Morgunblaðið - 14.02.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.02.2012, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 45. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Minn stærsti djöfull er ég sjálf 2. Var Whitney Houston ólétt ? 3. Bíll á kafi í Vífilsstaðavatni 4. Öskureið út í Pál Óskar »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Söngkonan Whitney Houston glímdi við sína djöfla og tapaði þeirri baráttu nú á laugardaginn. Arnar Eggert Thoroddsen veltir vöngum yfir sigrum og sorgum þessarar miklu hæfileikakonu. »33 Reuters Harmsagan um Whitney Houston  „Þetta er eitt besta albúm á Norðurlöndum í dag og það fangar sál Íslands á svip- aðan hátt og Jazz på svenska eftir Jan Johansson gerir fyrir Sví- þjóð.“ Svo segir í lofsamlegum dómi hins virta gagn- rýnanda Jans Gradvalls um plötu Ein- ars Scheving, Land míns föður, í sænska blaðinu Dagens Industri. Land míns föður fangar sál Íslands  Tónleikaröðin Kaffi, kökur & rokk & ról fer fram í Edrúhöllinni, Efstaleiti 7, í kvöld. Í þetta skiptið koma síð- rokkssveitirnar Náttfari og MIRI fram. Húsið verður opnað kl. 20, það er talið í á slaginu 20.30 og tónleikum lýkur fyrir kl. 22. Náttfari og MIRI í Edrúhöllinni Á miðvikudag Suðvestan- og vestan 8-13 m/s og rigning eða slydda vestantil fyrripartinn, en síðan él. Hiti 1 til 6 stig. Á fimmtudag Suðvestanátt með éljum víða um land, en bjartviðri NA-til. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust með S-ströndinni. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Súld eða dálítil rigning N- og V-lands, en annars þurrt að kalla. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast fyrir austan. VEÐUR Framarar mæta Haukum í úrslitaleiknum í bikar- keppni karla í handbolta eftir ævintýralegan sigur á HK í gærkvöldi. Sig- urður Eggertsson skoraði sigurmarkið beint úr aukakasti eftir að leiktím- anum lauk. Skilaboð þjálf- arans um að Sigurður ætti ekki að taka auka- kastið bárust ekki alla leið og það var gæfa Framara. »2-3 Átti ekki að taka aukakastið Þormóður Árni Jónsson júdókappi fékk góðar fréttir í gær og ætti að geta haldið sínu striki í baráttunni um að komast á Ólympíuleikana í London. Hvorki krossband né liðband eru slitin. „Ég hélt að staðan væri miklu verri,“ sagði Þormóður sem reiknar nú með því að missa af þremur mótum en ná Evr- ópumeist- aramótinu í vor. »2 Þormóður hélt að stað- an væri miklu verri Skoski knattspyrnumaðurinn Steven Lennon gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fimm mörk Framara þegar þeir gjörsigruðu Íslands- og bikarmeistara KR, 5:0, í úrslitaleik Reykjavík- urmótsins í Egilshöllinni. Þar af skoraði hann tvívegis á fyrstu fjórum mínútum leiksins. »1 Lennon skoraði fimm mörk gegn KR ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðrún Sóley Gestsdóttir gudrunsoley@mbl.is „Ég réð mig í vinnu í mánuð hjá þeim árið 1968, en ílengdist smávegis,“ segir Þorvarður Björnsson, kaup- maður í Háteigskjöri, en hann hefur ákveðið að selja búðina eftir 39 ára rekstur. Verslun hefur verið starfrækt að Háteigsvegi frá árinu 1946, fyrst sem nýlenduvöruverslun Silla og Valda, en Þorvarður starfaði þar í nokkur ár. Vegna veikinda hefur hann nú ákveð- ið að leggja kaupmannssloppinn á hilluna. Hann segist nokkuð vongóður um að reksturinn geti haldið áfram. „Það mætti varla hætta eftir allan þennan tíma, það væri mjög slæmt fyrir hverfið.“ Þorvarður segir margt eldra fólk sem kemst einfaldlega ekki í stórmarkaði reiða sig á búðina. Hann hefur fundið fyrir nokkrum áhuga eftir að söluauglýsingar tóku að birt- ast. Sannarlega mætti kalla Háteigs- kjör fjölskyldufyrirtæki, en Þorvarð- ur hefur staðið vaktina í gegnum árin með dyggri aðstoð frá sonum sínum tveimur. „Krakkarnir hafa verið í þessu með skóla, þannig að þetta hef- ur hentað mjög vel.“ Synirnir eru nú 20 og 24 ára og hafa tekið alfarið við afgreiðslunni. Kristilegur afgreiðslutími Þorvarður hefur haldið afgreiðslu- tímanum fjölskylduvænum. „Það væri eflaust hægt að auka mikið við viðskiptin með lengri afgreiðslutíma en ég hef bara haft kristilega opnun.“ Ekki hefur verið opið fram eftir kvöldi, lokað á sunnudögum og oft líka á laugardögum. Hann segist hafa fundið fyrir tals- verðum sveiflum í viðskipum í gegn- um árin. „Það dróst saman hér í kringum 2006-2007, þegar allt brjál- æðið átti sér stað, sólarhringsaf- greiðslutími og annað slíkt.“ Þorvarður segir að það geti þó ver- ið að umbætur sem áttu sér stað á húsnæði verslunarinnar á þessum tíma hafi spilað þar inn í. „2008 byrj- uðu viðskiptin að aukast aftur og 2009 tóku þau verulegan kipp.“ Því sé ljóst að hverfisverslanirnar séu að sækja í sig veðrið. Þorvarður segir skýringuna mögulega liggja í þeirri persónulegu þjónustu sem búðir af þessu tagi veita. „Fólk hefur fengið nóg af græðginni og vill heldur versla í persónulegra umhverfi og fá einstaklingsmiðaðri þjónustu.“ Þorvarður segir stóran hluta við- skiptavina Háteigskjörs vera ungt fólk og að jafnvel sé um að ræða ákveðna tískusveiflu hjá þeim hópi. „Þau eru vön stórmörkuðunum frá æsku, þannig að fyrir þau eru kaup- mennirnir hentugir og spennandi kostur.“ Bensínlítrinn sé þar að auki orðinn fokdýr „Það kostar ekkert smávegis að fara á bíl að kaupa eitt smjörlíkisstykki sem hefur gleymst, fólk er líka farið að horfa mikið í það.“ Kaupmannssloppurinn á hilluna  Þorvarður Björnsson er að hætta eftir að hafa rekið Háteigskjör í 39 ár Morgunblaðið/RAX Uppsveifla Þorvarður og fjölskylda hafa staðið vaktina í búðinni. Hann segir kaupmanninn á horninu vera farinn að sækja í sig veðrið á ný. Unga fólkið sækir til kaup- mannsins á horninu í meira mæli en áður. Þorvarður segist á löngum ferli hafa tekið eftir ýmsum breytingum í neysluhegðun fólks. „Ég hef tekið eftir al- gengu sparnaðarráði hjá unga fólkinu, það kemur með lista yf- ir það sem vantar og kaupir bara það og ekkert annað. Það sparar mest á þessu.“ Skipu- lögðu innkaupin hafa þannig aukist að sögn Þorvarðar. ,,Það er ekki lengur hent í körfuna hugsunarlaust, eins og er mesta hættan í stórmörk- uðunum.“ Sparsamt ungt fólk INNKAUPALISTAR Í TÍSKU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.