Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 35

Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ | 35 H áskólinn í Reykjavík mun í haust bjóða upp á nám í tölvunarstærðfræði. Þetta er meðal annars gert til að svara mikilli eftirspurn atvinnulífsins eftir hugbúnaðarsérfræð- ingum með góðan stærðfræðilegan bak- grunn, sem og tæknimenntuðu fólki almennt. Háskól- inn í Reykjavík leggur áherslu á að nemendur öðlist hvort tveggja í senn; sterkan fræðilegan grunn og hag- nýta færni til að takast á við raunveruleg verkefni at- vinnulífsins. Leysa erfið verkefni Að sögn Hennings A. Úlfarssonar, lektors við tölv- unarfræðideild Háskólans í Reykjavík, er hugmyndin á bak við brautina sú að veita nemendum þjálfun í að beita stærðfræði við úrlausnir erfiðra verkefna í hug- búnaðargerð og öðrum tæknigreinum. „Við leggjum einnig áherslu á að nemendur geti nýtt sér forrit- unarkunnáttu við lausnir á fræðilegum verkefnum úr stærðfræði,“ segir Henning. Í tölvunarstærðfræði Háskólans í Reykjavík er meg- ináhersla lögð á almennan stærðfræðilegan bakgrunn, almennan tölvunarfræðibakgrunn og þjálfun í stærð- fræðilegum aðferðum við lausn vandamála í hugbún- aðargerð. Nám í tölvunarstærðfræði hentar vel sem undirbúningur fyrir framhaldsnám í strjálli stærðfræði, tölvunarfræði, lífupplýsingafræði og öðrum skyldum greinum en náminu lýkur með BSc prófi í tölv- unarstærðfræði. Uppfyllir kröfur Nám í tölvunarstærðfræði við HR uppfyllir þær kröfur sem Félag tölvunarfræðinga gerir til náms í tölvunarfræði og öðlast nemendur sem útskrifast af þessari braut því starfsheitið tölvunarfræðingur. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Hugbúnaður Fyrirtæki í hugbúnaðarþróun þurfa vel menntað fólk og HR býður því nýja námskeið. Tölvunarstærðfræðin hefst í haust Heimilisiðnaðarskólinn býður úrval námskeiða Kennum fólki að framleiða fallega og nytsama hluti með rætur í þjóðlegum menningararfi • Þjóðbúningar kvenna, barna og karla • Skyrtu- og svuntusaumur • Víravirki • Baldýring • Sauðskinnsskór • Jurtalitun • Knipl • Orkering • Útsaumur • Harðangur • Skattering • Spjaldvefnaður • Miðaldakjóll • Tóvinna • Spuni • Vattarsaumur • Vefnaður – sjöl úr hör og ullarkrep • Dúkavefnaður • Svuntuvefnaður • Myndvefnaður • Prjón og hekl fyrir örvhenta • Prjón fyrir byrjendur • Prjónalæsi • Dúkaprjón • Englaprjón • Dóminó prjón • Prjónaðir vettlingar • Hekl fyrir byrjendur • Heklaðir lopavettlingar • Leðursaumur • Skírnakjólar • Rússneskt hekl - grunnnámskeið • Rússneskt hekl - Handstúkur • Rússneskt hekl - Sjöl • Rússneskt hekl - Hetta í miðaldastíl • Rússneskt hekl - Lopapeysa • Tauþrykk • Lissugerð • Blautþæfing Heimilisiðnaðarfélag Íslands | Nethylur 2e | 110 Reykjavík | Sími 551-5500 | www.heimilisidnadur.is Flest stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku í námskeiðum okkar Nánari upplýsingar og skráning: sími 525 4444 og endurmenntun.is Arabískt vor? Íslam og stjórnmál í Mið-Austurlöndum Austurvöllur - Hlemmur: Áhrif umhverfis á líðan fólks Á ferð um Íslendingasagnaslóðir með Magnúsi Jónssyni Áhrifamáttur leikhússins - lesið í leikhús Don Kíkóti Eftir jólabókaflóðið: Yndislestur í góðum hópi Forsaga Íslands Framhjáganga Þórbergs Þórðarsonar 1912 - merkasta ganga íslenskra bókmennta hundrað ára Innlit í heim óperunnar Istanbúl og Tyrkland Jarðfræði Reykjaness Jazzbíó: Billie Holliday og Chet Baker John Coltrane - risi í jazzsögunni Kína: Menning, land og saga Leiðarvísir að Sturlungu Manngerðir hellar á Íslandi Pílagrímaleiðin til Santiago de Compostella Reykjavík: tæknin og sagan Saga læknisfræðinnar frá fornöld til nútímans Skáldsaga sett á leiksvið: Svar við bréfi Helgu Sturlunga, fyrri hluti Söngleikurinn Vesalingarnir Vanadísarsaga, völvu og valkyrju - helgar myndir úr minni íslenskrar konu Þróun og skipulag borga - sérkenni Reykjavíkur frá alþjóðlegu sjónarhorni Safnaðu þekkingu Fjölbreytt námskeið á vormisseri Enn fleiri námskeið á endurmenntun.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.