Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 31

Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2012 SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR 5% H.V.A., FBL. TOM CRUISE Í BESTU HASARMYND ÁRSINS! “STÆRRI, BETRI OG FYNDNARI.” - EMPIRE SHERLOCK HOLMES KL. 6 - 8 - 10.40 12 GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 6.45 - 9 - 10 16 ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 6 L JACK AND JILL KL. 10.10 L ÆVINTÝRI TINNA KL. 5.40 - 8 7 THE SITTER KL. 8 - 10 14 GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 6 - 9 16 ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 6 L THE SITTER KL. 6 - 8 – 10 14 GIRL WITH THE DRAGON TATTOO KL. 4.45 - 8 - 9 16 ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 - 5.50 L MI-GHOST PROTOCOL KL. 6 - 8 - 10.50 16 MI-GHOST PROTOCOL LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.50 16 ARTÚR BJARGAR JÓLUNUM 3D KL. 3.40 L STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN KL. 3.40 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar THE SITTER Sýnd kl. 8 - 10 GIRLWITHTHEDRAGONTATTOO Sýnd kl. 6:45 - 10 MISSION IMPOSSIBLE 4 Sýnd kl. 7 - 10 ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 Sýnd kl. 6 TOM CRUISE, SIMON PEGG, PAULA PATTON OG JEREMY RENNER Í BESTU HASARMYND ÁRSINS! 88/100 -CHICAGO SUN TIMESH.S.S. - MBL HHH ÍSLENSKT TAL -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Dýri Guðmundsson, eða Dýri Gen- dos Social Club, gaf nýlega út hug- ljúfa og skemmtilega þriggja laga smáskífu sem ber hið einfalda nafn 2011. Hann syngur og spilar á gítar og bassa og nýtur aðstoðar vina og barna. Dóttirin Ása, sem spilar með hljómsveitinni Mammút, spilar á bassa í einu lagi og sonurinn Orri Páll, sem lemur húðir með Sigur Rós, sér um allan trommuleik. Blaðamanni leikur forvitni á því hvaðan nafnið Gendos kemur og á því reynist einföld skýring. „Þetta er gamalt hafnfirskt uppnefni. Einn vinur minn byrjaði að kalla mig þetta því pabbi var kallaður Gendi,“ segir hann. Persónuleg plata Dýri lýsir plötunni sem mel- ódískri, blús- og djasskenndri en hún er einnig afar persónuleg. Lög- in þrjú bera nöfnin Afastelpan, Hafnarfjörður og Allt þagnaði. „Eitt lagið fjallar um skemmtilega kar- aktera í Hafnarfirði þar sem ég ólst upp í kringum árið 1960. Annað er óður til barnabarnanna og það þriðja fjallar um þann tómleika sem maður finnur eftir að börnin flytja að heiman,“ útskýrir Dýri, en bætir þó við að ekki eigi að taka plötuna mjög alvarlega. Hún sé aðallega gefin út til gamans og í takmörk- uðum fjölda eintaka. 2011 er önnur plata Dýra og er hann hvergi nærri hættur að semja. „Ég er með fleiri lög í farvatninu sem munu koma út á þessu ári á disk sem heitir 2012. Þar kennir ýmissa grasa og platan verður fjöl- breyttari en hinar fyrri,“ segir hann. Verður stefnan hjá honum að gefa árlega út plötu sem ber heiti ártalsins? „Ég stefni að því, finnst það sniðugt. Ég kom ekki nema þremur lögum að núna en kannski verða þau fleiri næst. Það er gott að hafa markmið,“ segir hann. Spilað fyrir þúsundir Eflaust hafa fleiri séð Dýra syngja og spila en gera sér grein fyrir því. Á hverju ári koma hann og félagar hans sér fyrir í húsagarði við Lindarbraut á Seltjarnarnesi og spila fyrir þúsundir hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu. Þá syngur hann með Fjallabræðrum, er í starfsmannahljómsveit vinnustaðar eiginkonu sinnar auk þess sem hann fer stundum á elliheimilið Grund og syngur með heimilisfólkinu. Áhugasamir geta nálgast 2011 hjá Dýra, dyrig@simnet.is. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Tónlistarmaður „Ég er með fleiri lög í farvatninu sem munu koma út á þessu ári á disk sem heitir 2012,“ segir Dýri. Persónuleg smáskífa frá Dýra Gendos Social Club  Dýri Guðmundsson nýtur liðsinnis barna sinna, Orra Páls úr Sigur Rós og Ásu úr Mammút, á nýrri plötu Allt þagnaði Allt þagnaði einn morguninn þú flogin varst um veg, yfir hafið, löndin, fjöllin, grund- irnar. Ég sakna þín, ég sakna orkunnar, þú gafst mér gjafirnar, þú gafst mér allar góðu stund- irnar. Litirnir, lífsins kraftur tónar og taktur, taka völd. Ég hlakka til að hitta þig aftur og syngja með þér, langt fram á kvöld. Gavin Rossdale er heillaður af því hve íbúar Los Angeles eru kurt- eisir, Bretar séu dónar í saman- burði. Breski rokkarinn er kvæntur söngkonunni Gwen Stefani og búa þau ásamt sonum sínum í Los Ang- eles en eru með annan fótinn í London. Rossdale segist vel vita að margir séu lítt hrifnir af Los Angel- es og finnist íbúarnir tilgerðarlegir en hann sé ánægður þar og sér finnist fólkið ótrúlega kurteist. Í viðtali við þýska tímaritið In ber Rossdale saman mannasiðina í Los Angeles og í heimalandinu Bret- landi. Í Los Angeles sé hægt að bjóða bláókunnugri manneskju góðan daginn og hún heilsi í lang- flestum tilfellum kurteislega á móti. Á Englandi séu viðbrögðin önnur. Þar myndi ókunnug mann- eskja vafalaust svara með því að segja viðkomandi að hunskast burt. Gavin Rossdale segir Breta dóna samanborið við íbúa Los Angeles Reuters Rossdale Segir samlanda sína ekki vera neitt sérstaklega kurteisa. Enskur leigubílstjóri hefur stigið fram og sagt frá því að hann eigi tæplega 50 ára gamla upptöku af Rolling Stones syngja lagið As Tears Go By en hún er svo fágæt að ekki einu sinni Mick Jagger hefur hlustað á hana. Til stendur að spila hana opinberlega innan skamms en hinn 63 ára John Mackswith hefur geymt upptökuna í læstri geymslu síðustu áratugi. Mackswith var aðeins táningur þegar hann vann í Advision- upptökuverinu á New Bond Street árið 1964. Þar tóku félagarnir í Rolling Stones, sem þá voru á barmi heimsfrægðar, upp nokkur lög, þ.á m. As Tears Go By sem var eitt fyrsta lagið sem Jagger og Keith Richards sömdu saman. Mackswith líkaði lagið vel en fannst flutningurinn hins vegar nokkuð slappur. Þegar hljómsveitin yfirgaf hljóðverið ákvað Mackswith að endurhljóðblanda lagið og búa til aðeins öðruvísi útgáfu af því. Hann viðurkennir að útgáfan sín hafi verið ámóta léleg og flutningur sveitarinnar en ákvað að halda eftir upprunalegu útgáfunni og ekki svo löngu síðar sló lagið í gegn, bæði í flutningi Rolling Stones og hinnar ungu og upprennandi Marianne Faithfull. Reuters Rolling Stones Gömul hljóðversupptaka af As Tears Go By verður brátt gerð opinber. Gömul útgáfa af laginu As Tears Go By lítur dagsins ljós

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.