Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 18
Tæki Áhöldin eru ekki margbrotin. Fyrst og fremst þarf gleði í verkið.
18 | MORGUNBLAÐIÐ
Þó eggjagerðin sé ekki flókin
segir Sigríður vissara að gera
prufu í eldhúsinu nokkrum dög-
um áður en páskarnir ganga í
garð. Stundum þurfi örlitla til-
raunastarfsemi til að bæði ná
góðri súkkulaðiblöndu og svo til
að ná góðu valdi á handtökunum
við eggjagerðina.
„Það væri ekki gott að standa
í ströngu við eldavélina langt
fram á aðfaranótt páskadags og
mistökin verða frekar þegar fólk
er að flýta sér. En þegar búið er
að finna góða formúlu tekur
páskaeggjagerðin ekki langan
tíma.“
H
vað er betra en að
gæða sér á súkku-
laðieggi á páskum? Jú,
kannski að háma í sig
heimagert páskaegg,
fagurlega skreytt og einstakt, fyllt
af öllu uppáhaldsnamminu.
Sigríður Þorvarðardóttir á og
rekur verslunina Pipar og salt á
Klapparstíg í Reykjavík og segir
að mót til páskaeggjagerðar seljist
mjög vel. „Það eru örugglega yfir
20 ár síðan við fórum að selja
þessi mót og eftirspurnin hefur
alltaf verið að aukast. Við bjóðum
eggjamót í fimm stærðum, frá
dæmigerðri hænueggjastærð upp í
stór og vegleg egg í stærð 6 eða
þar um bil. Svo má ekki gleyma
mótum til að gera súkkulaðihéra,
en þau njóta líka mikilla vin-
sælda.“
Krepputíð virðist bara hafa auk-
ið áhuga landans á að gera eigin
páskaegg. „Á heimilum með mörg
börn geta mótin verið mjög fljót
að borga sig upp, en svo er þetta
líka kjörin leið fyrir þá sem hafa
ofnæmi eða óþol sem hamlar þeim
frá að borða venjuleg súkku-
laðiegg út úr búð,“ segir Sigríður.
„Við fáum einnig fjöldamargar
pantanir frá Íslendingum búsett-
um erlendis. Súkkulaðiegg á ís-
lenska vísu eru vandfundin úti í
heimi og ef eggin eru send með
pósti er alltaf hætta á að þau
brotni. Þess vegna fer fólk þá leið
að búa til sín eigin egg til að halda
í hefðina.“
Súkkulaðiblandan aðalmálið
Um er að ræða glær plastmót
sem móta „hömruð“ egg eins og
Íslendingar eiga að venjast. Fyrst
er skelin steypt og síðan fóturinn,
og svo allt límt saman og skreytt.
„Við látum fylgja með eggjunum
ljósrit úr páskablaði Morgunblaðs-
ins frá árinu 1994 þar sem farið er
mjög ítarlega yfir hvernig best er
að standa að páskaeggjagerðinni.“
Annars er eggjagerðin sáraein-
föld og fljótleg, að sögn Sigríðar.
„Aðalatriðið er að nota rétt súkku-
laði og ágætt að prófa sig áfram
til að finna réttu blönduna. Að
nota hjúpsúkkulaði hjálpar til,
bæði til að gera skelina harðari og
fá fallegan gljáa en svo er ekkert
sem segir að megi ekki bregða á
leik og t.d. bæta út í lakkrískurli.
Allt er hægt og þarf ekki að setja
sköpunargáfunni neinar skorður.“
Byrjað er á að bræða súkku-
laðið yfir heitu vatnsbaði. „Súkku-
laðinu er svo hellt eða því penslað
í mótin og gott að fara 2-3 um-
ferðir. Eggið er þvínæst látið í
kælinn um stund, og loks er eggið
tekið út, og ylurinn frá höndunum
notaður til að losa um eggið og
fella það úr mótinu,“ segir Sigríð-
ur og minnir a að helst má ekki
sápuþvo mótin og á að láta duga
að þurrka af þeim með eldhús-
bréfi. „Næsta skref er að fylla
eggin með því sælgæti, skrauti,
málsháttum og gjöfum sem hverj-
um hugnast best og svo eru sam-
skeytin límd með sykurhúð eða
súkkulaðirönd úr rjómasprautu.“
Þegar eggið er klárt og súkku-
laðifóturinn kominn undir hefur
súkkulaðimeistarinn frjálsar hend-
ur um skreytingar. „Hingað í búð-
ina hefur fólk komið til að sýna
mér heimagerð egg sem hafa verið
sannkölluð listaverk. Það má
hengja á eggin fallega borða,
fjaðrir eða annað páskaskraut, og
getur verið efni í mjög skemmti-
lega samverustund fyrir alla í fjöl-
skyldunni.“
ai@mbl.is
Ungar Í verslun Pipars og salts má fá margskonar páskaskraut sem er
gullfallegt og setur skemmtilegan svip á heimilið um hátíðarnar.
Margar pant-
anir frá Íslend-
ingum erlendis
Með góðum mótum er ekki mikill vandi að gera
eigið egg. Skiptir mestu að nota rétta súkku-
laðiblöndu. Mót til súkkulaðigerðar seljast vel.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mót Sigríður Þorvaldsdóttir með mótin sem þarf til páskaeggjagerðar. „Næsta skref er að fylla eggin með
því sælgæti, skrauti, málsháttum og gjöfum sem hverjum hugnast best,“ segir Sigríður hér í viðtalinu.
Gott að gera
prufu-
keyrslu