Morgunblaðið - 05.01.2012, Síða 6

Morgunblaðið - 05.01.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2012 BAKSVIÐ Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Að sögn nokkurra flokksmanna, sem hafa gegnt trúnaðarstörfum innan Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og starfað lengi með flokknum, er mikill titringur innan flokksins. Þeir flokksmenn sem Morgunblaðið hefur rætt við eru allir á einu máli um að nokkuð hafi verið um úrsagnir að undanförnu og að auki séu margir að hugsa sinn gang varðandi áframhaldandi veru í flokknum. Einn af stofn- endum flokksins segir flokkinn vera á óheillabraut. Hafsteinn Hjartarson hefur verið í VG frá stofnun og gegnt þar ýms- um trúnaðarstörfum, m.a. sem for- maður VG í Kópavogi. Hann segist íhuga alvarlega að segja sig úr flokknum. „Ég tel að Vinstri græn hafi svikið öll, eða flest, loforð sem þau gáfu okkur, segir Hafsteinn og segist þar eiga m.a. við ESB-aðild- ina og skjaldborgina sem slá átti um heimilin. „Flestir þeirra sem ég þekki innan VG eru mjög óánægðir, því miður. Flokkurinn hefur borið stóran skaða af því sem hefur gerst undanfarið og ég veit um miklu fleiri sem eru að íhuga úrsögn.“ Hafsteinn segir að um sé að ræða mjög erfiða ákvörðun, sem ekki verði tekin nema að vel ígrunduðu máli. „Þetta er afskaplega mikið til- finningamál.“ Dramatískar afleiðingar „Það fyrsta sem ég hugsaði þeg- ar ég heyrði af þessum ráð- herrahrókeringum var: „Þetta er upphafið að endalokunum.“ Ég held að afleiðingarnar verði mjög dramatískar í næstu kosningum og að flokkurinn uppskeri lítið upp úr kjörkössunum,“ segir Lilja Móses- dóttir, sem sagði sig úr VG síðast- liðið vor. Hún segist hafa heyrt um úrsagnir úr flokknum undanfarna daga, fyrst og fremst sé um að ræða ESB-andstæðinga, sem hafi bundið vonir sínar við Jón Bjarna- son. „Mér skilst að það fólk sé að gefast upp núna, það er mikil reiði í þessum hópi. Fólki finnst að það sé búið að svíkja öll loforð,“ segir Lilja. Hún segir að þegar hún gegndi þingmennsku fyrir flokkinn hafi verið rætt um að nauðsynlegt væri að einn ráðherra flokksins væri andstæðingur ESB. „En það virðist ekki vera nauðsynlegt leng- ur.“ Atli Gíslason, sem sagði sig úr flokknum á sama tíma og Lilja, tek- ur í sama streng. „Það kvarnast jafnt og þétt úr flokknum. Það er fyrst og fremst vegna svikinna hug- sjóna hvað varðar ESB, en einnig vegna stjórnunar efnahagsmála,“ segir Atli. Ólafur Þ. Jónsson, Óli kommi, einn af stofnfélögum VG, sagði sig úr flokknum í fyrradag. Hann sagði það vera vegna „dekurs við ESB“ og aðfarar að Jóni Bjarnasyni.. „Þar með bætist hann í hóp allt of margra annarra sem ég met mik- ils,“ skrifaði Anna Ólafsdóttir Björnsson, formaður félags VG á Álftanesi. Gott að losna við gagnrýni „Það er eins og mörgum í flokks- forystunni og nokkrum öðrum sé bara slétt sama, finnist það jafnvel gott að losna við gagnrýniraddir,“ segir í bloggi Önnu. Hún segist ekki vita til þess að um samantekin ráð fólks sé að ræða varðandi úr- sagnir. „Ég held að þetta sé fyrst og fremst einstaklingsframtak. Margir segja að ef ekkert breytist þá fari þeir út. Fólk er óánægt með stjórnarsamstarfið. Við vorum full- viss um að VG yrði einarðari í and- stöðu sinni við ESB. En þetta er ekkert annað en dekur við ESB,“ segir Anna. Anna bendir á að VG vinni gegn vilja meirihluta þjóðarinnar. „Mér finnst ólýðræðislegt að við skulum vera að vinna að aðild að sambandi sem hvorki við sem flokkur né fólk- ið í landinu kærir sig um.“ Sama óheillaþróunin Hjörleifur Guttormsson, fyrrver- andi alþingismaður og ráðherra Al- þýðubandalagsins og einn af stofn- endum VG, segir að atburðir undanfarinna daga hafi verið í takt við það sem áður hafi gerst innan flokksins. „Þetta er sama áfram- haldandi óheillaþróunin og verið hefur. Fólk er að tínast úr flokkn- um og það segir sína sögu. Það get- ur ekki talist vera jákvæð þróun fyrir nokkurn stjórnmálaflokk.“ „Ég hef fengið lauslegar fréttir af úrsögnum og mín persónulega skoðun er sú að þeir sem eru óánægðir með það sem hefur gerst undanfarið ættu ekki að heyja bar- áttuna utan flokksins, heldur innan hans,“ segir Ragnar Arnalds, fyrr- verandi formaður og ráðherra Al- þýðubandalagsins og félagi í VG. „Jón Bjarnason er ekki lengur ráð- herra, en það er ennþá sterkt fólk innan þingflokksins sem er ákveðið í sinni afstöðu.“ Upphafið að endalokunum?  Flokksmenn í VG segja marga íhuga úrsögn  „Það er búið að svíkja öll loforð“  Segir flokkinn vinna gegn vilja þjóðarinnar  Stofnendur VG segja flokkinn vera kominn á óheillabraut Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gengur úr VG Ólafur Þ. Jónsson, Óli kommi, einn stofnenda VG, var heiðr- aður í upphafi síðasta landsfundar flokksins. Hann hefur nú sagt sig úr VG. Anna Ólafsdóttir Björnsson Hjörleifur Guttormsson Hafsteinn Hjartarson Ragnar Arnalds „Í þessari viku hafa verið nokkrar úrskráningar, en það hefur ekki verið nein hrina af úrsögnum, alls ekki. Fólk segir sig úr flokknum í hverri ein- ustu viku og aðrir skrá sig í hann og það hefur ekkert verið meira nú en oft áður. Það sem af er þessari viku hafa tíu manns sagt sig úr flokknum,“ segir Auður Lilja Erlingsdóttir, fram- kvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Hún segir breytingar á félagatali oft haldast í hendur við fréttaflutning af störfum flokksins, bæði jákvæðan og neikvæðan. Stundum gangi fólk úr flokknum til að lýsa vanþóknun sinni á störfum hans, aðrir vilji lýsa yfir stuðningi og skrái sig því í hann. „Sumir eru óánægðir með að Steingrímur hafi farið úr fjármálaráðuneytinu og sumir eru óánægðir með að Jón Bjarnason sé ekki lengur ráðherra. Þetta er mismunandi.“ Framkvæmdastýra segir ekki meira um úrsagnir núna ALLTAF EINHVER HREYFING Auður Lilja Erlingsdóttir Sævar Már Gústavsson saevar@mbl.is Herdís Helga Arnalds er 23 ára ævintýra- manneskja úr Kópavogi sem nýverið réð sig til starfa sem almannatengill hjá Abercrombie & Fitch. Eftir að hafa lokið framhaldsskólanámi hér á Íslandi ákvað hún að færa sig um set og skráði sig í nám við Berkeley-háskólann í Kali- forníu þar sem hún fékk íþróttastyrk. Þar lauk hún hagfræðigráðu ásamt því að vera í frjáls- íþróttaliði skólans fyrstu tvö ár námsins. Hvött áfram af prófessor Aðspurð af hverju hún sótti um þetta starf segir hún að prófessor sem kenndi henni hafi bent henni á þjálfunarbúðir sem Abercrombie & Fitch starfrækti og hvatt hana til þess að sækja um inngöngu í þær. „Fyrirtækið kom og hélt kynningu í verkfræðideild skólans og var því eiginlega að leita að verkfræðingum,“ segir Herdís, „en ég ákvað að mæta á kynninguna, þrátt fyrir að ég væri hagfræðinemi.“ Alls sóttu 170 einstaklingar um pláss í þjálf- unarbúðunum. Herdís segir að þeir sem tóku viðtöl við hana hafi hrifist mikið af uppruna hennar og verið forvitnir um Ísland. Eftir að hafa farið í fjölda viðtala var loks komið að viðtali sem réð því hvort hún kæmist til Ohio þar sem aðalviðtalið fór fram. „Ég var bara í stofunni heima, búin að klæða mig upp á og á meðan voru 11 einstaklingar að spyrja mig spjörunum úr í gegnum Skype,“ segir Herdís. „Eftir þetta viðtal fékk ég að vita að ég var ein af þremur umsækjendum sem voru eft- ir og var eftir það boðið að koma í viðtal í Ohio.“ Viðtalið í Ohio gekk vel og var henni boðið að starfa í Hamborg í Þýskalandi. „Ég hélt að erfiðleikar við það fá græna kortið gætu orðið vesen þannig að þeir buðu mér að fara til Þýskalands, sem er bara spenn- andi enda alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, þótt Ísland sé alltaf best.“ Framtíðin spennandi Herdís mun koma til með að starfa sem al- mannatengill fyrir fyrirtækið í Þýskalandi og meðal annars kynna fyrirtækið á ráðstefnum víðsvegar um Evrópu og sjá um almanatengsl varðandi yfirtökur fyrirtækisins á fram- leiðsluverksmiðjum í Þýskalandi. „Þetta er mjög spennandi og ég væri mikið til í að starfa við almannatengsl í framtíðinni,“ segir Herdís, full tilhlökkunar vegna komandi verkefna en hún mun fara af landi brott um miðjan febrúar í þjálfunarbúðir áður en hún hefur formlega störf. „Ég er með fullt af efni á þýsku sem ég er að lesa núna, það er víst betra að kunna eitt- hvað í þýsku þegar maður er starfandi í Þýska- landi,“ segir Herdís og bætir við að hún muni mest sakna smæðarinnar á Íslandi sem tengir fólkið saman. Valin úr hópi 170 umsækjenda Morgunblaðið/RAX Herdís Helga Er full tilhlökkunar og sér framtíðina fyrir sér í almannatengslum.  Herdís Helga Arnalds sem er 23 ára hefur verið ráðin til starfa í Þýskalandi sem almannatengill hjá stór- fyrirtækinu Abercrombie & Fitch  Mun meðal annars kynna fyrirtækið á ráðstefnum víðsvegar um Evrópu Abercrombie & Fitch er bandarískt fyr- irtæki sem sérhæfir sig í að framleiða og selja klæðnað fyrir aldurshópinn 18- 22 ára. Fyrirtækið starfrækir yfir 300 verslanir í bandaríkjunum.Verslanir fyr- irtækisins eru þekktar fyrir að tjalda öllu til og yfirleitt eru fyrirsætur af báðum kynjum sem aðstoða viðskiptavini við fatakaupin. Fyrirtækið tók til starfa í Evrópu árið 2007 og er enn að bæta við sig versl- unum víða um álfuna. Fyrstu versl- anirnarí Evrópu voru opnaðar í London árið 2007 en síðan hefur fyrirtækið opn- að verslanir í Mílanó og Düsseldorf svo dæmi séu nefnd. Fyrirtækið stefnir á að opna nýja verslun í Hamborg í apríl næstkomandi. Stækka við sig í Evrópu ABERCROMBIE & FITCH

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.