Morgunblaðið - 24.02.2012, Síða 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
L
ögð er áhersla á rekjanleika alls hráefnis sem
notað er og þess gætt að leita ekki langt yfir
skammt því besta fæðan er yfirleitt skammt
undan, eins og Ægir minnir á.
Gestakokkur Satt í ár, Sarah Biglan frá Banda-
ríkjunum, er einkar spennandi og það sem meira er,
áherslur hennar falla sérlega vel að því sem Satt hef-
ur að leiðarljósi. „Við búumst við miklu af Söruh,“
segir Ægir. „Hún starfar sem Executive Sous Chef á
veitingastaðnum Ris sem er staðsettur í Washington
en staðurinn er nefndur eftir og rekinn af hinum
fræga kokki, Ris Lacoste. Þessi staður hefur verið
mjög vinsæll þar ytra en hann er í hlýlegum rustik-
stíl þar sem lögð er áhersla á tilgerðarlausa mat-
argerð,“ bætir Ægir við. Á Ris er boðið upp á árs-
tíðabundna ameríska matargerð þar sem blandað er
saman fersku grænmeti, lífrænu kjöti og svæð-
isbundnu sjávarfangi. „Þetta fer einstaklega vel við
það sem við á Satt erum að gera en þar er áhersla
einnig lögð á ferskmeti, hollustu og virðingu fyrir
umhverfi og náttúru. Matseðillinn ber þess svo sann-
arlega merki og erum við spennt yfir því að fá þenn-
an listakokk með okkur hér á Satt.“ jonagnar@mbl.is
Ferskt og hollt á Satt
Satt er heiti á nýjum veitingastað
sem staðsettur er í Icelandair Hótel
Reykjavík Natura. Þar fer mat-
reiðslumeistarinn Ægir Friðriksson
fimum höndum um úrvals hráefni.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Ægir Friðriksson er yfirkokkur á Satt á Hótel Natura. „Áhersla lögð á ferskmeti, hollustu og virðingu fyrir umhverfi og náttúru,“ segir Ægir.
Smakk Reykt silunga-pannacotta með sýrðum
sítrusrjóma og silungakavíar
Forréttur Epla- og nýpusúpa bragðbætt með
fjögurra krydda blöndu ásamt stökkum sól-
blómafræum
Milliréttur Steikt hörpuskel með túnsúru-
vínegrettu, lakkrísskyri, bökuðum rófum og
pönnusteiktri laufblöndu
Aðalréttur Lambafillet með rauðkáli, sellerírótar-
og valhnetukremi, kryddaðri trönuberjasultu og
rauðvínsgljáa
Eftirréttur Brauðbúðingur með súkkulaði og
perum
Matseðill