Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 33

Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ | 33 Er kominn tími til að gera eitthvað? Námskeið sem opna þér nýjar leiðir Hringsjá náms- og starfsendurhæfing býður mikið úrval af öðruvísi og spennandi námskeiðum sem hafa hjálpað mörgum að komast aftur eða í fyrsta sinn af stað til meiri virkni, meiri lífsgæða og fleiri valkosta í námi eða starfi. Námskeiðin eru sniðin fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri sem hafa verið frá vinnumarkaði eða námi vegna slysa, veikinda, félagslegra erfiðleika eða annarra áfalla. Námskeiðin geta líka hentað þeim sem hafa litla grunnmenntun eða hafa átt erfitt með að tileinka sér hefðbundið nám. Um er að ræða eftirfarandi námskeið: • Tölvugrunnur: Tölvunotkun fyrir byrjendur og lengra komna. Unnið á eigin hraða með aðstoð. • Bókhald og Excel: hagnýtt námskeið þar sem kennd eru grundvallaratriði í bókhaldi og Excel. • Fjármál: Fjármál einstaklinga á mannamáli. Eykur skilning á fjármálum, bæði eigin og almennt. • Sjálfsstyrking: Styrkir nemendur í að tjá sig, sýna öruggari framkomu og almennt að vera til! • Minnistækni: Kennd tækni til þess að efla og bæta minnið. Hentar þeim sem eiga við gleymsku eða skert minni að stríða. • Úr frestun í framkvæmd: Farið yfir ástæður, einkenni og afleiðingar. Fyrir þá sem við hætta að fresta og ná meiri árangri í lífinu! • Enska fyrir byrjendur: Beitt er nýjum aðferðum fyrir þá sem hafa átt erfitt með að læra ensku. • Í fókus: Að ná fram því besta með ADHD! Ætlað einstaklingum með ADHD og líka foreldrum/öðrum aðstandendum einstaklinga með ADHD. • Stærðfræði fyrir byrjendur: Nýjum aðferðum beitt til að skapa áhuga og jákvætt viðhorf til stærðfræði! • Tölvubókhald: Kennt er á DK bókhaldsforritið. Ætlað þeim sem vilja dýpka þekkingu sína í bókhaldi og læra tölvufært bókhald. Frekari upplýsingar og skráning hjá Hringsjá í síma 510 9380 eða á www.hringsja.is eða hafið samband við Helgu Eysteinsdóttur forstöðumann netfang helga@hringsja.is eða Kolbrúnu Hjálmtýsdóttur náms- og starfsráðgjafa á kolbrun@hringsja.is Hátúni 10d • 105 Reykjavík • Sími 510 9380 • Bréfsími 562 2843 • www.hringsja.is F ólkið á bakvið Evolvia er meðal annarra þau Ma- tilda Gregersdotter og Arnór Már Másson. „Síð- an árið 2006 höfum við boðið upp á alþjóðlega vottað nám til að gerast markþjálfi, með vottun frá International Coach Federa- tion,“ segir Matilda. Sjálf er hún PCC, eða Professional Certified Coach, vottuð af International Coach Federation með um 2000 klst reynsla af markþjálfun. Arnór er ACC Markþjálfi, eða Associated Certified Coach, vottaður af Int- ernational Coach Federation með um 500 klst reynsla af mark- þjálfun, eins og Matilda útskýrir. „Markþjálfun er hnitmiðað ein- staklings- eða hópþjálfunarnám, sem stuðlar að vexti,“ segir hún þegar hún er beðin um að lýsa kjarna námsins. „Hægt er að nota markþjálfun bæði við aðlögun ein- staklings fyrir nýtt stjórnenda- starf, eða þegar stjórnendur vilja auka og uppfæra stjórnendahæfni sína." Vöxtur einstaklings – árangur heildarinnar Matilda nefnir að námið henti bæði fyrir sjálfstætt starfandi ein- staklinga og stjórnendur fyr- irtækja. Aðaláherslan liggi í leið- sögn í stjórnun sem henti báðum framangreindum aðilum. „Námið stuðlar að miklum vexti ein- staklingsins og sjálfslærdómi, enda er það kennt á framsækin hátt. Nemendur viða að sér þekkingu um það hvernig á að fá undirmenn og samstarfsfólk til að vaxa í starfi og vinna skilvirkt af ástriðu.“ Að sögn Matildu liggur í þessu eitt af grundvallaratriðum markþjálfunar. „Það er að kenna ekki stjórnendum að stjórna undirmönnum sínum, heldur að kenna þeim að vaxa í starfi, taka aukna ábyrgð og frum- kvæði og skila þannig meiru. Um leið vex fyrirtækið hverju sinni, því vöxtur einstaklingsins felur í sér aukinn árangur skipulagsheild- arinnar.“ Markþjálfun mikilvæg í dag Að sögn Matildu er mikilvægt nú um stundir að losa um innblástur og jákvæðni til að byggja bæði fyr- irtæki og þjóð vel upp. „Að mínu mati er aðferð markþjálfa ein af skilvirkustu aðferðunum í sam- skiptum milli manna. Aðferðin los- ar um raunverulega hæfni sem býr hverjum einstaklingi eða hópi.“ Hún bendir ennfremur á að ACC markþjálfanám sé kennt af karli og konu í einu. „Þetta veldur ákveð- inni dýnamík milli kynjanna og stöðugt koma fram tvær skoðanir.“ Frá vori fram á haust Matilda útskýrir að námið hefjist í febrúar og haldi svo áfram út vor- ið. „Það eru tveir dagar í febrúar, tveir dagar í mars, tveir í apríl og loks tveir í maí. Þá höfum við farið yfir 11 þætti grunnhæfni stjórn- enda. Við tökum svo þráðinn upp í haust og fylgjum árangri fyrri hluta ársins eftir, og loks lýkur náminu með afhendingu próf- skírteinis, eða diplómu, í haust.“ Aðspurð segir hún fag markþjálfa ekki lögverndað hér á landi en með námslokum fá þátttakendur aðgang að um 20.000 manna samtökum sem nefnast International Coach Federation. Að endingu nefnir Ma- tilda að Evolvia bjóði einnig nám til framhalds í markþjálfun, sem og ACC markþjálfanám á netinu á ensku fyrir erlenda aðila. „Námið er mjög dýnamískt og fjölmargir þátttakenda okkar hafa lýst náms- tímabilinu sem ákveðnum tímamót- um hjá sér sem hafi gefið sér verð- mæta reynslu til framtíðar í starfi með öðru fólki,“ segir Matilda Gre- gersdotter að lokum. jonagnar@mbl.is Þjálfun sem stuðlar að vexti Evolvia er fyrirtæki sem býður upp á alþjóðlega vottað nám til að gerast markþjálfi. Námið er ýmist sett fram sem einstaklings- eða hópþjálfun Markþjálfun Þau Arnór Már Másson og Matilda Gregersdotter kenna fólki að gerast markþjálfi í námi sem hefur alþjóðlega vottun. ’Markþjálfun hent-ar bæði við aðlög-un einstaklings fyrirnýtt stjórnendastarfog þegar stjórnendur vilja uppfæra stjórn- endahæfni sína. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is ...þú leitar og finnur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.