Morgunblaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 23
Veiðigleði Unga kynslóðin hefur ekki síður gaman af veiðum en þeir sem eldri eruVeiðikóngur Einar Guðnason veiðir sjálfur á sumrin en kennir þessa list á veturna
F
luguveiðiskóli Veiðiheims í Kópavogi
hefur verið starfræktur í nokkur ár
en að honum standa félagarnir Einar
Guðnason og Börkur Smári Krist-
insson. Báðir eru þeir með ólæknandi
veiðidellu. Einar segir að skólinn bjóði í upp-
hafi árs upp á kast- og fluguveiðinámskeið en í
sumar verði alhliða veiðinámskeið á dagskrá.
„Fyrr í vetur fórum við til Svíþjóðar á við-
urkennt kastkennaranámskeið, þannig að við
ættum að vera vel undirbúnir fyrir komandi
námskeið, sem haldin eru í Kórnum í Kópa-
vogi,“ segir Einar.
Kastnámskeiðin eru sniðin að þörfum þeirra
sem eru að byrja og sömuleiðis sinnum við
þeim sem eru lengra komnir. Þá eru líka á
dagskrá sérstök námskeið fyrir börn og ung-
linga þannig að hver og einn ætti að finna nám-
skeið við sitt hæfi.
„Veturinn er tilvalinn tími til að undirbúa
sig fyrir veiði sumarsins, æfa tæknina við að
kasta og síðast en ekki síst að halda sér í æf-
ingu. Sömu sögu er að segja um fluguhnýt-
inganámskeiðin. Sumir sem koma á þessi nám-
skeið segja í fyrstu að þeir hafi nú ekki í
hyggju að leggja hnýtingar fyrir sig. Eftir
nokkrar flugur er gjarnan komið annað hljóð í
strokkinn.“
Mikil aðsókn
Einar segir að aðsókn að skólanum hafi auk-
ist á undanförnum árum. Hugsanlega vilji
veiðimenn vera betur undirbúnir, þannig sé
hægt að njóta veiðidaga sumarsins í botn. Með
tilkomu Veiðikortsins hafi færst í aukana að
fjölskyldur fari saman til veiða.
„Veiðileyfin hafa hækkað í verði og þess
vegna er svo mikilvægt að mæta á árbakkann
vel undirbúinn. Margir sem koma á námskeið
til okkar tala um þetta. Svo eru aðrir sem eru
hreinlega forfallnir veiðimenn og vilja nota
vetrarmánuðina til að undirbúa sumarið.“
Veiði og aftur veiði
Einar hefur stundað fluguveiðar frá unga
aldri. Hefur starfað sem leiðsögumaður á
sumrin og frítíminn fer líka í veiðar. Börkur
Smári hefur verið viðriðinn veiðar nánast frá
fæðingu og hefur sannarlega dregið margan
fiskinn á land.
„Vetrarmánuðirnir einkennast síðan af
kennslu og auðvitað undirbúningi fyrir kom-
andi veiðisumar,“ segir Einar Guðnason.
veidiheimur.is
karlesp@simnet.is
Mætum vel undirbúin á árbakka
Fluguveiðiskóli Veiðiheims í Kópa-
vogi hefur verið starfræktur í
nokkur ár. Einar Guðnason segir
aðsóknina góða, enda vilji fólk
undirbúa veiðisumarið vel.
MORGUNBLAÐIÐ | 23
16. starfsárið
Námskeiðið hefur verið haldið um allt land og á Norðurlöndunum
Yfir 6000 pör hafa tekið þátt frá upphafi
Hvaða vandamál geta komið í sambúðinni og hvers vegna?
Hvaða leiðir eru bestar til að styrkja og efla ástina og sambúðina?
Fyrirlestrar, verkefni, slökun, heimavinna.
Þrjú fimmtudagskvöld frá kl. 20.00 -22.00
Fyrir öll pör - líka þau sem vilja gera gott betra.
Upplýsingar og skráning á thorhallur33@gmail.com.
•
•
•
•
•
•
•
•
Skráning er hafin í hið sívinsæla
Sr. Þórhallur Heimisson hefur leitt
námskeiðn frá upphafi.
HJÓNA- OG SAMBÚÐARNÁMSKEIÐ
sr. Þórhalls Heimissonar