Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 29

Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 29
AF LISTUM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Spjöldin á þessari stóru bókvirðast vera úr óhreinu ogupplituðu veggfóðri með máðu blómamynstri og hefur það rifnað upp eftir forsíðunni. Reynd- ar eru spjöldin sjálf ekki úr veggfóðri, held- ur er ljósmynd höfundarins tek- in á stóra filmu og því hlaðin smáatriðum, prentuð á spjöld með strigaáferð og gefur full- komlega tóninn í þessu frábærlega lukkaða bók- verki. Interiors, bók Orra Jóns- sonar ljósmynd- ara, var gefin út í Þýskalandi í vet- ur af forlagi töframannsins Gerhards Steidls. Mikil alúð er lögð í hvert og eitt smáatriði við útgáfuna, eins og í öll- um bókum Steidls, enda sækja lista- menn sem vinna með ljósmynda- miðilinn í að fá hann til að prenta bækur með verkum þeirra – enginn þykir að jafnaði gera betur á því sviði. Steidl gefur út nokkra skáld- sagnahöfunda, þar á meðal nób- elsskáldin Grass og Laxness, Svan- ur Guðbergs kom út hjá forlaginu og á dögunum gaf Steidl út Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birg- isson, en megináhersla útgáfu hans er á listaverkabækur og þá einkum skapandi og persónulega ljós- myndun.    Eins og titill verksins gefur tilkynna eru myndir Orra tekn- ar innandyra; þær eru allar af inn- viðum íslenskra eyðibýla. Þetta verk er fátæklegt hvað orð varðar; fremst er tilvitnun í ljósmyndarann Emmet Gowin, um löngun til að varðveita tæra skynjun bernsk- unnar, og bókin endar með til- vitnun í annan góðan ljósmyndara og rithöfund, Robert Adams: Gagn- legar ljósmyndir spretta ekki af hugmyndum. Þær kvikna af því að horfa. Og hér er svo sannarlega horft og skynjunin er formhrein og tær og vel mótuð: orðin eru fá í bókinni en hin sjónræna upplifun sterk í rúmlega sjötíu stórum ljós- myndum, sem eru glæsilega prent- aðar á þykkan pappír þar sem smá- atriðin sem filman býður upp á njóta sín til fullnustu. Þetta er hrein heimildaskráning þar sem smáat- riði gefa tilfinningu fyrir heild; lit- rík málning fellur af veggjum og lofti, panelborð losna og falla, strigi Fagurfræði eyðing- arafla og tímans Ljósmynd/Orri Eyðingaröfl Í ljósmyndum Orra flagnar málning af veggjum og innrétt- ingar liðast sundur – allt í nákvæmu og fagurfræðilegu samræmi. og dagblöð koma í ljós undir því sem áður var litríkt veggfóður, bleikt mætir bláu, tréstigar hlykkj- ast upp í myrkur og hestur sem límdur hefur verið á vegg hleypur þar enn í sprunguhafi.    Vitaskuld sprettur mynd-heimur listamanns, eins og sjá má í eyðibýlamyndum Orra, ekki upp úr engu. Hrörnun og eyðing- armáttur tímans hafa löngum kall- að á heimildaljósmyndara. Skrá- setning Walkers Evans á fátæklegu húsnæði farandverkamanna í suð- urríkjunum á kreppuárunum er til að mynda meðal áhrifaríkustu myndverka bandarískra lista- manna á 20. öld, og víða nálgast fólk heiminn með álíka hug- myndum í dag. Má til að mynda nefna ferðalag Alecs Soths með- fram Mississippi-fljóti eins og það birtist í bókinni Sleeping by the Mississippi, og skráningu Simons Norfolks á eyðileggingu mann- virkja í stríðshrjáðu Afganistan. Báðir mynda á stórt format eins og Orri, til að hafa sem fyllsta stjórn á formrænum eiginleikum myndanna og fá sem mestar upplýsingar í smátriðum og litum út úr mynd- unum. Og ef horft er hingað heim, þá hefur Orri alls ekki verið einn um það að hrífast af eyðingunni eins og hún birtist í eyðibýlunum; við erum margir ljósmyndararnir sem höfum beint linsum að eyðibýl- um og Nökkvi Elíasson hefur á síð- ustu árum sent frá sér tvær bækur með eyðibýlamyndum og ljóðum Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. En nálgun þeirra Orra er gjörólík, þótt báðir skapi áhugaverð mynd- verk. Það eina sem myndirnar eiga í raun sameiginlegt er að þær sýna eyðibýli á Íslandi. Meðan Nökkvi myndar í svarthvítu og leggur meiri áherslu á ytra byrði húsanna, og dramatíska nærveru, þá vinnur Orri einungis inni, allt í lit og smá- atriðin gefa tilfinningu fyrir heild. Fínlegt, formrænt jafnvægi lita og lína skiptir öllu.    Það er ekki alveg rétt að Int-eriors Orra sé nánast orðlaus bók. Á aftari saurblöðum situr lítill vasi og í honum 16 síðna bæklingur, Interiors: a travelogue, með texta bræðranna Dags Kára og Gunnars Þorra Péturssona. Þar segir af ferðalagi þeirra með Orra að ljós- mynda í síðasta eyðibýlinu sem hann vann í áður en bókin fór í prentun. Gefur áhugaverður text- inn tilfinningu fyrir vinnubrögðum listamannsins og þrjóskufullri nálg- uninni í verkefninu sem hefur alls tekið hann tólf ár að ljúka. Orri er ekki maður málamiðlana, hann er trúr sinni nálgun og fagurfræði, og gat því ekki komist í betra skjól með verkið en hjá útgáfu Steidls. Hvorugur slær af kröfunum. Rómaðar ljósmyndabækur Steidls seljast víst flestar í áskrift og einungis nokkur hundruð eintök rata í verslanir. Þaðan hverfa þær venjulega á nokkrum mánuðum. Þeir sem hafa áhuga á framúrskar- andi bókverki, merkri listrænni heimildaskráningu eða íslenskum eyðibýlum ættu að hafa hraðar hendur og tryggja sér eintak. » Gagnlegar ljós-myndir spretta ekki af hugmyndum. Þær kvikna af því að horfa. Og hér er svo sann- arlega horft … Orri Jónsson Kápa Interiors. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2012 Það verður seint sagt að arki-tektinn Ingimar H. Ingi-marsson hafi lifað venju-legu lífi. Bókin Sagan sem varð að segja, skrásett af Þorfinni Ómarssyni, fjallar um skrautlegt lífs- hlaup Ingimars – bæði í gegnum starf hans sem arkitekt en ekki síður sem alþjóðlegur at- hafnamaður. Þrátt fyrir að útgáfa bókarinnar hafi vakið mesta athygli vegna deilna Ingimars við feðgana Björg- ólf Guðmundsson og Björgólf Thor, þá fjallar hún að litlu leyti um þann þátt í lífi Ingimars. Misáhugaverðar sögur – og stundum fremur lang- dregnar – frá yngri árum Ingimars fá ekki síður mikið vægi í bókinni. Viðskipti virðast Ingimar snemma í blóð borin. Ingimar gerir sér hins vegar fljótlega ljóst að hann á fátt sameiginlegt með hinu íslenska embættis- mannakerfi sem hann álítur að skilji sig ekki. Það blasir því við að leita út fyrir land- steinana að tækifærum – og sækir hann bæði til London og þaðan til Berlínar eftir að Berlínarmúrinn fell- ur árið 1989. Það er einmitt þar sem hann kemst í kynni við persónur sem höfðu gegnt embættum í austur- þýska kommúnistaflokknum sem eiga síðar eftir að reynast honum gagnleg til að hasla sér völl í rúss- nesku viðskiptalífi eftur hrun Sov- étríkjanna. Áhugaverðasti hluti bókarinnar eru árin í Rússlandi. Í samstarfi með breska fjárfestinum Bernard Lard- ner tekst Ingimar að stofna eitt fyrsta símafyrirtæki Pétursborgar – en á þeim tíma var síður en svo auð- velt að falast eftir símaleyfi. Til þess þurfti réttu pólitísku samböndin. Og þeirra tekst Ingimar á undraverðan hátt að afla sér. Fljótlega eftir að hafa komið símafélaginu á fót ákveður Ingimar hins vegar að draga sig úr þeim rekstri – þrátt fyrir „fljúgandi start“. Við lesturinn vakna þó spurn- ingar, hvort eitthvað annað hafi ekki legið að baki. Næsta verkefni Ingimars var stofnun gosverksmiðjunnar Baltic Bottling Plant í Pétursborg, sem átti að vera hans „kóróna og stolt“. Svo fór þó ekki. Í stað þess að verk- smiðjan hefði lagt grunninn að ríki- dæmi Ingimars og leyft honum að setjast í helgan stein „og flytja til Mallorca“ þá hurfu umsvif hans þvert á móti til auðæfa Björgólfsfeðga – með vægast sagt vafasömum hætti. Þau auðæfi áttu síðar eftir að gera þeim feðgum kleift að kaupa ráðandi hlut í Landsbankanum. Þrátt fyrir að sögusviðið sé oft á tíðum áhugavert og spennandi og heimsþekktar persónur séu kynntar til leiks – meðal annars Anatolí Sobchak, þáverandi borgarstjóri Pét- ursborgar, og Vladimír Pútín, síðar forseti Rússlands – þá reis bókin aldrei undir þeim væntingum sem lesandi hafði til hennar. Við lestur bókarinnar upplifir maður að kannski sé ekki öll sagan sögð. Sagan sem betur mátti segja Sagan sem varð að segja mnn Eftir Þorfinn Ómarsson. Útgefandi Veröld, 2011. 362 bls. HÖRÐUR ÆGISSON BÆKUR Þorfinnur Ómarsson Fanný og Alexander (Stóra sviðið) Fim 5/1 kl. 20:00 fors Fim 26/1 kl. 20:00 aukas Fim 1/3 kl. 20:00 11.k Fös 6/1 kl. 19:00 frums Sun 5/2 kl. 20:00 5.k Fös 2/3 kl. 20:00 12.k Mið 11/1 kl. 20:00 2.k Fim 9/2 kl. 20:00 6.k Fim 8/3 kl. 20:00 Lau 14/1 kl. 20:00 aukas Mið 15/2 kl. 20:00 7.k Fös 9/3 kl. 20:00 Sun 15/1 kl. 20:00 3.k Fim 16/2 kl. 20:00 8.k Lau 17/3 kl. 20:00 Mið 18/1 kl. 20:00 aukas Fös 17/2 kl. 20:00 9.k Fös 23/3 kl. 20:00 Sun 22/1 kl. 20:00 aukas Fim 23/2 kl. 20:00 aukas Lau 31/3 kl. 20:00 Mið 25/1 kl. 20:00 4.k Fös 24/2 kl. 20:00 10.k Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið) Lau 7/1 kl. 14:00 30.k Lau 28/1 kl. 14:00 Lau 18/2 kl. 14:00 Sun 8/1 kl. 14:00 31.k Sun 29/1 kl. 14:00 Sun 19/2 kl. 14:00 Lau 14/1 kl. 13:00 Lau 4/2 kl. 14:00 Lau 25/2 kl. 14:00 Sun 15/1 kl. 14:00 Sun 5/2 kl. 14:00 Sun 26/2 kl. 14:00 Lau 21/1 kl. 14:00 Lau 11/2 kl. 14:00 Sun 22/1 kl. 14:00 Sun 12/2 kl. 14:00 Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma Kirsuberjagarðurinn (Stóra sviðið) Sun 8/1 kl. 20:00 Fim 19/1 kl. 20:00 Fös 27/1 kl. 19:00 Fim 12/1 kl. 20:00 Fös 20/1 kl. 19:00 Sannkölluð leikhúsperla um ástir, drauma og vonir. Sýningum fer fækkandi NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið) Lau 7/1 kl. 19:00 Fös 13/1 kl. 19:00 Lau 21/1 kl. 19:00 Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011 Axlar - Björn (Litla sviðið) Mán 9/1 kl. 20:00 fors Sun 22/1 kl. 20:00 4.k Lau 11/2 kl. 20:00 8.k Þri 10/1 kl. 20:00 fors Mið 25/1 kl. 20:00 5.k Sun 12/2 kl. 20:00 aukas Mið 11/1 kl. 20:00 frums Fim 26/1 kl. 20:00 6.k Lau 18/2 kl. 20:00 9.k Sun 15/1 kl. 20:00 2.k Lau 4/2 kl. 20:00 aukas Sun 19/2 kl. 20:00 Mið 18/1 kl. 20:00 3.k Sun 5/2 kl. 20:00 7.k Nýtt verk úr smiðju Vesturports Jesús litli (Litla svið) Sun 8/1 kl. 20:00 aukas Mannbætandi upplifun! Grímusýning ársins 2010. Lokasýning Nýdönsk í nánd (Litla sviðið) Lau 7/1 kl. 22:00 2.k Lau 14/1 kl. 22:00 4.k Lau 21/1 kl. 22:00 aukas Fös 13/1 kl. 22:00 3.k Fös 20/1 kl. 22:00 5.k Aftur á svið - aðeins þessar sýningar Heimsljós (Stóra sviðið) Lau 7/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 14.sýn Sun 8/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 29/1 kl. 19:30 11.sýn Sun 19/2 kl. 19:30 15.sýn Lau 14/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 4/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 16.sýn Sun 15/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 5/2 kl. 19:30 13.sýn Sun 26/2 kl. 19:30 17.sýn Lau 21/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 1.auka Sun 22/1 kl. 19:30 9.sýn Sun 12/2 kl. 19:30 2.auka Frumsýnt annan í jólum 2011 Svartur hundur prestsins (Kassinn) Sun 8/1 kl. 19:30 33.s Fös 20/1 kl. 19:30 37.s Fim 12/1 kl. 19:30 34.s Lau 21/1 kl. 19:30 síð.sýn. Sýningum lýkur í janúar! Hreinsun (Stóra sviðið) Fim 5/1 kl. 19:30 16.sýn Fös 13/1 kl. 19:30 síð.sýn Sýningum lýkur í janúar! Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan) Sun 8/1 kl. 13:30 6.sýn Sun 15/1 kl. 15:00 9.sýn Sun 29/1 kl. 13:30 12.sýn Sun 8/1 kl. 15:00 7.sýn Sun 22/1 kl. 13:30 10.sýn Sun 29/1 kl. 15:00 13.sýn Sun 15/1 kl. 13:30 8.sýn Sun 22/1 kl. 15:00 11.sýn Hjartnæm og fjörmikil sýning Judy Garland (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 8/1 kl. 16:00 Fös 13/1 kl. 22:00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.