Morgunblaðið - 14.02.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.02.2012, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Sigurgeir S. Hjólagarpur Rúnar Theódórsson hefur hjólað víða um landið og mun hjóla í frönsku Ölpunum í haust. Aðstæður til að stunda slíkar hjól- reiðar séu því hentugar og ekki skemmi útsýnið fyrir þó vissulega sé misjafnt hversu mikið hjólreiða- fólk nái að horfa í kringum sig á fullri ferð. Rúnar á sína stærstu ferð fyrir höndum nú í haust en þá mun hann keppa í Trans-Provence- fjallahjólakeppninni í frönsku Ölp- unum. Hækkun að meðaltali 1500 m „Ég hef farið nokkrum sinnum á svæði sem er á landamærum Sviss og Frakklands sunnan við Genfar- vatnið. Þar er skíðasvæði þar sem fólk fær að nota lyfturnar og hjóla svo niður. Þá er tekinn 100 km hringur á einum degi en ekki í kapp við tímann. Keppnin í haust er alveg syðst í Frakklandi og endar niðri í Mónakó. Farnir eru 320 km á sjö dögum að meðaltali um 50 á dag. Hækkunin er að meðaltali upp á 1.500 metra á dag. Á hverjum degi eru hjólaðir nokkrir slóðar en á morgnana er byrjað á að keyra fólk upp í ákveðna hæð og síðan er hjól- að niður. Í keppninni er ekki alltaf hjólað á tíma en í henni eru 26 sér- leiðir og þrjár til fjórar leiðir tíma- mældar á dag. Þá skiptir tæknin við það að fara niður einna mestu þó út- haldið sé auðvitað líka nauðsynlegt,“ segir Rúnar. Hjólað með meisturum Þetta er fjórða árið sem keppn- in er haldin og er Rúnar fyrsti Ís- lendingurinn sem tekur þátt. Fleiri Íslendingar sóttu um en aðeins eru 70 þátttakendur í keppninni og af þeim eru 14 atvinnumenn. Töluvert af Bretum og Bandaríkjamönnum taka þátt og meðal þeirra eru stór nöfn í hjólreiðaheiminum meðal annars fyrrverandi fjallahjólameist- ari frá Bandaríkjunum og Kanada. Rúnar sótti um pláss með tveggja blaðsíðna umsókn og komst inn. Hann telur að þar hafi vegið þungt að hann varð Íslandsmeistari í downhill árið 2005. Stífar æfingar eru nú framundan hjá Rúnari sem segist vera mjög spenntur fyrir keppninni. „Ég held áfram að ganga upp brekkur með hjólið á bakinu og hjóla síðan niður eins og ég hef ver- ið að gera. Síðan styrki ég mig líka með því að lyfta. Dags daglega hjóla ég töluvert og þarf að hjóla nokkra tíma í viku samkvæmt æfingapró- gramminu,“ segir Rúnar. Rúnar á og rekur Hjólameistarann í Kópa- vogi þar sem hann selur og gerir við hjól. Hann segir hjólreiðar verða sí- fellt vinsælli og þá sérstaklega með hækkandi bensínverði. Í vondu vetr- arveðri líkt og verið hefur hægist nokkuð um en um leið og jörð verði auð fari fólk aftur af stað á hjól- unum af fullum krafti. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2012 Íslenski fjallahjólaklúbburinn er með opið hús á fimmtudags- kvöldum frá kl. 20:00. Þar gefst kostur á að kynnast öðru fólki með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og tala um heima og geima, eða verða sér úti um upplýsingar um athygl- isverðar hjólaleiðir, tæknileg mál- efni eða hvaðeina tengt hjólreið- um. Næstkomandi fimmtudags- kvöld verður ferðanefnd klúbbsins með opið hús og tilvalið fyrir þá sem vilja skipuleggja ferðir með góðum fyrirvara að mæta og kynna sér sniðugar hugmyndir að hjóla- leiðum. Endilega … … lítið við á opnu húsi Morgunblaðið/Árni Sæberg Ferðalangur Hjólað um landið. Leiðin í Trans-Provence- hjólakeppninni liggur frá norð- vestri til suðausturs, frá Dur- ance-dalnum til Alpanna og niður á strönd. Keppnin hefst í Alpaþorpinu Rochebrune og síðan liggur leiðin eftir Ölpunum, meðal annars um Haut-Verdon og vatnasvæðið milli Rhône og Var. Endað er í Monte- Carlo og hjólað í gegnum heimabæ fyrrverandi atvinnu- mannsins í fjallahjólreiðum Nicol- as Vouilloz. Á leiðinni eru ótal slóðar og leiðir, alls 320 km og samtals 9.500 metra hækkun. Hjólreiðafólkið tekst því á við mikla aflraun í þessari keppni sem fram fer í september og verður spennandi að fylgjast með hvernig fulltrúa Íslands mun ganga í Ölpunum. Mikið ferðalag framundan HJÓLAKEPPNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.