Morgunblaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ
É
g held að enginn efist um
að gildi starfsemi okkar er
mjög mikið í aðstæðum
eins og þeim sem við búum
við í dag. Starfsemi okkar
er mjög sveigjanleg og því getum við
brugðist mjög fljótt við ef þörf er á
ákveðnu náms-
framboði,“ segir
Guðjónína Sæ-
mundsdóttir for-
stöðumaður Mið-
stöðvar
símenntunar á
Suðurnesjum
(MSS). Þar er
haldið úti mjög
fjölbreyttri starf-
semi þar sem leit-
ast er við að koma
til móts við þarfir
fjöldans og aðstæður í samfélaginu á
hverjum tíma.
Efli sjálfstraust og lífsleikni
Rauði þráðurinn í símennt-
unarstarfinu á Suðurnesjum er sá að
starfsfólk þess sé alltaf tilbúið að
skoða hvar þörfin fyrir úrræði í
menntun er og geta brugðist við því.
„Við erum með fjölbreytt náms-
framboð, allt frá örstuttum nám-
skeiðum yfir í lengra nám,“ segir
Guðjónína sem nefnir þar Mennta-
stoðir. Það er nám unnið í samstarfi
MSS, Fræðslumiðstöðvar atvinnu-
lífsins og Keilis, miðstöðvar vísinda,
fræða og atvinnulífs og er mark-
miðið að stuðla að jákvæðu viðhorfi
námsmanna til áframhaldandi náms
og auðvelda þeim að takast á við ný
verkefni. Í náminu er lögð áhersla á
að nemendur læri að læra, efli sjálfs-
traust sitt og lífsleikni.
Fleiri í dagnám
Síðustu árin hefur verið þungt
undir fæti á Suðurnesjum og margir
verið án atvinnu. Margir hafa því
nýtt dauðan tíma í atvinnuleysi og
farið í nám. Dagnám hefur aukist
verulega síðustu misserin en kvöld-
námskeiðin hafa samt haldið áfram.
Margir hafa notað tækifærið og far-
ið að mennta sig. Oft á tíðum hefur
vantað grunninn og því margir byrj-
að á að fara í grunnmenntaskólann
og menntastoðir, síðan í frum-
greinadeildir og háskólabrú Keilis
og þar á eftir í háskólanám. Þá hefur
framboð starfstengds náms verið
aukið og má þar nefna skrifstofu-
skólann, færni í ferðaþjónustu og
kaffi- og barþjónanámskeið.
Ína segir margar þær námsleiðir
sem bjóðast hjá MSS hafa reynst vel
því fólki sem vill fara í lengra nám en
skortir undirbúning. Hún nefnir þar
t.d. áðurnefnda námsleið, Mennt-
astoðir, en fólk sem fer þar í gegn
getur jafnvel verið komið í há-
skólanám eftir hálft annað ár gangi
allt að óskum.
„Sú leið hentar mörgum sem hafa
fundinn hvatann til að hefja nám að
nýju en vilja taka námið á styttri
tíma en í framhaldsskólakerfinu.
Nemendur frá okkur eru margir
hverjir í dag í hinum ýmsu deildum
háskóla landsins og það eitt og sér er
mikil hvatning fyrir okkur. Núna er
að fara af stað fjarnám í Mennt-
astoðum en það form hentar mörg-
um vel og þá sérstaklega þeim sem
eru í vinnu. Enn eru nokkur pláss
laus en námið er að hefjast á næstu
dögum,“ segir Guðjónína.
Fjölmargt spennandi er fram-
undan hjá MSS um þessar mundir
og nefnir Ína þar meðal annars svo-
nefndar smiðjur; verklegt nám af
ýmsum toga. Sú þróun byrjaði á síð-
asta ári og var boðið upp á umhverf-
issmiðju með áherslu á hellu- og
steinalögn ásamt garðyrkju, hljóð-
smiðju í samstarfi við hljóðverið
Geimstein og matarsmiðju í sam-
starfið við ýmis fyrirtæki. Þessar
smiðjur voru mjög vinsælar. Núna á
vorönninni mun bætast við kvik-
myndasmiðja og grafísk hönnun.
Einnig eru fleiri smiðjur í bígerð.
„Með þessu erum við að koma til
móts við þörfina á verklegu námi.
Við eigum í mjög góðu samstarfi við
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins – og
hönnum og bjóðum upp á nám í sam-
starfi við miðstöðina. Einnig er mjög
gott samstarf á milli Vinnu-
málastofnunar á Suðurnesjum og
allra sem bjóða upp á menntun hér á
Suðurnesjum. Við hjá MSS erum við
með náms- og starfsráðgjöf sem
stendur öllum til boða og hvetjum
við þá sem vilja skoða möguleika
sína að koma til okkar,“ segir Guð-
jónína Sæmundsdóttir.
sbs@mbl.is
Til móts við þarfir fólks og samfélags
Kaffi Meðal nýjunga í starfi MSS er nám fyrir kaffibarþjóna, en meðal leiðbeinenda þar er Aðalheiður Héðinsdóttir forstjóri Kaffitárs í Njarðvík.
Fjölbreytt starf hjá Mið-
stöð símenntunar á Suð-
urnesjum. Menntastoðir
fyrir þá sem vilja í há-
skólanám. Smiðjur og
verklegt nám. Kaffi og bar-
þjónanámskeið
Guðjónína
Sæmundsdóttir
Dugnaður Það er göfugt að rækta garðinn og hér sjást garðyrkjunemar
hlaða grjót og gróðursetja.Verknám skipar æ stærri sess í starfi MSS.
Meistaranám og einstök námskeið
Meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun
býr nemendur undir að takast á við eitt af mest
knýjandi viðfangsefnum framtíðarinnar, nýtingu
og stjórnun auðlinda.
Tökum á móti umsóknum fyrir skólaárið
2012–2013 til 15. apríl 2012.
Einnig opið fyrir skráningu í einstök námskeið
meistaranámsins á vor- og sumarönn 2012.
Tilvalið sem endurmenntun fyrir fólk sem
starfar á sviði skipulagsmála, auðlindanýtingar,
umhvefismats eða á öðrum tengdum vettvangi.
Nánari upplýsingar: www.uwestfjords.is
Lj
ós
m
yn
d:
Ag
ne
s
G
ei
rd
al
Í samstarfi við: