Morgunblaðið - 04.01.2012, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2012
Fyrir bestu fiðluleikara dugar ekk-
ert annað en besta fiðlan. Og þá
kemur eitt nafn fyrst í hugann,
Stradivarius. Ný rannsókn leiðir
hins vegar í ljós að fiðluleikarar
greina ekki mun á 300 ára gömlum
fiðlum úr smiðju Antonios Stradiv-
aris og nýjum fiðlum.
Claudia Fritz, fræðimaður við
Parísarháskóla, fékk 21 fiðlusnill-
ing, sem þátt tók í alþjóðlegri sam-
keppni í Indianapolis í Bandaríkj-
unum, til að taka þátt í rannsókn
sinni. Þeir voru látnir spila í myrkri
á þrjár nýjar fiðlur og þrjár gaml-
ar, tvær frá um 1700 eftir Stradiv-
ari og eina frá um 1740 eftir Guar-
neri del Gesu.
Hljóðfæraleikararnir fengu fiðl-
urnar í hendur í ótilgreindri röð.
Þeir voru með logsuðugleraugu og
stóðu fyrir aftan skilrúm. Ilmvatn
var borið á hökustæðið til þess að
ekki yrði hægt að greina lykt af
gömlu lakki.
Hljóðfæraleikararnir áttu að
meta þætti á borð við hljómgæði og
hljómburð. Þeir voru almennt
hrifnari af nýju fiðlunum og önnur
Stradivarius-fiðlan þótti afgerandi
síst. Þá gátu þeir ekki greint á milli
nýrra og gamalla hljóðfæra. Gömlu
fiðlurnar kostuðu samanlagt 10
milljónir dollara og voru 100 sinn-
um dýrari en þær nýju. kbl@mbl.is
Reuters
Feilnóta Fiðluleikarar greindu ekki
mun á gömlum og nýjum fiðlum.
Fiðlu-
goðsögn
afhjúpuð
Stradivarius hlaut
ekki náð fyrir eyrum
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er mikill áhugi í samfélaginu á margskonar sið-
fræðilegum spurningum og því er mikilvægt að til sé
ritað efni sem fólk getur leitað í,“ segir Salvör Nordal,
forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ. Stofnunin hefur
í gegnum tíðina staðið fyrir öflugri útgáfustarfsemi og
gefur m.a. út ritröð sem nefnist Siðfræði og samtími
þar sem fjallað er um siðfræðileg álitamál sem brenna
á samtímanum. Nýjustu tvær bækurnar í þeirri ritröð
eru Siðfræði og samfélag og Velferð barna, gildismat
og ábyrgð samfélags. „Siðfræðistofnun Háskóla Ís-
lands fagnaði 20 ára starfsafmæli háskólaárið 2008-
2009 og af því tilefni var efnt til veglegrar fyrirlestr-
araðar á vegum stofnunarinnar sem hófst þá um
haustið. Greinarnar í bókinni Siðfræði og samfélag
eiga rætur að rekja til fyrirlestranna sem þar voru
fluttir,“ segir Salvör. Að hennar sögn er umfjöllunar-
efni höfunda fjölbreytt, sem dæmi ræða þau Páll
Skúlason og Sigríður Þorgeirsdóttir um tengsl sið-
fræði og samfélags og meta erindi siðfræðinnar við
samtímann, Ástríður Stefánsdóttir fjallar um ábyrgð
einstaklinga og samfélags á offitu, og þeir Geir Sig-
urðsson og Kristján Kristjánsson bera austrænar
hugmyndir um sjálf og siðferði saman við vestrænar.
„Bókin um Velferð barna er afraksturinn af þver-
faglegu samstarfsneti ólíkra fræðimanna undir stjórn
Siðfræðistofnunar. Verkefnið Gildismat og velferð
barna í neyslusamfélagi nútímans fékk styrk frá
Kristnihátíðarsjóði árið 2002 til að standa að mál-
þingum og vinnufundum. Á árunum fram til 2009 hitt-
ist hópurinn á vinnufundum og hélt opin málþing árin
2008 og 2009,“ segir Salvör og bendir á að greinar
bókarinnar byggist á erindum sem ýmist voru flutt á
þessum tveimur málþingum eða á vinnufundum hóps-
ins í Skálholti.
Að sögn Salvarar eru greinarhöfundar m.a. fræði-
menn á sviði félagsráðgjafar, guðfræði, heimspeki,
næringarfræði, sálfræði og uppeldisfræði um siðferði-
leg álitamál tengd börnum og skilyrði þess að þeim
geti farnast vel. Hún tekur jafnframt fram að mik-
ilvægt sé að skapa vettvang fyrir fagfólk úr ólíkum
áttum til að ræða saman líkt og hér gafst tækifæri til.
Í brennidepli í greinunum eru ráðandi gildismat í
neyslusamfélagi nútímans og áhrif þess á velferð
barna. „Þannig er t.d. rætt um foreldrahlutverkið,
merkingu og gildi frelsis í uppeldi barna og um þá
ábyrgð sem við berum sameiginlega á uppeldisskil-
yrðum þeirra og hvernig þau mótast. Jafnframt er
hugað að réttindum barna og líkamlegri og andlegri
næringu þeirra,“ segir Salvör og bætir við: „Ég held
að allir uppalendur sem og þeir sem vinna með börn
geti þarna fundið efni sem þeim finnst áhugavert og
skiptir máli.“
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Rýni Salvör Nordal er forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ og meðritstjóri nýútkominna bóka.
Skynjar mikinn áhuga í
samfélaginu á siðfræði
Siðfræðistofnun Há-
skóla Íslands sendir frá
sér tvær nýjar bækur
Leiklistarsamband Íslands, LSÍ, mun standa
fyrir öflugri kynningu á íslenskum sviðslistum
í New York um næstu helgi. Þá fer þar fram
afar umfangsmikið alþjóðlegt þing kaupenda
sviðsverka, það stærsta sem þekkist á byggðu
bóli, en það er haldið í borginni ár hvert. Búist
er við allt að 2000 kaupendum sviðslistasýn-
inga, allsstaðar að úr heiminum. Kynning
Leiklistarsambandsins er liður í miklu nor-
rænu samstarfsverkefni, Nordics on Stage,
sem stendur allt þetta ár. Þátttakan ytra er
einnig liður í undirbúningi að stofnun Kynn-
ingarmiðstöðvar íslenskra sviðslista, sem
Leiklistarsambandið vinnur að.
Þrjú íslensk sviðsverk verða sýnd á hátíð-
inni. Íslenski dansflokkurinn sýnir Kvart eftir
norska danshöfundinn Jo Strömgren tvisvar 7.
janúar í Gerald W. Lynch leikhúsinu. Verkið
var valið til sýningar þar úr 35 norrænum
verkum. Erna Ómarsdóttir sýnir tónleikaverk-
ið Lazyblood í Joyce Soho leikhúsinu 10. jan-
úar og framandverkaflokkurinn Kviss búmm
bang sýnir Safari á sama stað. Alls verða tólf
norræn sviðslistaverk á fjölunum í New York
en einnig kemur út vegleg-
ur bæklingur um norrænar
sviðslistir. Kynningin í New
York nú er upphaf víð-
tækrar sameiginlegrar nor-
rænnar sviðslistakynningar
sem fer fram á sjö við-
burðum í þremur heims-
álfum á árinu.
„Að mati LSÍ er það gríð-
arlega mikilvægt að ís-
lenskar sviðslistir séu sýnilegar á alþjóðlegum
vettvangi,“ segir Ása Richardsdóttir forseti
LSÍ. „Það skapar ekki síst listafólkinu ný við-
mið að fá tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegu
samstarfi, sýna sig og sjá aðra. Þá er mik-
ilvægt fyrir íslenskt sviðslistarfólk að vera
hluti af stærra markaðssvæði.“
Öflugt norrænt samstarf
Að sögn Ásu er þarna stigið inn á stærsta
sviðslistamarkað heimsins og er til mikils að
vinna. „Það er sterkur leikur að gera það í
góðu norrænu systralagi með samstarfsaðilum
okkar, kynningarmiðstöðvum hinna Norður-
landanna. Sameinuð erum við sterkari en stök.
Við í LSÍ erum að stíga inn í þetta samstarf í
fyrsta sinn en sambönd hinna Norðurlanda-
þjóðanna hafa starfað saman undanfarin ár og
kynnt sína starfsemi víða um lönd. Það sam-
starf hefur gengið mjög vel.“
Ása segir að Leiklistarsamband Íslands sé
að undirbúa Kynningarmiðstöð íslenskra
sviðslista. „Við höfum unnið að undirbúningi
hennar í eitt og hálft ár. Þetta er eitt af þeim
verkefnum sem við ákváðum að taka þátt í og
okkur stendur til boða að vera með í mörgum
öðrum. Nú bíðum við svars stjórnvalda, um
hvort þau vilji stofna þessa síðustu kynning-
armiðstöð listgreinanna en við höfum borið
gæfu til að stofna miðstöðvar fyrir aðrar list-
greinar á undanförnum árum, sem hafa náð
miklum árangi. Það er áhugi hjá stjórnvöldum
og við vonum að á næstu misserum verði geng-
ið formlega frá stofnun miðstöðvar sviðslista.
Leiklistarsambandið hefur tekið frumkvæði í
málinu og við erum reiðubúin til að stíga skref-
ið til fulls,“ segir Ása. efi@mbl.is
Íslenskar sviðslistir í New York
Kvart Íslenski dansflokkurinn sýnir verk Jos
Strömgrens á hátíðinni í New York.
Þrjú íslensk sviðsverk sýnd um helgina á alþjóðlegu þingi kaupenda sviðslistaverka
Leiklistarsambandið tekur þátt í norrænni kynningu Undirbúa kynningarmiðstöð
Ása Richardsdóttir
Það þriðja fjallar um
þann tómleika sem
maður finnur eftir að börnin
flytja að heiman 31
»
Siðfræði og samfélagi er ritstýrt af Salvöru Nordal og Vilhjálmi
Árnasyni, en þau ritstýra einnig Velferð barna, gildismat og
ábyrgð samfélags í samvinnu við Sigrúnu Júlíusdóttur. Tólf
höfundar leggja til efni í fyrri bókina og eru þeir langflestir
heimspekingar, en þrír hafa menntun bæði í heimspeki og
læknisfræði. Þrettán höfundar með margvíslegan fræðilegan
bakgrunn eiga greinar í seinni bókinni auk þess sem Vigdís
Finnbogadóttir ritar inngangsorð.
25 greinarhöfundar
TVÆR NÝJAR BÆKUR Í RITRÖÐINNI SIÐFRÆÐI OG SAMTÍMI