Morgunblaðið - 30.03.2012, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ | 17
Þ
ennan hóp mynda um tíu
fjölskyldur sem eiga það
sameiginlegt að hafa
mikinn áhuga á að
ferðast um hálendi lands-
ins á breyttum og öflugum jepp-
um. Við höfum alltaf farið í góðan
leiðangur um páskana og í ár er
stefnan sett á Friðlandið að
Fjallabaki. Við höfum aðgang að
skála við Landmannahelli, þannig
að þetta verður örugglega hin
besta helgi í góðra vina hópi,“ seg-
ir Benedikt Magnússon.
Krakkarnir með snjóþotur
Hópurinn sem Benedikt til-
heyrir kallar sig Túttugengið og
hefur farið saman í hálendisferðir
um páskana í rúman áratug.
„Við erum búin að fara ansi víða
um hálendið. Þetta er fólk á öllum
aldri. Sú yngsta sem fer með í
ferðina að þessu sinni er eins árs.
Venjulega hefjast þessi ferðalög
miðvikudaginn fyrir páska og svo
förum við heim annan í páskum,
enda vinna daginn eftir hjá full-
orðna fólkinu. Við karlarnir eigum
það sameiginlegt að hafa mikinn
áhuga á breyttum jeppum. Allir í
hópnum hafa síðan ríka löngun til
að komast á staði sem fáir hafa
áður náð að sjá. Við erum með
vélsleða í þessum ferðum og leik-
um okkur á þeim eins og mögulegt
er og svo er auðvitað farið í öku-
ferðir, þá ræður færðin hvert farið
er. Krakkarnir eru með snjóþotur
og önnur leiktæki, þannig að þetta
er ein samfelld skemmtun fyrir
alla. Á kvöldin er spjallað og borð-
aður góður matur.“
Pyngjan ræður ferðinni
Verð á bensíni og olíu hefur
snarhækkað að undanförnu og eðli
málsins samkvæmt hefur sá bitri
veruleiki áhrif á ferðavenjur
jeppamanna.
„Það kostar um 100 þúsund
krónur að fylla tankinn á bílunum,
því reynum við að stytta ferðirnar.
Ég held að sömu sögu sé að segja
um aðra sambærilega hópa sem
fara á hálendið. Vonandi verða
snjóalög hagstæð í ferðinni,
draumurinn er að komast upp á
Torfajökul á jeppanum. Ég hef
reynt nokkrum sinnum að komast
á jökulinn, en færið hefur til þessa
ekki verið hagstætt. Ef það tekst
núna verður það auðvitað punkt-
urinn yfir i-ið.“
Börnin áhugasöm
Benedikt og kona hans Sigrún
Magnea Gunnarsdóttir eiga fjögur
börn sem fara öll með í páskaferð-
ina. „Áhugi krakkanna er mikill.
Þetta er ekki sport okkar sem
eldri erum. Það eru margir mán-
uðir síðan krakkarnir fóru að
skipuleggja páskaferðina á hálend-
ið. Svo er bara að vona að veðrið
verði sem best. Það jafnast fátt á
við að vera á hálendinu í góðra
vina hópi,“ segir Benedikt Magn-
ússon.
karlesp@simnet.is
Viðgerð Jeppamenn í viðgerðarbrasi í vetrarferð á Gæsavatnaleið. Fjallamaður Vonandi hagstæð snjóalög, segir Benedikt Magnússon.
Færðin
ræður
hvert
farið er
Samfelld skemmtun
fyrir alla aldurshópa.
Túttugengið í páska-
ferð. Ferðast um há-
lendi landsins á breytt-
um og öflugum
jeppum. Tíu fjölskyldur
saman að Fjallabaki.
ALDAGÖMUL HEFÐ
ÞROSKUÐ Í ÍSLENSKU UMHVERFI
Íslenskir mjólkurbændur kynna með stolti hina íslensku Óðalsosta.
Átta ostar byggðir á alþjóðlegri hefð og fullkomnaðir með besta
hráefni sem völ er á — íslenskri mjólk.
ERTU NÓGU ÞROSKAÐUR FYRIR BRAGÐIÐ?
ÚR FÓRUM MEISTARANS
OSTAR
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
S
A
58
05
6
01
/1
2