Morgunblaðið - 30.03.2012, Blaðsíða 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
Í
páskaeggjaframleiðslu sinni
leita starfsmenn Nóa Síríus
fanga jöfnun höndum suður á
Fílabeinsströnd og í íslensku
fornritin. Kakóbaunir vaxa á
trjánum í hinu framandi Afríkuríki
sem er langt sunnan miðbaugs og
merkingarhlaðnir málshættir í
eggjunum koma úr velþekktum ís-
lenskum ritum, til að mynda Ís-
lendingasögum og fleiri kjörritum
hins menningarlega gullforða þjóð-
arinnar. Búið þarf margs við enda
lætur nærri að fyrir páska fram-
leiði Nói – Síríus tvö egg á hvern
Íslending.
Þrjár nýjungar í ár
„Páskaeggin eru afar stór þáttur
í okkar starfsemi. Þegar jólaönn-
um lýkur taka eggin við og þetta
er vertíð sem stendur alveg frá
áramótum og til vors. Og þá tekur
raunar strax við ákveðið þróun-
arstarf, svo sem að ákveða nýj-
ungar í framleiðslu næsta árs og
hverju skuli skipt út en venjulega
erum við með fjórtán til fimmtán
vörunúmer í framleiðslu,“ segir
Kristján Geir Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs Nóa – Síríus.
Nýjungar Nóa þetta árið eru
þrjár. Í fyrsta lagi úr Pippsúkkul-
aði Pipp egg – en þau eru fyllt
með koníaki, karamellu og pip-
armyntu. Egg með Nóa-kroppi eru
önnur nýjung og svo og egg með
súkkulaðiperlum sem uppistöðu í
skurn eggsins góða. Eggin eru svo
fyllt af ýmsu sælgæti; svo sem kúl-
um, brjóstsykri, konfektmolum og
fleiru slíku – rétt eins og hefðin
býður.
Páskaskattur í eggjum
En hvaðan kemur páskaeggjas-
iðurinn? Í grein á Vísindavef Há-
skóla Íslands segir af því að á fyrri
öldum tíðkaðist að leiguliðar
greiddu landsdrottnum sínum
skatt nokkrum sinnum á ári og var
páskaskatturinn gjarnan greiddur
í eggjum. Á 17. öld varð algengt
hjá yfirstéttinni að gefa páskaegg
með trúarlegum myndum og heil-
ræðum. Þegar kom fram á 18. öld
fór að bera á hamingjuóskum, ást-
arjátningum og stríðni í stað
trúarlegra heilræða. Um svipað
leyti fóru menn líka að stinga orð-
sendingum samanbrotnum inn í
eggin.
Hér á landi voru páskaegg fyrst
auglýst og boðin til sölu um árið
1920 hjá Björnsbakaríi í Reykja-
vík. Eins og með ýmislegt annað
er þó líklegt að Íslendingar hafi
kynnst páskaeggjum í Danmörku
fyrr og þau farið að berast hingað
til lands um og upp úr aldamót-
unum 1900. Ekki er alveg ljóst,
segir á Vísindavefnum, hvenær
farið var að setja málshætti inn í
páskaeggin hér á landi en það hef-
ur þó tíðkast lengi. Nói fór að
framleiða súkkulaði í byrjun fjórða
áratugar síðustu aldar.
Lærðu listina í Danmörku
„Íslenskir súkkulaðigerðarmenn
lærðu listina í Danmörku og hafa
eflaust þar fengið hugmyndina að
því að setja málshætti inn í eggin.
Íslendingar virðast vera eina þjóð-
in sem haldið hefur þessum sið allt
fram á þennan dag,“ segir á Vís-
indavefnum.
Gerir sér gottið að góðu
„Súkkulaðið sem við steypum
páskaeggin úr er ekki ósvipuð til
dæmis hefðbundnu rjómasúkkulaði
en þeir sem best þekkja finna þó
að bragðmunurinn er til staðar,“
segir Kristján sem telur nærri láta
að fyrir hverja páska framleiði
Nói-Síríus allt í allt um 600 þúsund
súkkulaðiegg fyrir þjóðina sem
gerir sér gottið að góðu.
sbs@mbl.is
Fílabeinsströndin og fornritin
Tvö egg á hvern Íslending.
Páskaeggin stór þáttur í
starfi Nóa-Síríus. Ýmsar
nýjungar þetta árið. Gam-
all siður en málshættirnir
eru svo að segja sér-
íslensk hefð.
Morgunblaðið/Kristinn
Súkkulaði Nói Síríus framleiðir um 600 þúsund egg fyrir páskana. Sem jafnan sér ýmsa nýjunga stað þetta árið, segir Kristján Geir Gunnarsson sem stýrir markaðsmálum fyrirtækins.
’Páskaegg eru stórþáttur í okkar starf-semi. Þegar jólaönnumlýkur taka eggin við ogþetta er vertíð til vors.
Sellókonsert í E-moll eftir Edward Elg-
ar og sinfónía nr. 5 eftir Dmitri Shos-
takovich eru á dagskrá tónleika Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands og félaga
úr Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands sem haldnir verða í tónlistarhús-
inu Hofi á Akureyri á skírdag, 5. apríl,
kl. 15. Einnig kemur fram Sæunn Þor-
steinsdóttir sem leikur einleik á Selló.
Sæunn hefur þrátt fyrir ungan aldur
þegar skapað sér sess sem einn
fremsti sellóleikari okkar Íslendinga og
hefur komið fram sem einleikari með
fjölda sinfóníuhljómsveita víða um
heim.
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands hefur verið árlegur og mik-
ilvægur þáttur í starfsemi SÍ frá því
hún hélt sína fyrstu tónleika árið 2009.
Ungsveitin hefur hlotið mikla og verð-
skuldaða athygli enda margt sérlega
hæfileikaríkt ungt fólk þar á ferð.
Hljóðfæraleikarar á tónleikunum í
Hofi verða alls 85 og aldrei áður hefur
svo stór sinfóníuhljómsveit komið fram
í húsinu og það í tónleikasalnum
Hamraborginni sem er sérstaklega
hannaður fyrir flutning á klassískri tón-
list.
Sæunn Þorsteinsdóttir.
Sellókonsert og sinfónía
Hátíð í Hofi á Akureyri á
skírdagskvöld. Sígild dag-
skrá og glæsileg. Alls 85
hljóðfæraleikarar.
PÁSKATILBOÐ
FULLT VERÐ
139.900
109.900 17,6
kw/h
FULLT VERÐ
109.900
79.900
16,5
kw/h
FULLT VERÐ
59.900
42.900
Grill sem endast
FULLT VERÐ
54.000
44.900 16,5kw/h
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400 Opið laugardaga til kl.16
ÞETTA ER AÐEINS BROT
AF ÞEIM VÖRUM SEM
ERU Á PÁSKATILBOÐI
www.grillbudin.is
FULLT VERÐ
79.900
59.900
16,5
kw/h