Morgunblaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2012
FRÉTTASKÝRING
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Frá því að seinni ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra tók
við völdum eftir síðustu þingkosn-
ingar, vorið 2009, hafa breytingar á
ráðherraskipan verið nokkuð tíðar.
Þá skipuðu 12 ráðherrar ríkisstjórn-
ina, og var þeim fjölgað um tvo frá
þeirri minnihlutastjórn Jóhönnu sem
Samfylkingin og Vinstri grænir
mynduðu 1. febrúar 2009 og til þing-
kosninga í lok apríl sama ár.
Alls hafa 17 manns gegnt ráð-
herraembætti í tíð Jóhönnu, þar af
níu konur. Átta hafa komið úr Sam-
fylkingunni, sjö frá Vinstri grænum
en tveir hafa verið utan þings, þau
Ragna Árnadóttir og Gylfi Magn-
ússon sem komu inn í fyrri ríkisstjórn
Jóhönnu. Þau héldu stólum sínum í
ríkisstjórn sem mynduð var 10. maí
eftir þingkosningarnar í lok apríl;
Ragna sem dóms- og kirkju-
málaráðherra og Gylfi sem við-
skiptaráðherra. Tveir ráðherrar fóru
þá út; þær Kolbrún Halldórsdóttir og
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
Svandís Svavarsdóttir kom inn fyrir
Kolbrúnu í umhverfisráðuneytinu og
Árni Páll Árnason kom inn fyrir Ástu
sem félags- og tryggingamálaráð-
herra. Við bættust þau Katrín Júl-
íusdóttir, sem varð iðnaðarráðherra,
og Jón Bjarnason, sem varð sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra.
Ögmundur út og inn aftur
Breytingar á ríkisstjórninni eru
annars tíundaðar nánar á myndinni
til hliðar og verða ekki allar tvíteknar
hér. Næst urðu breytingar 1. október
2009, þegar Ögmundur sagði af sér
sem heilbrigðisráðherra vegna
óánægju með stefnu stjórnarinnar í
viðræðum við Breta og Hollendinga
um lausn Icesave-deilunnar. Tæpu
ári síðar, eða 2. september 2010, urðu
aftur hrókeringar þegar Ögmundur
kom inn á ný og Guðbjartur varð ráð-
herra. Út fóru þau Gylfi, Ragna,
Kristján L. Möller og Álfheiður Inga-
dóttir, sem ekki náði ári í ráðherra-
stóli. Þriðju ráðherrahrókeringar á
þessu kjörtímabili hjá ríkisstjórn Jó-
hönnu Sigurðardóttur urðu núna um
áramótin, eins og öllum er í fersku
minni, þegar Árni Páll og Jón Bjarna-
son hurfu úr embætti á gamlársdag
og Oddný G. Harðardóttir varð nýr
ráðherra. Við þetta fækkaði ráðherr-
um úr tíu í níu.
Í miklum ólgusjó innbyrðis
„Almennt séð
er það óheppilegt
að ráðherraskipti
séu svona tíð,“
segir Grétar Þór
Eyþórsson, pró-
fessor í stjórn-
málafræði við Há-
skólann á
Akureyri, um þær
breytingar sem
orðið hafa á ráð-
herraskipan í ríkisstjórnum Jóhönnu
Sigurðardóttur.
„Þetta eru miklir óróatímar í ís-
lenskum stjórnmálum. Við höfum
orðið vitni að hrókeringum og afsögn-
um, þar sem mikið hefur gengið á, og
þetta er líklega bein afleiðing þess
hve ríkisstjórnin hefur verið í miklum
ólgusjó innbyrðis. Menn hafa sagt af
sér ráðherradómi vegna innbyrðis
átaka og hrókeringar hafa átt sér
stað til að lægja öldur innan stjórn-
arflokkanna, ekki síst meðal Vinstri
grænna,“ segir Grétar og bendir á að
undanfarin þrjú ár hafi samanlagt
næstum tvöfalt fleiri setið í stóli ráð-
herra en eru þar í dag. Átta ein-
staklingar geta titlað sig „fyrrverandi
ráðherrar“ þegar farin eru tæp þrjú
ár aftur í tímann, þar af sitja fimm
þeirra á þingi í dag.
Grétar Þór segir að fara þurfi aftur
um rúm 20 ár til að finna álíka tíðar
ráðherrabreytingar, en þær hafi ver-
ið nokkrar á árunum 1988-1991. Síð-
an hafi tekið við meiri stöðugleiki
hvað þetta varðar fram að hruni.
„Það er ekki gott fyrir stjórn-
sýsluna að verið sé að skipta oft um
ráðherra en fyrst og fremst orsakast
þetta af stöðu ríkisstjórnarinnar og
tilraunum til að lægja öldur þar
innanborðs. Nýjar áherslur hafa vilj-
að koma með nýjum ráðherrum og
ráðherravald hefur verið mikið hér á
landi, í samanburði við nágrannalönd-
in. Við höfum þannig mörg dæmi þess
að ráðherrar hafa komið með um-
deildar ákvarðanir og skipanir í emb-
ætti á síðasta starfsdegi sínum,“ segir
Grétar.
Hagræðing hefur einnig verið
nefnd ein helsta ástæða sameiningar
ráðuneyta en Grétar Þór segir of
snemmt að dæma um hvort sparn-
aður skili sér við samruna ráðuneyta
og verkefna. Sparnaður geti verið
lengi að skila sér, eins og gerst hafi
með samruna sveitarfélaga. Bendir
hann á að þegar ráðuneyti verði stór
með marga málaflokka þá geti orðið
erfitt fyrir viðkomandi ráðherra að
hafa góða yfirsýn. Menn þurfi að
setja sig inn í hin ólíkustu mál, og á
sama tíma og þeir gegni einnig störf-
um þingmanna. Þá sé hætt við að
helstu embættismenn færist nær því
að geta talist ígildi ráðherra.
„Með þessu er verið að færa völdin
til stjórnsýslunnar og ég er ekki viss
um að það sé það sem verið var að
kalla eftir, frekar að veita hafi átt
þinginu meiri völd,“ segir Grétar Þór
ennfremur.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær er hrókeringum í ríkisstjórn Jó-
hönnu ekki alveg lokið. Fyrir liggur
að Katrín Júlíusdóttir er á leið í fæð-
ingarorlof og hugmyndir uppi um að
nafna hennar Jakobsdóttir leysi hana
af tímabundið í iðnaðarráðuneytinu.
Nýtt atvinnuvegaráðuneyti gæti orð-
ið til á meðan Katrín Júl. er í orlofi og
óljóst er enn hver verður ráðherra í
því ráðuneyti og hvaða verkefni falla
undir það.
Þegar til urðu tvö ný ráðuneyti fyr-
ir ári; innanríkis- og velferðarráðu-
neyti, kom fram hjá stjórnvöldum að
sameiningin ætti að skila 300 milljóna
króna sparnaði á ári, án þess að segja
upp fólki, en hvort sú varð raunin á
eftir að koma í ljós þegar ríkisreikn-
ingur fyrir árið 2011 verður lagður
fram. Þá er ótalinn sá kostnaður sem
hlýst af ráðherrabreytingum, m.a.
vegna biðlauna ráðherra.
Tíð skipti í ráðherrastólum ríkis-
stjórna Samfylkingarinnar og VG
Sautján manns hafa gegnt embætti ráðherra frá 1. febrúar 2009 „Tíð ráðherraskipti óheppileg“
2. sept. 2010
Breytingar
Ríkisstjórnir Jóhönnu Sigurðardóttur frá 1. febrúar 2009
breytingar á ráðherraskipan til dagsins í dag
1. febrúar 2009
Minnihlutastjórn
mynduð eftir
afsögn ríkisstjórnar
Geirs H. Haarde
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætis-
ráðherra
Steingrímur J.
Sigfússon
fjármála-
ráðherra og
sjávarútvegs-
og landbúnaðar-
ráðherra
Össur Skarp-
héðinsson
utanríkis-
ráðherra og
iðnaðarráðherra
Kristján L.
Möller
samgöngu-
ráðherra
Ásta
Ragnheiður
Jóhannesdóttir
félags- og
tryggingamála-
ráðherra
Ögmundur
Jónasson
heilbrigðis-
ráðherra
Kolbrún
Halldórsdóttir
umhverfisráð-
herra og
samstarfsráðh.
Norðurlanda
Katrín
Jakobsdóttir
menntamála-
ráðherra
Gylfi
Magnússon
viðskipta-
ráðherra
Ragna
Árnadóttir
dóms og
kirkjumála-
ráðherra
Utan flokka Utan flokka
10. maí 2009
Breytingar við
myndun nýrrar
ríkisstjórnar
eftir þingkosningar
25. apríl
Jón Bjarnason
verður sjávar-
útvegs- og
landbúnaðar-
ráðherra
Árni Páll
Árnason
verður félags- og
tryggingamála-
ráðherra
Katrín
Júlíusdóttir
verður iðnaðar-
ráðherra
Ásta
Ragnheiður út Kolbrún út
Svandís
Svavarsdóttir
verður umhverfis-
ráðherra
1. október 2009
Breytingar
Ögmundur út
Kristján verður
samgöngu- og
sveitarstjórnar-
ráðherra
Katrín verður
mennta- og
menningar-
málaráðherra
Ragna verður
dómsmála- og
mannréttinda-
ráðherra
Gylfi verður
efnahags- og
viðskipta-
ráðherra
Álfheiður Inga-
dóttir verður
heilbrigðis-
ráðherra
Álfheiður út
Guðbjartur
Hannesson
verður félags- og
tryggingamála- og
heilbrigðisráðherra
Gylfi út
Árni Páll
Árnason
verður efnahags-
og viðskipta-
ráðherra
Ragna út
Ögmundur
Jónasson
verður dóms-
og mannrétt-
indamála- og
samgöngu-
og sveitarstj.-
ráðherra
Jón út
1. janúar 2011
Breytingar
Guðbjartur
verður velferðar-
ráðherra
Ögmundur
verður innan-
ríkisráðherra
Ríkisstjórnin í dag,
eftir breytingar
31. des. 2011
Árni Páll út
Oddný G.
Harðardóttir
verður fjármála-
ráðherra
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætis-
ráðherra
Kristján út
Steingrímur
J. Sigfússon
verður
efnahags- og
viðskipta- og
sjávarútvegs-
og landbúnað-
arráðherra
Ögmundur
Jónasson
innanríkis-
ráðherra
Katrín
Jakobsdóttir
mennta- og
menningar-
málaráðherra
Svandís
Svavarsdóttir
umhverfis-
ráðherra
Katrín
Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra
Guðbjartur
Hannesson
velferðar-
ráðherra
Össur Skarp-
héðinsson
utanríkis-
ráðherra
Grétar Þór
Eyþórsson