Morgunblaðið - 14.02.2012, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2012
Elsku Biggi minn, ekki bjóst ég
við því að ég ætti eftir að skrifa
minningargrein um besta vin
minn á þessum unga aldri; svo
margt að segja en erfitt að koma
því frá sér. Mér finnst svo ótrúlegt
að hugsa til þess að ég eigi aldrei
eftir að hitta þig aftur í þessu lífi.
Þegar Steini hringdi í mig og til-
kynnti mér að þú værir látinn var
ég alveg sleginn, staddur í
Reykjavík á leiðinni, keyrandi til
Ísafjarðar, það var löng og skrítin
heimleið og þegar ég kom vestur
keyrði ég fram hjá íbúðinni þinni,
allt slökkt, engin hreyfing. Ég er
ekki ennþá búinn að átta mig á því
að þú sért farinn, elsku kallinn
minn. Við brölluðum margt í
gegnum tíðina, ég og þú, körfu-
boltinn með Pétri bróður þínum,
lyftingarnar í studio Dan og gríð-
Birgir Árni
Birgisson
✝ Birgir ÁrniBirgisson
fæddist í Lund í
Svíþjóð þann 4.
janúar 1980. Hann
lést á heimili sínu
á Ísafirði 23. jan-
úar 2012.
Birgir Árni var
jarðsunginn frá
Vídalínskirkju 3.
febrúar 2012.
arlegur áhugi þinn á
tónlist, þá helst pönki,
situr efst í huga mér,
ég sá þig alltaf fyrir
mér sem gítarspilara í
meðalgóðri pönk
hljómsveit með þín 4
grip sem þú varst
stoltur af að kunna.
Ég mun sko sannar-
lega alltaf hugsa til þín
þegar ég heyri lög með
hljómsveitinni Bad
Religion. Tíminn sem við eyddum
saman í sumar var dýrmætur,
dýrmætari en ég gerði mér grein
fyrir, ég er þakklátur fyrir þessar
stundir. Þegar þú varst í landi
varstu hjá mér á verkstæðinu
mínu og spilaðir póker þess á milli
sem þú skaust út í glugga að
reykja. Þú varst duglegur að dytta
að og mér finnst ómetanlegt að
hafa getað leiðbeint þér þegar þú
lagaðir íbúðina þína og smíðaðir
pókerborðið þitt. Sannur vinur,
hjartahlýr, snyrtilegur, duglegur
sjódólgur eru orð sem lýsa þér vel!
Stórt skarð er höggvið í vinahóp
okkar að hafa misst þig. Guð
geymi þig, elsku kúturinn minn.
Elsku Anna, Láki, Birgir og
aðrir aðstandendur, ég votta ykk-
ur mína dýpstu samúð.
Stefán Þór.
Hannafrænka er lýsingar-
orð …
Orð sem lýsir innilegri til-
finningu – ömmuást af þeirri
bestu gerð sem hugsast getur.
Orð sem er samnefnari og
birtingarmynd fjölskyldunnar
á Otrateig 50, í fortíð, nútíð og
framtíð.
Hanna I.
Pétursdóttir
✝ Hanna I. Pétursdóttir
fæddist á Sauðár-
króki 8. ágúst 1926.
Hún andaðist á
Droplaugarstöðum
hinn 31. janúar
2012.
Útför Hönnu var
gerð frá Bústaða-
kirkju 10. febrúar
2012.
Orð sem teng-
ist útbænum á
Sauðárkróki í
æsku okkar
allra. Orð sem
tengist loka-
hnykk háskóla-
náms okkar
allra.
Hanna frænka
var kona sem við
eigum svo mikið
að þakka og
geymum alltaf á besta stað í
hjörtum okkar.
Við erum þakklát fyrir að
hafa átt Hönnu frænku og er-
um óskaplega þakklát fyrir að
eiga allt hennar fólk að.
Árni Þór,
Helga Hrönn
og Atli Björn.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Ferðalög
Spánn
Íbúð í Exsample í Barcelona.
Vikuleiga í sumar.
starplus.is - starplus.info á ensku.
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu ýmsar gerðir sumar-
húsa við Akureyri og á Akureyri.
Upplýsingar á www.orlofshus.is.
Leó, sími 897 5300.
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir alla hópa.
Líka fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Húsgögn
Old Charm húsgögn til sölu
Til sölu Old Charm skrifpúlt og
leðurklæddur stóll með örmum. Mjög
vel farið. Vinsamlegast hafið sam-
band við Ingu í s.8450249
netfang ingahosk@hotmail.com
Atvinnuhúsnæði
Vörulager og skrifstofur
Til leigu eitt eða fleiri skrifstofu-
herbergi ásamt vörulager með
innkeyrsludyrum í 104 Rvk.
Uppl. í síma 896 9629.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og
endurvinnslu.
Fannar verðlaunagripir, Smiðju-
vegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - s. 551 6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
KLIPPING - dömu og herra -
3.000 kr.
VERÐDÆMI virka daga, stutt hár:
Lagning 2.400, blástur 2.800, perm.
5.900, litun 6.000.
GJAFAVÖRUÚRVAL.
EVÍTA, Starmýri 2, 108 Rvík,
s. 553 1900, www.evita.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
og tek að mér ýmis smærri
verkefni
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Byssur
Skotveiðivörur í úrvali -
Ný sending
Vorum að fá nýja sendingu. T.d.
hreinsisett, sjónauka, hnífa, vasaljós
og m.fl. Netlagerinn slf. Dugguvogi
17-19, 2. hæð. Sími 517-8878.
Vefsíða www.tactical.is
Hún elsku Gugga mín hefði
orðið 80 ára í dag. Mig langar
að minnast þessarar yndislegu
konu sem hefur fylgt mér allt
mitt líf eða í 41 ár. Gugga var
gift Óla frænda sem var bróðir
afa Úlfars. Þar sem ég ólst upp
hjá ömmu og afa í Blönduhlíð,
kynntist ég Guggu og Óla mjög
vel. Það var mjög sterkt og
mikið samband á milli þeirra
bræðra, Guggu og ömmu Dúnu.
Gugga og Óli voru barnlaus.
Þegar ég fæddist 1970 tóku þau
ástfóstri við mig og það þróað-
ist mjög sterkt og sérstakt
samband á milli okkar. Þegar
mamma ætlaði að skíra mig
vissi hún ekki hvort ég ætti að
heita Ólöf Guðbjörg eða Ólöf
Kristdís. Kristdísar nafnið birt-
ist henni í draumi. Hún útbjó
tvo miða með þessum nöfnum,
setti þá í skál og lét mig velja
miða og þar stóð Kristdís svo
ekkert varð af Guðbjargarnafn-
inu. Gugga varð ekkja 1976.
Guðbjörg María
Hannesdóttir
✝ GuðbjörgMaría Hannes-
dóttir fæddist í
Reykjavík 14. febr-
úar 1932. Hún lést
á líknardeild LSP í
Kópavogi 4. febr-
úar 2011.
Útför Guð-
bjargar fór fram
frá Langholts-
kirkju 21. febrúar
2011.
Það var stór og
mikill söknuður
fyrir hana að missa
Óla sinn eins og
fyrir okkur öll hin.
Gugga kynnist og
giftist nokkrum ár-
um síðar honum
Guðmundi sínum.
Fyrir mig sem
barn var Óli spari-
frændi, sá besti í
öllum heiminum.
Ég elskaði Guðmund strax og
ég kynnist honum, Gugga hefði
ekki getað eignast yndislegari
mann. Gugga og Guðmundur
ferðuðust mikið til útlanda og
þá aðallega til Spánar. Alltaf
fékk ég falleg kort send úr
ferðum þeirra, það síðasta
2010.
Gugga var glæsileg falleg
kona með stíl, heiðarleg og
traust. Að koma inn á fallega
heimilið hennar og Guðmundar
var stórkostlegt, góðar veiting-
ar, léttar og djúpar samræður
um alla heima og geima og
endalaus kærleikur. Þó að
Gugga væri barnlaus talaði hún
mikið um Ernu dóttur Guð-
mundar, barnabörn og barna-
barnabörn hans. Hún var mjög
stolt og talaði um þau eins og
sín eigin börn. Þegar ég eign-
aðist dóttur mína Patriciu 2009
var Gugga henni eins og amma.
Það er ómetanlega falleg mynd
í huga mínum þegar Gugga sá
og hélt á Patriciu í fyrsta sinn.
Ég gæti skrifað heilu bækurnar
frá barnæsku minni þar til að
hún lést á síðasta ári með ynd-
islegum minningum um Guggu.
Ég sakna Guggu mjög mikið
eins og þeir sem kynntust
henni.
Elsku Guðmundur, afkom-
endur, Anna systir Guggu og
fjölsk., amma Dúna, allir vinir
og samferðafólk, megi minning-
ar um Guggu okkar lifa í huga
og hjarta okkar alla tíð.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ólöf Kristdís Immler.
Í dag langar mig að minnast
hennar Guggu minnar sem
hefði orðið 80 ára í dag. Hún
Gugga var gift Óla föðurbróður
mínum sem hún missti þá 44
ára gömul. Það var mikill miss-
ir fyrir hana og okkur öll. Hún
Gugga var einstök manneskja,
orðvör, hlý, glaðvær og góð
heim að sækja. Hún var mjög
gestrisin og hefur alltaf átt
mjög fallegt heimili. Þegar ég
átti hana Ólöfu mína 1970 stóð
ekki á að þau tóku henni eins
og hún væri þeirra eigin dóttir
enda fékk Óli nöfnu. En Gugga
og Óli voru barnlaus. Alltaf
voru afmælis- og jólagjafir,
ekki stóð á því í gegnum öll ár-
in, en þegar Ólöf mín átti Patri-
ciu 2009 var hún Gugga mín
ekki hætt að gefa gjafir, sem
voru alltaf mjög fallegar. Henni
þótti mikið vænt um Patriciu
og ég tala nú ekki um að þegar
að ég sagði að hún væri amma
Gugga ljómaði hún. Eftir fráfall
Óla hélt hún alltaf mikilli
tryggð við okkur fjölskylduna
og mömmu. Gugga reyndist
henni sem besta vinkona og
ekki stóð á allri greiðaseminni.
Nokkrum árum eftir að Óli
dó giftist hún mjög góðum
manni, honum Guðmundi sín-
um, þau átti mjög vel saman og
ferðuðust þau mikið til sólar-
landa. Við í fjölskyldunni tók-
um Guðmundi opnum örmum
enda mjög góður maður. Mér
er efst í huga sú mikla hjálp
sem hann veitti mér 1982, og á
hann alltaf mínar bestu þakkir.
Að lokum vil ég þakka Guggu
minni góða samfylgd frá því að
ég var lítil stelpa.
Elsku Guðmundur, fjölskylda
og Anna systir Guggu, ég votta
ykkur mína dýpstu samúð.
Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta
sinni hér
og hlýhug allra vannstu er fengu að
kynnast þér.
Þín blessuð minning vakir og býr í
vinahjörtum
á brautir okkar stráðir þú, yl og
geislum björtum.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Ágústa Úlfarsdóttir.
✝
Þökkum innilega hlýhug og samúðarkveðjur
við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
HELGU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Súluholti.
Guðmundur Viðar Karlsson, Brynja Dís Valsdóttir,
Eiríkur Karlsson, Guðborg Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÞÓRU JÓNSDÓTTUR THORLACIUS
frá Moldhaugum.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk dvalar-
heimilisins Hlíðar fyrir einstaka umönnun.
Arnþór Jón Þorsteinsson, Guðlaug H. Jónsdóttir,
Ester Þorsteinsdóttir,
Þröstur Þorsteinsson, Saard Wijannarong,
Rósa Þuríður Þorsteinsdóttir, Bjarni Rafn Ingvason,
Eygló Helga Þorsteinsdóttir, Baldur Jón Helgason,
Margrét Harpa Þorsteinsdóttir, Oddur Helgi Halldórsson,
Ása Björk Þorsteinsdóttir, Kristþór Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns,
A. VIDARS OLSEN
byggingatæknifræðings,
Hvammsgötu 1,
Vogum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar 11B á
Landspítala við Hringbraut og líknardeildar Landspítala,
Kópavogi.
Nanna Sigurðardóttir.
✝
Móðir mín,
SVANHILDUR BÁRA ALBERTSDÓTTIR,
áður til heimilis í Hátúni 8,
Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
12. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Albert Birgisson.