Morgunblaðið - 04.01.2012, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 04.01.2012, Qupperneq 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ Skúlatún 2 - 105 Reykjavík Sími 590 6400 - www.idan.is IÐAN fræðslusetur ehf. varð til við samruna fjögurra fræðslumiðstöðva í iðnaði og ferðaþjónustu vorið 2006. Um áramótin 2006/2007 bættist síðan Fræðslumiðstöð bílgreina í hópinn. Eigendur IÐUNNAR eru: Samtök iðnaðarins, Samiðn, MATVÍS, Félag bókagerðarmanna, FIT, VM, Bílgreinasambandið og Samtök ferðaþjónustunnar. Hlutverk IÐUNNAR er fyrst og fremst að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í bíl-, bygginga- og málmiðngreinum, prentiðnaði og matvæla- og veitingagreinum. Skráðu þig á námskeið vorannar 2012 á www.idan.is Símenntun fyrir fagfólk í íslenskum iðnaði NÝ OG FJÖLBREYTT NÁMSKEIÐ Í BOÐI A U G L Ý S IN G A S T O F A N D A G S V E R K / 1 2 1 1 Ofanleiti 2, 5. hæð (A-hús) • 103 Reykjavík • sími: 599 1450 • fax: 599 1401 www.rikismennt.is • rikismennt@rikismennt.is Þín leið til fræðslu Ríkismennt styrkir starfsmenntun innan stofnana ríkisins á landsbyggðinni Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna Sjóðurinn fjármagnar þau verkefni sem sjóðsstjórn skipuleggur Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Ríkismenntar Á námskeiði sem hefst 16. janúar má læra að sauma þjóðbúning kvenna, peysuföt eða upphlut 19. og 20. aldar. Hver bún- ingur er klæðskerasniðinn og mál- taka verður í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld. Allt efni er fáanlegt í verslun Heimilis- iðnaðarfélagsins við Nethyl á Ár- túnsholtinu í Reykjavík, þar sem námskeiðin fara einnig fram. Sauma barnabúning Nemendur á þjóðbúninga- námskeiði mæta alls ellefu sinnum í tíma þar sem Oddný Kristjánsdóttir er kennari.Hún kennir einnig saum á barnabúningum. Þá er námskeið í gerð undirpils fyrir þjóðbúninga. Einnig er boðið uppá saum- anámskeið í gerð þjóðbúningasvuntu og skyrtu. Eitt af námskeiðum Heimilisiðn- aðarfélagsins á næstunni er í skírn- arkjólasaumi, þar sem þátttakendur geta saumað kjól annað hvort úr tjulli eða vönduðu mjúku lérefti. Í fyrsta tíma sauma nemendur prufur en fullvinna síðan kjólana undir leið- sögn kennara. Á þessu námskeiði, sem spannar sex kvöld og hefst 23. febrúar, kennir Valgerður Jóns- dóttir. Tóvinna og prjónakaffi „Við skynjum mikinn áhuga á handverki og heimilisiðnaði. Við höf- um brugðist við því og nám- skeiðahald okkar er sífellt fjöl- breyttara,“ segir Solveig Theodórsdóttir formaður Heimilis- iðnaðarfélags Íslands. Nefndir þar til dæmis fjölbreytt prjónanámskeið t.d. fyrir byrjendur og örvhenta, rússneskt hekl, orkeringu og knipli svo eitthvað sé nefnd. Þá stendur fé- lagið fyrir námskeiðum í vefnaði, myndvefnaði, spjaldvefnaði og al- mennum vefnaði. Margir sækja vefnaðarnámskeiðin og meðal ann- ars hefur fólki í Fjölmennt, símennt- unarmiðstöð fatlaðra, boðist að koma og læra réttu handtökin við vefnað. Tóvinna hefur verið mjög vinsæl á síðustu árum; en þar lærir fólk að kemba ull og spinna. Og við þá þekk- ingu má svo bæta á skemmtilegu námskeið í jurtalitun sem haldin er á vormánuðum eða í sumarbyrjun.Þá má benda á að Heimilisiðn- aðarfélagið stendur fyrir prjónakaffi fyrsta fimmtudag hvers mánaðar á kaffihúsinu Amokka í Hlíðarsmára í Kópavogi og byrjar það kl. 20. Við allra hæfi „Heimilisiðnaðarskólinn var stofnaður 1979 og hefur unnið mark- visst að því að viðhalda þekkingu á gömlu handverki sem og nýju og miðla því áfram til nýrrar kynslóðar. Við erum alltaf með eitthvað áhuga- vert á dagskránni og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Sólveig og bætir við að á heimasíðu félagsins megi vinna frek- ari upplýsingar um öll námskeið Heimilisiðnaðarfélagsins og skrá sig til þátttöku. sbs@mbl.is Miðla gömlu handverki til nýrrar kynslóðar Heimilisiðnaðarfélag Ís- lands stendur að fjöl- breyttu námskeiðahaldi nú á vormisseri. Mikill áhugi. Þjóðbúningar og skírn- arkjólar. Vefnaðurinn vin- sæll og mörgum finnst gaman að prjóna. Fallegt Snotrir ömmuvettlingar með smekklegum mynstrum. Skór Það er gaman að kunna að búa til sauðskinnsskó og prjóna skóleppa. ’Margir sækjavefnaðarnám-skeiðin og meðal ann-ars hefur fólki í Fjöl-mennt, símenntunarmiðstöð fatlaðra, boðist að koma og læra réttu handtökin við vefnað. Fjallkonur Íslenskur þjóðbúningur kvenna er sígildur í svip og hönnun og svo þykir frábærlega gaman að geta saumað þessi listaklæði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.