Morgunblaðið - 04.01.2012, Side 23

Morgunblaðið - 04.01.2012, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2012 ✝ Laufey Frið-riksdóttir fæddist í Bolung- arvík 5. apríl 1919. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 16. desember 2011. Laufey var einkadóttir hjónanna Karitasar Guðmundu Bergs- dóttur, f. 7.11. 1889, d. 29.9. 1977 og Friðriks Teitssonar, vél- smíðameistara, f. 8.9. 1891, d. 29.9. 1966. Laufey ólst upp í for- eldrahúsum í Bolungarvík. Hún flutti til Reykjavíkur ásamt for- eldrum sínum 1944 og bjuggu þau á Hringbraut 63 þar sem hún hélt heim- ili með þeim. Lauf- ey giftist ekki og var barnlaus. Hún vann meðal annars við saumaskap og aðra almenna vinnu þar til hún hætti störfum til að ann- ast aldraða for- eldra sína. Síðustu árin bjó Laufey á Hrafnistu í Reykjavík. Útför Laufeyjar fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 4. janúar 2012, og hefst athöfnin kl. 13. Í dag kveðjum við Laufeyju Friðriksdóttur sem andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 16. desem- ber síðastliðinn. Laufey hefur verið hluti af lífi okkar bræðra alla tíð. Móðir okk- ar og Laufey ólust upp í Bergsbæ í Bolungarvík og voru uppeldis- systur. Samband þeirra var mikið eftir að báðar fluttust til Reykja- víkur upp úr stríðsárunum og enn styrktust böndin eftir að foreldrar Laufeyjar féllu frá. Það var alltaf líf og fjör í kring- um Laufeyju. Hún fylgdist vel með og hafði skoðanir á því sem var að gerast í kringum hana. Hún var ekki sú persónugerð sem tran- aði sér fram en var hrókur alls fagnaðar með vinum sínum. Hún naut þess að sækja starf aldraðra í Nes sókn og fara í ferðalög með þeim. Laufey var mikil dama í sér. Hún var ávallt vel tilhöfð og klæddist fínum fötum. Hún var fyrir að fara á kaffihús þegar hún fór í bæinn og tók ekki annað í mál þegar aðrir voru með henni. Lauf- ey var höfðingi heim að sækja og tók vel á móti fólki. Laufey var ógift og barnlaus en var stoð og stytta foreldra sinna á meðan þau lifðu. Hún hjúkraði móður sinni af mikilli alúð og natni eftir lát föður síns, en móðir henn- ar hafði greinst með minnisglöp. Það var aðdáunarvert að fylgjast með þeim mæðgum fara allra sinna ferða með strætisvagni. Laufey lét ekkert aftra sér að fara þangað sem hún ætlaði sér. Eftir lát foreldra Laufeyjar kom inn í líf hennar Matthías Guð- mundsson sem leigði hjá henni herbergi. Með þeim tókst mikill vinskapur. Þau ferðuðust mikið saman og fóru m.a. ferðir til út- landa. Þau auðguðu líf hvort ann- ars. Bolungarvík var alltaf ofarlega í huga Laufeyjar enda hafði hún gott samband við ættingja og vini sem þar bjuggu. Hún spurði æv- inlega hvort við hefðum heyrt fréttir að vestan. Síðustu ár hefur Laufey búið á Hrafnistu í Reykjavík. Hún ákvað sjálf að flytjast þangað þegar hún fann fyrir óöryggi heima fyrir. Hún undi sér vel þar enda var hún innan um fólk sem henni líkaði vel. Síðustu árin hafa verið erfið því minnisglöp hafa hrjáð hana. Aðstandendur Laufeyjar vilja þakka starfsfólki á deild A-3 á Hrafnistu kærlega fyrir þeirra þátt í að gera líf hennar sem bæri- legast. Blessuð sé minning Laufeyjar Friðriksdóttur. Bergur, Helgi og Sig- urbjörn Benediktssynir. Í dag er komið að kveðjustund kærrar frænku og vinkonu, Lauf- eyjar Friðriksdóttur. Okkur langar að þakka þér fyr- ir þær fjölmörgu góðu stundir sem við höfum átt með þér í gegn- um tíðina. Það er ómetanlegt fyrir okkur og börnin okkar að hafa fengið að kynnast þér og þeim tíð- aranda sem einkenndi þig. Við verðum þér ævinlega þakklát fyrir að hafa skotið yfir okkur, fjögurra manna fjölskyldu, húsaskjóli í 5 mánuði árið 1977, þegar við flutt- um frá Ólafsvík í bæinn og íbúðin okkar rétt tilbúin undir tréverk. Einhvers staðar stendur að maður kynnist ekki manneskju fyrri en maður deilir með henni húsnæði. Þú reyndist okkur afskaplega vel og ekki man ég eftir að okkur hafi nokkurn tíma orðið sundurorða. Þú hafðir vakandi auga með okkur unga fólkinu, að við værum ekki að bruðla með rafmagnið í eldavélinni og passaðir upp á að þvottavélin væri ekki að mala hálf- tóm og lengi. Þú varst svo skemmtilega nýt- in. Meðan þú hafðir heilsu til gafstu öllum í fjölskyldunni jóla- pakka. Pappírinn, skrautböndin og merkisspjöldin yfirleitt endur- nýtt frá fyrri árum. Mikið þótti okkur vænt um þessa pakka. Þó þú ættir ekki börn sjálf hafðir þú góðan skilning á ærslum þeirra og látum, og dáðumst við sannarlega að umburðarlyndi þínu gagnvart þeim. Þú varst einn hlekkurinn í stór- fjölskyldunni, og þegar hún kom saman settir þú þinn svip á sam- komuna með skemmtilegum til- svörum. Það var alltaf notalegt að heim- sækja þig, og allt árið gat maður treysti því að fá heimabakaða hálf- mána, piparkökur og spesíur með kaffinu, svo maður tali nú ekki um afmælin þín, „veislu ársins“, þar var sko ekkert til sparað og séð til þess að allir færu saddir og sáttir frá borði. Gjafmildi var þér svo sannarlega í blóð borin þrátt fyrir nýtni og nægjusemi. Að leiðarlokum þökkum við þér af einlægni fyrir samfylgdina í þessu lífi, elsku Laufey. Við trúum því að nú sért þú komin í faðm þeirra fjölmörgu vina og vanda- manna sem á undan þér fóru. Allir sem þér unnu þakkir gjalda. Ástúð þinni handan blárra tjalda opið standi ódauðleikans svið. Andinn mikli gefi þér sinn frið. (Jóhannes úr Kötlum) Hvíl þú í friði. Þuríður og Jóhannes. Þegar vinur okkar og veiði- félagi, Matthías Guðmundsson, tók á leigu herbergi að Hring- braut 63 hjá Laufey Friðriksdótt- ur upp úr 1980 fékk hann ekki bara leigusala heldur góðan vin og ferðafélaga og við félagarnir eign- uðumst vin í þessari góðu konu sem Laufey var. Sú vinátta entist vel og þegar Matthías féll frá fyrir nokkrum árum héldum við áfram að líta við hjá henni bæði á Hring- brautinni og Hrafnistu þar sem hún dvaldi síðustu æviárin. Hún spurði frétta af fjölskyldum okkar og gaf okkur góð ráð. Laufey var Bolvíkingur í húð og hár og ekkert komst í sam- anburð hjá henni við þá dásemd sem Bolungarvík var og okkar heimaslóðir sem eru Eskifjörður og Liverpool stóðust engan sam- anburð við þessa perlu vestur á fjörðum. Og við vorum fljótir að átta okkur á því og létum gott heita enda vel aldir af mat og kaffibrauði hjá frúnni og okkur fannst vissara að hafa ekki aðra skoðun á þessari staðreynd en hún. Laufey var bráðskemmtileg í þessum vinahópi okkar og auðgaði hann. Við þökkum henni sam- fylgdina. Kristján Pálmar Arnarsson og Andrew Wawn. Laufey Friðriksdóttir fjör í himnaríki fyrst hann var tekinn svona snemma frá okkur. Sagt er nefnilega að þeir deyi ungir sem guðirnir elska og á það svo sannarlega við hér. Jón Ellert var yndislegur vinur og við mun- um aldrei gleyma þeim stundum sem við áttum með honum, hann var okkur sem stóri bróðir sem alltaf var hægt að leita til. Fjölskyldu hans og vinum vott- um við okkar dýpstu samúð á erf- iðum tímum. María Björk, Diljá og Daði (Óla Haffa og Bylgju börn). Kveðja frá Íþróttafélaginu Fylki Það skyggði á jólastemmn- inguna þegar við fengum upp- hringingu á jóladagsmorgun um að góður vinur og einn dyggasti og ötulasti stuðningsmaður Fylk- is, Jón Ellert Tryggvason, hefði látist á aðfangadagskvöld. Jón Ellert eins og hann var ávallt kall- aður ólst upp í Árbæjarhverfi og bjó þar alla tíð. Hann stundaði á sínum yngri árum bæði hand- knattleik og knattspyrnu með Fylki. Jón Ellert hafði mikinn áhuga á ýmsum félagsmálum og kynntist ég honum á þeim vett- vangi fyrir rúmum tuttugu árum síðan. Jón Ellert var ákaflega bóngóður maður, mikill vinur vina sinna og hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. Hann var mjög ötull í starfi fyrir Fylki, sérstak- lega hvað varðaði fjáröflun fyrir félagið og bar hag félagsins alltaf fyrir brjósti. Jón Ellert var vel þekktur í ís- lenskum knattspyrnuheimi og víðar og var jafnframt mikill aðdá- andi enska fótboltans en þar var Liverpool hans uppáhaldslið. Hann hafði sterk tengsl við enska félagið og var þekktur í herbúðum félagsins á Anfield sem „Big John from Iceland“. Það er stórt skarð höggvið í raðir Fylkis við fráfall Jóns Ell- erts en minningin um góðan dreng og mikinn Fylkismann mun lifa með okkur öllum. Vottum við fjölskyldu Jóns Ell- erts og aðstandendum okkar dýpstu samúð. Enda ég þessi orð með lítilli vísu sem mér finnst eiga við. Enn er Jón og annar Jón og einhver Jón er prestur. Ég ábyrgist að okkar Jón er allra Jóna bestur. (Höf. ókunnur) Björn Gíslason formaður. Jón Ellert Tryggvason var einn helsti stuðningsmaður Fylkis og nú þegar hann er fallinn frá rifjast upp margar skemmtilegar og góð- ar minningar um þennan ötula stuðningsmann, góðan vin og fé- laga sem við leikmenn Mfl. Fylkis vorum svo heppnir að eiga að. Flestir okkar þekkja ekki félagið án hans því hann hefur fylgt okk- ur í gegnum súrt og sætt í fjöl- mörg ár. Það er skrýtið að hugsa til þess að við munum ekki framar sjá okkar litríka mann uppi í stúku að hvetja okkur áfram og jafnframt gagnrýna okkur, því honum var ekki sama hvernig gengi liðsins var. Jóni Ellerti var annt um félagið sitt Fylki og það sést best í þeim verkum sem hann vann fyrir félagið af fórnfýsi. Hann var ávallt til staðar, fylgdi okkur í hverja æfingaferðina á fætur annarri, á flesta útileiki liðs- ins og vildi allt fyrir okkur leik- mennina gera. Það verður tóm- legt að horfa upp í stúku og sjá ekki eða heyra í okkar manni. Við þökkum honum fyrir allt það sem hann gerði fyrir okkur, allan hans stuðning og hvatningu sem hann sýndi okkur af ástríðu. Við kveðj- um okkar helsta stuðningsmann og félaga með söknuði í hjarta en getum um leið yljað okkur með því að rifja upp allar góðu sögurn- ar, frasana og tímann sem við átt- um með honum. Minningin um Jón Ellert mun lifa með okkur um ókomna tíð. Við göngum út á völl- inn og gerum þig stoltan! Við sendum fjölskyldu Jóns innilegar samúðarkveðjur. F.h. leikmanna m.fl. Fylkis, Kristján og Bjarni. Kveðja frá Sjálfstæð- isfélaginu í Árbæ Góður félagi okkar er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Jón Ell- ert var sjálfstæðismaður fram í fingurgóma og var meðlimur í Sjálfstæðisflokknum um langt árabil. Jón Ellert var virkur félagi í Sjálfstæðisfélaginu í Árbæ, Sel- ási, Ártúns- og Norðlingaholti og sat í varastjórn í mörg ár og frá árinu 2010 sat hann í aðalstjórn. Það var ávallt gott að leita til Jóns Ellerts varðandi hin ýmsu mál- efni, álit, viðburði og skoðanir. Jón Ellert var ósérhlífinn, framtaks- samur, úrræðagóður og fljótur að leysa hin ýmsu mál, hvort sem þau voru stór eða smá. Það er mikill missir og söknuður fyrir fé- lagið að Jón Ellert er horfinn á braut og hann skilur eftir sig stórt skarð en veganesti og leiðarljós Jóns Ellerts lifir með okkur um ókomna tíð. Með miklu þakklæti fyrir samferðina, samstarfið og skemmtilegan félagsskap. Við sendum fjölskyldu Jóns Ellerts og vinum innilegar sam- úðarkveðjur á þessum erfiðu tím- um og biðjum Guð um að veita þeim styrk. Atli Kristjánsson formaður. Í dag kveðjum við einn minn besta vin. Jón Ellert hef ég þekkt frá því við vorum guttar í Árbæn- um. Það er óhætt að segja að ým- islegt hafi á okkar daga drifið. Þó ekki sé allt mjög gáfulegt sem gert var, var eiginlega allt skemmtilegt. Það var engin logn- molla í kringum Jón og fáir sem urðu á hans vegi gleyma honum. Jón hafði sérstakt gaman af að hitta frægt og þekkt fólk. Hvort sem um var að ræða stjórnmála- menn, leikara eða fótboltakappa og kannski helst þá. Hann var líka alls óhæddur við að kynnast fólki hvar sem hann kom. Hann hafði líka gaman af að vera flottur á því og ferðast á 1. klassa. Fyrir nokkrum árum fórum við í að halda fótboltamót hér á landi þar sem þátt tóku margar frægar kempur úr enskum fótbolta sem þá höfðu lagt skóna á hilluna frægu. Ian Rush vinur Jóns smal- aði saman leikmönnum sem höfðu spilað með Man U., Arsenal og Liverpool. Í einni af undirbún- ingsferðum okkar til Englands vegna mótsins fórum við með Ian til Wales þar sem hann er í guða- tölu. Umboðsmaður hans hafði græjað ferð með lest til Cardiff frá London. Jón hafði séð um miða okkar í lestina að vanda og að sjálfsögðu á 1. klassa. Ekkert minna. Á lestarstöðinni kom svo í ljós að umboðsmaður goðsins var sparsamari en Jón og hafði sá keypt miða á almennu farrými. Þeir sem til þekkja vita að nú var Jóni skemmt. Jón bældi í sér hlát- urinn á meðan goðið sá til en grét svo úr hlátri þegar goðið barðist við að breyta miða sínum svo hann gæti setið með okkur. Umbinn fékk líka að heyra það þegar til Cardiff var komið! Nokkru seinna hringir Jón í mig og segist vera með miða á stórleik í meistara- deildinni, Liverpool og Chelsea. Anfield. Að sjálfsögðu í Carlsberg lounge! Búinn að redda flugi líka. Förum á morgun! Alls konar frægir karlar og Jón einn af aðal! Á heimleið með flugi frá Liverpool til London, eldsnemma, erum við tveir einhverra hluta vegna settir á business class. Ekki þó saman og Jón er alveg að finna sig. Við hlið hans situr gráhærður virðu- legur maður. Mér við hlið einhver eitíspoppari enn með strípur ára- tugarins. Jón byrjar að kenna manninum við hlið sér hvernig á að haga morgunverði í flugvél. English breakfast sé ágætur en þessi drykkur sem samanstendur af tómötum og selleríi og pipar og salti og einhverjum fleiri vökvum sé sko breakfast of champions. Terry Venables mun aldrei gleyma að Bloody Mary klikkar ekki í flugvél eftir sigurleik hjá Liverpool. Jón hafði líka einstakt lag á börnum. Jón var í miklu uppá- haldi hjá stelpunum mínum. Svala sat ekki í fanginu á neinum nema Jóni þegar hún var lítil. Það var svo hlýtt! Birta fór alltaf að sjá Harry Potter með þér. Prufusýn- ing löngu fyrir frumsýningu. Ekk- ert minna! Sýningin kl. 10 að morgni þriðjudags. Það var af- greitt með orðunum: „Tóti þú reddar bara fríi fyrir Birtu. Ég sæk’ana upp í skóla rétt fyrir 10, skil’enni í skólann þegar myndin er búin.“ Veit ekki hvort maður fer eitthvað að loknu lífinu en ef þú ert einhvers staðar þá er fjör þar. Jón, það var frábært að vera með þér! Þórir Örn Árnason. Okkar kæri vinur Jón Ellert hefur yfirgefið þessa tilveru að- eins 44 ára gamall. Að vera í kringum Jón var aldrei neitt logn. Hann starfaði mikið með okkur í kringum allt starf í Fylki og var sama hvað maður spurði hann um, þá reddaði hann alltaf öllu. Bíddu, ég tek nokkur símtöl og redda þessu, hann þekkti alltaf einhvern alls staðar og reddaði ótrúlegustu hlutum. Það verður frekar tóm- legt að heyra aldrei aftur hvorki í höllinni né á Bláa kallað „Nei, eru ekki systurnar Skorrdal mættar“ og svo var maður faðmaður. Nei, starfið í kringum Club Or- ange, Fylkisleikirnir og fleira verður ekki það sama. En hafðu þökk fyrir allt, elsku Jón Ellert, við eigum eftir að sakna þín mikið. Minningin um glaðværan og traustan félaga lifir með okkur. Kær kveðja frá Skorrdals-systr- unum. Rut Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Rún Rafnsdóttir. ✝ Arnþór IngiAndrésson fæddist í Reykjavík 11. júní 1987. Hann lést að heimili sínu 18. desember 2011. Foreldrar hans eru Arna Steinþórs- dóttir f. 4. maí 1958, d. 22. september 1996 og Andrés Reynir Ingólfsson, f. 3. apríl 1956, kvænt- ur Guðlaugu Helgu Konráðs- dóttur, f. 17. desember 1957. For- eldrar Örnu eru Ásta Haraldsdóttir, f. 1927 og Steinþór Nygaard, f. 1927. Foreldrar Andrésar eru Ragnheiður Hall- dórsdóttir, f. 1936 og Ingólfur Kon- ráðsson, f. 1929. Systur Arnþórs Inga eru Ása Andr- ésdóttir, f. 1980 og Auður Ásta Andr- ésdóttir, f. 1989, unnusti hennar er Benjamin Beier, f. 1991. Stjúpsystkini Arnþórs Inga eru Guðbjörg Guðlaugs- dóttir, f. 1975, maðurinn hennar er Hilmar Þór Sunnuson, f. 1973, börn þeirra eru Thea Líf, Embla Sól, Emil Breki og Lena Bríet. Hafliði G. Guðlaugsson, f. 1981, kona hans er Elva Dröfn Adolfs- dóttir, f. 1980, börn þeirra eru Þorgrímur, Sigurlaug og Þor- björg. Konráð G. Guðlaugsson, f. 1983, kona hans er Eygló Árna- dóttir, f. 1983, dóttir þeirra er Ronja. Arnþór Ingi ólst upp á Álfta- nesi en bjó síðustu tvö árin á heimili sínu í Reykjavík. Hann stundaði fullt nám á tölvubraut við Tækniskólann og var búinn að vera potturinn og pannan í fé- lagslífi Upplýsingatækniskólans síðustu tvö árin. Hann var vinur vina sinna og hans helstu áhuga- mál voru tölvur og tölvuleikir. Útför Arnþórs Inga fer fram frá Bessastaðakirkju í dag, 4. jan- úar 2012, og hefst athöfnin kl. 15. Elsku besti bróðir okkar. Stórt skarð hefur myndast í hjarta okkar og síðustu dagar nú yfir hátíðirnar voru svo óraunverulegir án þín. En þá verður okkur hugsað til þeirrar síðustu stundar sem við áttum saman og hversu glaður og brosandi þú varst. Svo ánægð- ur með að hafa lokið prófunum með stæl og svo spenntur að biðin eftir flottasta tölvuleikn- um var á enda. Þú varst okkur hinn besti bróðir, ávallt reiðubúinn að koma og bjarga okkur þegar við vorum búnar að „klúðra“ tölvunum okkar eða sprungið á bílnum og settir ekkert út á það þó við hlust- uðum ekki á þig nema með öðru eyranu þegar þú talaðir útí eitt um tölvuleiki og tæknina í kringum þá. Eitt sinn var mér unnað, allt var þá svo dásamlegt. Sérhver stund sem áttum saman býr í brjósti mér. Og er hún var döpur þurrkað gat ég tárin burt, og er hún var ánægð gladdist ég, hún unni mér. Vetur, sumar, vor og haust, við vorum saman endalaust, svo órjúfandi voru þau traustu vinabönd. („When she loved me“ Toy Story 2, íslensk þýðing: ókunnug.) Elsku bróðir, við sendum með þér ást og hlýju og stórt knús frá okkur til mömmu. Það er okkur viss hugarró og veitir okkur styrk að hugsa til þess að þið séuð saman á ný. Minn- ing þín er ljós í lífi okkar. Systurnar Ása og Auður Ásta. Elsku Arnþór Ingi, sem kvatt hefur okkur allt of snemma, og minningarnar hrannast upp, er farinn í faðm móður sinnar. Ég minnist þeirra ára, um verslunar- mannahelgarnar í Galtalæk, all- ar veiðiferðir frændsystkinanna og sú gleði sem þeim fylgdi. Hann var hrókur alls fagnaðar og ávallt reiðubúinn að rétta fram hjálparhönd. Að lokum vil ég þakka þér alla þá umhyggju sem þú sýnd- ir okkur og þær stundir sem við áttum saman. Elsku Andrés minn og Helga, Ása, Auður Ásta, Benjamín, Ásta og Stein- þór, guð styrki ykkur í þessari miklu sorg. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Kveðja, Ingólfur og Ragnheiður (afi og amma Stella). Arnþór Ingi Andrésson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.