Morgunblaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ Á vormisseri er eins og endranær fjölbreytt úrval námskeiða í boði hjá Endurmenntun Háskóla Ís- lands og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem viðkomandi vill efla hæfni og þekkingu sína í starfi eða einkalífi, sækja sér hvatningu, gleði eða innsýn í nýja heima enda hátt í 200 nám- skeið í boði. Margs konar menning Sem fyrr spanna hin fjölmörgu námskeið mörg svið sem er skipt í alls 13 flokka. „Á sviðinu ‘Menning’ eru tæplega 30 námskeið þar sem fróðleikur og skemmtun fléttast saman,“ segir Thelma Jónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands. „Námskeið tengd leikhúsinu skipa vegleg- an sess eins og undanfarin misseri og má finna námskeið um söngleikinn Vesalingana og svo einnig um leiksýningu um skáldverkið Svar við bréfi Helgu sem var í hópi vinsæl- ustu bóka fyrir jólin 2010. Einnig verður á dagskrá námskeið um áhrifamátt leikhússins, en það er hugsað fyrir alla þá sem vilja læra hvernig leikhúsið virkar sem miðill þar sem textinn og leikarinn eru í aðalhlutverki.“ Thelma útskýrir að í þetta sinn verði leik- ritið Dagleiðin langa (Long Daýs Journey Into Night) eftir Eugene O’Neill fyrir valinu, og það lesið og krufið. „Eftir lesturinn fer hópurinn svo saman á leiksýningu á verkinu í Þjóðleikhúsinu og svo verður lesið vandlega í leiksýninguna, leik og túlkun, leikmynd, lýs- ingu og fleira. Leikhúsmiðinn er innifalinn í námskeiðsgjaldinu,“ bætir Thelma við. Að sögn Thelmu verða þrjú tónlistar- námskeið í boði á vorönninni. „Eitt þar sem Bergþór Pálsson ætlar að veita þátttak- endum innlit í heim óperunnar og svo verður saxófónleikarinn og djassistinn Sigurður Flosason með tvö djassnámskeið.“ Bók- menntaáhugafólk finnur einnig auðveldlega áhugaverð námskeið hjá Endurmenntun. „Að þessu sinni verður Sturlunga í fyrirrúmi en Íslendingasagnasérfræðingurinn Magnús Jónsson ætlar að leiða þátttakendur inn í fyrri hluta Sturlungu á átta vikna námskeiði. Þá mun Einar Kárason rithöfundur end- urtaka námskeiðið sitt Leiðarvísir að Sturl- ungu. Einnig verður námskeið um Þórberg Þórðarson og annað um Don Kíkóta,“ segir Thelma og bendir loks áá að framboðið hjá Endurmenntun HÍ endurspeglar einnig árs- tímann með ferðatengdum námskeiðum og þegar líða tekur á vorið eru á dagskrá nám- skeið sem tengjast garðrækt á einn eða ann- an hátt. Staðlanámskeið fyrir verk- og tæknifræðinga Thelma bendir á að undanfarin misseri hafa verið fjölmörg námskeið hjá Endur- menntun í boði fyrir verk- og tæknifræðinga en Endurmenntun á í nánu samstarfi við Verk- og tæknifræðingafélag Íslands og gerir reglulega kannanir meðal félagsmanna til að fá vísbendingar um fræðsluþörfina og skipu- leggja framboðið í framhaldinu. „Á vormisseri eru nú þegar tvö staðl- anámskeið komin á dagskrá, annars vegar Evrópski timburstaðallinn EN 1995 og hins vegar Nýr Evrópustaðall um hönnun stein- steypuvirkja. Önnur námskeið á þessu sviði eru Ljósbogahættur í dreifikerfum og Mist- urslökkvikerfi. Einnig er vert að benda á að Endurmenntun á í samstarfi við fjölmörg önnur fagfélög um fagtengd námskeið.“ Fjölbreytt fjármálanámskeið Fjármálanámskeið Endurmenntunar eru af ýmsum toga. „Við leggjum áherslu á að bæði einyrkjar með lítinn rekstur og fjár- málastjórar í stórum fyrirtækjum geti fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Thelma, og minnir á að þrátt fyrir mismunandi umfang rekstrar eigi framangreindir aðilar það sam- eiginlegt að geta alltaf bætt við sig í hagnýtri kunnáttu. „Lestur og greining ársreikninga eru tvö námskeið sem hafa verið á dagskrá í nokkur ár sem og Excel I – fjármál og rekst- ur. Þá skipa skattamálin stóran sess á þessu misseri en Ásmundur G. Vilhjálmsson lög- maður verður með þrjú skattanámskeið: Skattlagning úttekta úr atvinnurekstri, Fyr- irtækjaskattaréttur: Umbreytingar, samein- ingar og skiptingar félaga og Árið 2011 – Nýlegar breytingar á skattalögum.“ Einnig verður á dagskrá lengri námskeiðslína um rekstur, stjórnun og markaðssetningu smá- fyrirtækja. Námskeið í fjarfundi Sú nýbreytni verður á námsframboði End- urmenntunar á vormisseri að ákveðið hefur verið að veita fólki á landsbyggðinni aukið tækifæri til að sækja námskeið í sinni heima- byggð. „Á vormisseri verða því í boði í kring- um 15 námskeið sem eru send út í gegnum fjarfundabúnað og eru eingöngu ætluð þátt- takendum í fjarfundi sem er nýbreytni,“ seg- ir Thelma. „Námskeiðin eru send út í raun- tíma sem gerir þátttakendum kleift að taka þátt í umræðum en það gefur slíku námsfyr- irkomulagi aukna vigt. Hægt er að kynna sér námskeiðin á vef Endurmenntunar Háskóla Íslands, endurmenntun.is, en skráning og upplýsingagjöf fer fram hjá Fræðslu- og sí- menntunarmiðstöðvum víðsvegar um landið.“ Að sögn Thelmu er hér verið að koma til móts við aukna eftirspurn á landsbyggðinni en hún minnir einnig á að skráningarfrestur á þessi námskeið hefst að jafnaði tíu dögum fyrir upphaf námskeiðs. Námskeið öllum opin Thelma minnir loks á að meirihluti nám- skeiða Endurmenntunar sé öllum opinn. „Það er að segja að ekki er krafist neinnar mennt- unar eða fyrri reynslu. Aldursbil þeirra sem sækja námskeiðin er einnig mjög breitt; þeir yngstu eru um 20 ára gamlir en um leið eru nokkrir þátttakendur sem eru komnir á ní- ræðisaldurinn,“ bætir hún við. Aðspurð segir hún að á hverju misseri sæki rúmlega 4000 þátttakendur námskeið á vegum Endur- menntunar. Nánari upplýsingar og skráning er á vef Endurmenntunar endurmenntun.is eða í síma 525 4444. jonagnar@mbl.is Fróðleikur og skemmtun hjá Endurmenntun Háskóla Íslands Menning, tæknimál, rekstur og skattar meðal viðfangsefna á námskeiðum Endurmenntunar. Mörg þúsund nemendur á öllum aldri. Fjarnám yfir Netið og út á land. Bókmenntir í brennidepli. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mennt Námskeiðum Endurmenntunar er skipt upp í þrettán flokka og í heildina sækja um 4.000 manns sér menntun hjá stofnuninni, segir Thelma Jónsdóttir hjá Endurmentun HÍ. Kvöldnámskeið í táknmáli Vorönn 2012 Tákn nr Klukkan Vikur Dagar Kennari Tákn 1 17:30-18:50 9. jan. - 8. feb. Mánud./miðvikud. N.N. Tákn 3 19:00-20:30 9. jan. - 8. feb. Mánud./miðvikud. S.M.S. Tákn 2 17:30-18:50 20. feb. - 21. mar. Mánud./miðvikud. N.N. Tákn 4 19:00-20:30 20. feb. - 21. mar. Mánud./miðvikud. S.M.S. Tákn 3 17:30-18:50 23. apr. - 23. maí Mánud./miðvikud. N.N. Tákn 5 19:00-20:30 23. apr. - 23. maí Mánud./miðvikud. S.M.S. Verð: 16.640 kr. Símanúmer Shh er 562 7702. Netfang fyrir skráningar: arny@shh.is Þ egar hópurinn leggur af stað fer ekki fram hjá neinum að þetta eru miklu meira en göngutúrar,“ segir Melkorka Árný Kvaran íþróttaþjálfari. Hún stendur fyrir kerrupúlsnámskeiðum fyrir nýbakaða foreldra sem fram fara í Laugardalnum í Reykjavík á mánu- dögum, miðvikudögum og föstudög- um árið um kring. Lagt er af stað klukkan 10:30. Lagt er af stað frá Grasagarðinum sem er austarlega í Laugardalnum, en þangað koma mæður með ný- fædd börnin sín í vögnunum og bíða eftir að hefja gott púl undir leiðsögn íþróttakennara. „Þetta er skemmtilegur hópur. Hreyfing er öllum mikilvæg og ekki síst nýbökuðum foreldrum. Það að stunda markvissa hreyfingu hefur marga góða kosti í för með sér,“ seg- ir Melkorka. Nefnir í þessu sam- bandi betri svefn, auðveldari stjórn- un á streitu, betri meltingu, aukið mótstöðuafl gegn sjúkdómum, aukna orku, lægri púls, minni líkur á beinþynningu, auknar líkur á lang- lífi, bætt kynlíf og fleira. Aðstæður í Laugardalnum til þess að stunda æfingar eru eins og best má verða. Hlaupið er og arkað upp og niður brekkur, notast við bekki og grindverk í dalnum ásamt því sem gerðar eru æfingar fyrir efri hluta líkamans með teygjum. „Og allt þetta er gert meðan börnin sofa vært í vagninum meðan móðirin kemur sér í gott form, andar að sér fersku lofti og hittir aðrar mæður í sömu sporum,“ segir Melkorka sem bætir við að þarna gefist mæðrum tækifæri til að sameina hreyfingu, útivist og félagskap. sbs@mbl.is Miklu meira en göngutúrar Morgunblaðið/Sigurgeir S. Æfing Klárar konur í kerrupúli með Melkorku Árný Kvaran. Námskeið í kerrupúli nýt- ast vel. Æfingar við góðar aðstæður. Mömmurnar púla meðan börnin sofa. Þrír virkir morgnar í viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.