Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 38

Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 38
38 | MORGUNBLAÐIÐ Söngskólinn í Reykjavík Í byrjun janúar verða inntökupróf í örfá skólapláss sem losna: 9. janúar byrja 7 vikna söngnámskeið: SÖNGNÁMSKEIÐ • Unglingadeild yngri 11-13 ára • Unglingadeild eldri 14 -15 ára • Almenn tónlistardeild Grunn-/ Mið-/ Framhaldsnám • Háskóladeild Einsöngs-/ Söngkennaranám • fyrir áhugafólk á öllum aldri • kennt utan venjulegs vinnutíma • raddbeiting / túlkun / tónfræði Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans að Snorrabraut 54, sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka daga•www.songskolinn.is SÖNGNÁM Námið spannar þrjá vetur og er skipulagt þannig að læra má höf- uðbeina- og spjaldhryggsjöfnunina meðfram öðru námi eða störfum. „Kennsla fer fram 9 helgar á hverju skólaári. Kennslan hefst þá síðdegis á föstudegi og kennt allan laug- ardaginn og sunnudaginn,“ segir Birna og segir að þótt hafi æskilegra að dreifa náminu yfir lengri tíma frekar en þjappa því saman á styttra tímabil. „Bæði gefur þetta nemend- unum tækifæri til að melta betur og tileinka sér á dýpri hátt það sem kennt er, en svo tekur það líka sinn tíma að rækta með nemendunum hjarta höfuðbeina- og spjaldhryggs- jafnarans.“ Þrjú ár eru samt langur tími og leggur Birna á það áherslu að nem- endur taki upplýsta ákvörðun áður en þeir skuldbinda sig í svona ít- arlegt nám. „Við ætlum að halda kynningarnámskeið dagana 13.-15. janúar þar sem farið er í grunnatriðin og kenningarnar. Helgin verður dæmigerð fyrir þá kennslu og aðferðir sem við munum beita, og gott tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga að komast að því hvort þeim þykir nám í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun eitthvað sem vert er að leggja stund á.“ Hafa þarf grunnskólapróf til að geta sótt um skólavist hjá Höfuðlausn. „Við viljum endilega fá til okkar fólk með breiða reynslu og ólíkan bak- grunn og menntun, en umfram allt fólk sem er tilbúið og hefur einlægan áhuga á þessu sviði.“ Unnið úr áföllum Það þykir mjög róandi að fá höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð og slök- unin ein og sér kann vel að hafa heilsubætandi áhrif. Birna segir að þeir sem séu á stöðugum þönum og á harðahlaupum í lífsgæðakapphlaupinu ættu að gefa meðferðinni gaum. „Líkaminn er gerður fyrir tvenns konar stillingar: annars vegar er líkaminn tilbúinn að „hrökkva eða stökkva“, og hins vegar getur líkaminn verið í þeim fasa að „liggja og tyggja“ þar sem við hægjum á okkur og hvílumst. Margir standa sig að því að vera á stöð- ugum hlaupum og læsast í þeim fasa, sem þýðir að líkaminn fær ekki þá hvíld og ró sem hann þarf – enda getum við ekki verið vakandi og sofandi á sama tíma.“ Sömuleiðis segir Birna að meðferðin geti hjálpað fólki að jafna sig á þungum áföllum og uppnámi. „Geta líkamans til að gera við sjálfan sig er ekki virkjuð til fulls ef spenna og streita nær yfirhöndinni. Langtíma cran- io-meðferð getur hjálpað fólki að hreinsa í burtu það sem hefur verið sóp- að undir teppið í gegnum tíðina, og hjálpað til við að halda líkamanum ferskum og hressum.“ Loks talar Birna um að höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðin geti ver- ið hluti af líknandi ferli við lífslok. „Útkoman getur oft verið hreint yndisleg og róandi, bæði fyrir þann sem fær meðferðina og er að skilja við, og eins fyrir aðstandendur.“ S umir telja höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun geta veitt fólki ýmissa meina bót, og töluverður áhugi virðist á þessari meðferð. Birna Imsland er höf- uðbeina- og spjaldhryggsjafnari, og hefur starfað sem slíkur í rösk- lega hálfan annan áratug. Nú er Birna ásamt kollega sínum Ingu Þórðardóttur að setja á laggirnar nýjan skóla, Höfuðlausn, fyrir þá sem vilja læra þetta meðferð- arform og er byrjuð að taka við fyrstu skráningum í þriggja ára nám. Mjúkar hendur En hvað er eiginlega höf- uðbeina- og spjaldhryggsjöfnun? Birna segir heitið langt og hálf- gerðan tungubrjót og oft talað um cranio-meðferð til styttingar. „Cranio er meðferð sem fæst við að stilla af höfuðbeina- og spjald- hryggskerfið, og á um leið að hafa áhrif á heilahimnurnar, mænuvökvann og bandvefi í lík- amanum. Heitið fær fólk stund- um til að halda að þetta sé með- ferð sem beitir miklum krafti, en það er ekki raunin. Cranio- meðferð er mjúk meðferð sem fer þannig fram að fólk liggur á bekk, klætt og með teppi yfir sér, slakar á meðan sá sem veitir meðferðina leggur hendur sínar á ákveðna staði. Ekkert nudd á sér stað, engar olíur eru notaðar, engin tæki eða rykkir. Einkum er unnið með höfuð, bak og hrygg og margir upplifa djúpa slökun og að taugakerfið róast mikið á meðan meðferðin stendur yfir.“ Birna segir höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun geta losað um uppsafnað álag og spennu og haft bæði fyrirbyggjandi áhrif og hjálpað til að minnka eða vinna bug á fjölda kvilla. Cranio- meðferð telst til svokallaðra óhefðbundinna lækninga, eða heildrænna meðferða og segir Birna að margir telji sig finna já- kvæð áhrif af meðferðinni. „Höf- uðbeina- og spjaldhryggsjöfnun er vinsæl í tilviki barna með ung- barnakveisu og eyrnabólgu. Er þá talið að m.a. slökunin sem með- ferðin veitir hjálpi til að rjúfa víta- hring meltingarvanda og draga úr verkjum,“ segir hún. „Cranio- meðferð þykir líka geta hjálpað börnum sem eiga við sumar gerðir einbeitingarskorts eða lesblindu að stríða, og mígrenisjúklingum þykir sumum að meðferðin dragi úr einkennum.“ Margt býr í beinunum Þá velja sumir að nota höf- uðbeina- og spjaldhryggsjöfnun sem viðbótarmeðferð samhliða læknis- og lyfjameferð. „Með- ferðin getur hjálpað fólki sem orð- ið hefur fyrir áfalli, hvort sem um er að ræða sjúkdóm eða tilfinn- ingaleg áföll. Fræðin á bak við höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun segja að þessi vandamál komi m.a. fram í cranio-kerfinu, og hægt að gera gagn með því að losa um spennu.“ Námið hjá Höfuðlausn er hugs- að sem einskonar fullnaðarnám í höfuðbeina- og spjaldhryggs- jöfnun, og er námið m.a. byggt á breskri forskrift. „Við notum breskt námsefni sem hefur verið kennt í um 25 ár með góðum ár- angri, þar af á Íslandi frá árinu 1998. Kennsluefnið hef ég þýtt yf- ir á íslensku og til viðbótar við breska námið bætum við heilmiklu ofan á til að dýpka þekkingu nem- enda enn frekar,“ segir Birna en viðbótarnámið felst m.a. í að cran- io-nemar sitja kúrsa í framhalds- skólum um líffæra- og lífeðl- isfræði, sjúkdómafræði, skyndihjálp o.þ.h. „Við bætum einnig við námið fróðleik um slys og áföll, vinnum með sjálfsþroska nemenda og hæfni í að vinna með sjúklingum. Eins er farið í hagnýt rekstrarleg atriði, s.s. um leyfi og bókhald, og kennt ítarlega um sið- fræði fagsins og ábyrgð meðferð- araðilans.“ Birna segir námið þannig úr garði gert að eftir útskrift geti nemendur þegar skráð sig sem græðara hjá Bandalagi íslenskra græðara, B.Í. G. „Námsefnið er líka þannig að fólk ætti að eiga auðvelt með að fá skráningu sem höfuðbeina- og spjaldhryggsjafn- arar í Bretlandi, ef áhugi er á að nýta menntunina utanlands.“ ai@mbl.is Losað um álag og spennu Morgunblaðið/Kristinn Lausnir Fólk liggur á bekk, klætt og með teppi yfir sér, slakar á meðan sá sem veitir meðferð leggur hendur á ákveðna staði, segir Birna Imsland. Höfuðbeina- og spjald- hryggsjöfnunarskólinn, Höfuðlausn tekur til starfa í vetur. Þriggja ára nám í törnum þar sem byggt á bresku kennsluefni. Grunnatriðin kynnt Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.