, stíllinn hennar er mjög áreynslulaus eins
og hún hafi bara hoppað í eitthvað og drifið sig
út.
Hvar verslar þú helst fötin þín?
Ég versla mikið notuð föt í búðum eins og Hjálpræð-
ishernum og Rauða krossinum eða stundum beint af
fyrrverandi eigendum. Versla líka annað slagið á Netinu,
þá er ebay í miklu uppáhaldi.
Fyrir hvernig tilefni finnst þér skemmtilegast að klæða
þig upp?
Mér finnst alltaf gaman að klæða mig upp, það er svo
skemmtilegt að vera fínn. Tala nú ekki um ef maður er
búinn að vera með ljótuna í vinnunni allan daginn. Akk-
úrat núna er ég spennt fyrir því að prófalestur klárist og
ég geti skipt út náttfötunum fyrir kjól.
Hvaða snyrtivörum gætir þú ekki verið án?
Svona yfir háveturinn er sólarpúður og maskari eitthvað
sem ég verð að nota dagsdaglega annars heldur fólk að
ég sé veik, þar sem ég stunda ekki ljósabekki. Varalitir
eru svo skemmtilegir þegar maður vill vera aðeins fínni.
Ef þú værir dýr, hvaða dýr værir þú?
Klárlega einhverskonar kattardýr. Kettir eru svo ómót-
stæðilega glæsilegir og skemmtilegir. Ætli heimilisköttur
yrði ekki fyrir valinu, þá þyrfti ég ekki að veiða mér sjálf
í matinn.
lh
Sunna Rut Þórisdóttir er 24 ára mannfræðinemi við
Háskóla Íslands. Sunna vakti athygli Stílsins fyrir
flottan og töffaralegan fatastíl og fengum við
að kíkja í fataskápinn hennar þessa vikuna.
fataskápurinn
NÝJASTA
Fíni „blúndu”-kjóllinn
og Ralph Lauren-
jakkinn sem ég
keypti á ebay
um daginn.
Keypti þetta
í lítilli vintage-
verslun sem er alltaf
bara með nokkra hluti
á uppboði í einu, er
alltaf að líta þar inn
eftir einhverju nýju.
FLOTTASTA
Það fer nú alveg eft-
ir skapi og öðru hvað
mér finnst flottast
hverju sinni. En
þetta er allavegana
uppáhaldsspariflíkin
mín þessa dagana.
Ég keypti þennan
kjól fyrir klink í
Hjálpræðishernum úti
á Granda og ég gæti
ekki verið ánægðari
með hann.
DÝRASTA
Ég er voða léleg
í að kaupa mér
dýr föt. En ég keypti
þessar buxur í 17
ekki fyrir svo löngu.
Það er búð sem
ég versla nánast
aldrei í en fannst
þessar buxur góð
viðbót í fataskápinn,
sérstaklega þar sem ég
á varla buxur.
ELSTA
Skyrta sem að
ég fékk frá góðri
vinkonu í jólagjöf fyrir
allnokkrum árum. Hún
var keypt í Spúútnik á
sínum tíma. Ég rekst
öðru hvoru á hana í
fataskápnum og get
alltaf notað hana.
16
Hlakkar til að
skipta náttfötunum
út fyrir kjól
Myndir/Sigurgeir S.
BESTA
Maðurinn minn
færði mér þennan
Monki-jakka frá
Svíalandi í haust, hann
er í miklu uppáhaldi. Ég
þrjóskast við að ganga
í honum í kuldanum, mér
finnst liturinn svo skemmti-
legur. Ég er að reyna að
nota meira liti þar sem ég á
í langvarandi ástarsambandi
við svartan.
ÞÆGILEGASTA
Samfestingur úr American
Apparel sem móðir mín
og systir keyptu fyrir
mig í Ameríkunni. Ég er
vandræðalega ástfangin
af honum þessa dagana,
svo þægilegt að smeygja
sér í hvað sem er utan
yfir hann. Getur reyndar
verið smá vesen að fara á
klósettið.