Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 20

Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 20
Morgunblaðið/Árni Sæberg Tangóævintýri Félagið er enginn venjulegur félagsskapur. Rut segir að allir sem geta gengið eigi að geta dansað tangó. Rut (t.v.) setur sig í stellingar á dansgólfinu með Svanhildi. Þ eir sem arka um snævi- þaktar göturnar í ná- grenni Kringlukrárinnar, á mánudögum, eða eiga leið um fannfergið í Faxa- feni í miðri viku, kunna að heyra tóna sem færa hugann og hjartað til sólbakaðra gatna Buenos Aires. Tónarnir, og fjörið sem þeim fylgja, koma frá dansæfingum Tangó- ævintýrafélagsins (www.tangoad- venture.com). Rut Ríkey Tryggva- dóttir er formaður félagsins og skipuleggur starfið með Svanhildi „Svönu“ Valsdóttur danskennara. Rut segir eitthvað við tangóinn sem fær íslensk hjörtu til að slá hraðar og kemur stífum og stirðum víkingalöppum á hreyfingu. „Þegar ferðast er um heiminn og færi gefst á að kynnast og dansa með ólíkum þjóðum byrjar að hvarfla að manni að Íslendingar eigi meira sameig- inlegt með Argentínubúum en mörg- um nágrannaþjóðum okkar, eins og t.d. hinum Norðurlandaþjóðunum. Kannski er það vegna þess að tangó er „spontant“ dans, þar sem sam- skiptin eru skýr og hispurslaus –Ís- lendingar eru einmitt líka ansi spontant og falla að talsmáta tangós- ins. Þetta eru samskipti sem við skiljum.“ Þá segir Rut að um leið og tangó- sporin hlýja köldum kroppum norð- ur við heimskautabaug þá sé tangó hrein og klár heilsubót. „Búið er að færa á það vísindalegar sönnur að það að stunda tangó reglulega hefur mjög jákvæð áhrif á líkamann og dregur úr streituvöldum.“ Augnablikið fangað Að dansa tangó er líka hrein og klár dægradvöl sem lífgar upp á hversdaginn. Rut segir tangóinn ekki vera dýrt sport, og gaman að hafa sig ögn til fyrir milongu. Þegar dansinn hefst, þá hefst líka lífið fyrir alvöru. „Tangó krefst mikillar ein- beitingar, öll skilningarvit þurfa að vera opin og halda þarf líkamanum í góðu jafnvægi. Jafnvel ef augunum er gotið eitt augnablik af dansfélag- anum getur það komið róti á tjá- skiptin sem eiga sér stað. Fyrir vikið finnst mörgum þeir sjaldan eins mikið á lífi og í góðum tengslum við augnablikið og einmitt á dansgólf- inu.“ Tangóævintýrafélagið er fimm ára um þessar mundir. „Um er að ræða grasrótarfélag áhugamanna, og starfið sprottið upp úr einskærri ástríðu fyrir tangó, hugsað til að auka fjölbreytnina í íslenskri tangó- menningu og opna tangósamfélagið enn frekar,“ útskýrir Rut en haldin eru að lágmarki tvö danskvöld í viku hverri og reglulega boðið upp á sex vikna byrjendanámskeið. „Við sköp- um okkur líka vissa sérstöðu með því að hafa félagið galopið öllum, einnig einstaklingum. Ef skortir dans- félaga og ekki nógu margir til að leiða eða fylgja, þá eigum við til taks nokkra flinka dansara sem taka sporin við nýliðana. Hingað getur því fólk komið óhikað og ófeimið, eitt síns liðs eða í pörum.“ Þeir sem vilja láta drauminn ræt- ast og læra að stíga tangó eins og blóðheitur Argentínubúi geta heim- sótt Kringlukrána á mánudags- kvöldi en þar eru haldir ókeypis kynningartímar í viku hverri, og tek- ið við áhugasömum nýliðum á milli 8 og 9. ai@mbl.is Íslendingar skilja tangó Tangóævintýrafélagið heldur nokkur dans- kvöld í viku hverri og tekur á móti bæði pör- um og einstaklingum Morgunblaðið/Árni Sæberg Í tangó Mikil samskipti eiga sér stað og þarf að hafa skynfærin opin og hugann allan við þau skilaboð sem dansfélaginn er að senda. 20 | MORGUNBLAÐIÐ    ÍTALSKA, SPÆNSKA, ICELANDIC FOR FOREIGNERS Við erum við símann núna! Sími 561-0315 • www.lingva.is Ef þú getur gengið, þá geturðu dansað Þó tilþrifin á dansgólfinu virð- ist stundum vera hreint með ólíkindum þá segir Rut að tangó sé ekki líkamlega erfiður dans. „Fólk á öllum aldri á að geta stundað tangó af kappi. Svo lengi sem fólk getur geng- ið, þá getur það dansað tangó,“ segir hún. „Það er líka svo fallegt við þennan dans að á dansgólfinu þurrkast oft út kynslóðabilið. Tangó er dans þar sem allir geta dansað við alla, og jafnvel þó 30 eða 40 ár séu á milli dansfélaga getur útkoman orðið mjög glæsi- legur dans.“ Það þarf heldur ekki að kosta miklu til. Þó fólki sé frjálst að klæða sig upp þá eru danskvöldin óformleg og vel hægt að læra fyrstu sporin án þess að fjárfesta í sérstökum tangóskóm. „Einkum er það herrann sem þarf að gæta þess að skórnir hafi ágætt grip, til að gefa góða fótfestu sem báðir dansfélagar geta reitt sig á.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.