Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 2
2 finnur.is 29. mars 2012 Turninum 12. hæð - 201 Kópavogur - www.domusnova.is Axel Axelsson Löggiltur fasteignasali Heimir Bergmann Sími 822 3600 heimir@domusnova.is heimir.domusnova.is Nánari uppl. veitir Heimir Bergmann 4ra-5 herb. íbúð í Grafarholti óskast – fyrir viðskiptavin sem þegar hefur selt sína eign Flestum Íslendingum þykir snúið að aka þar sem vinstri bílaumferð er ríkjandi. Slíkt fyrirkomulag er jú spegilmynd þess sem við þekkjum, stýrið í bílunum öfug- um megin og hægastur vandinn að verða vananum að bráð og gera einhverjar gloríur, til dæmis þegar inn í hringtorg kemur þar sem allt gangvirkið er á röng- unni. Engu að síður var vinstri umferð við lýði í áratugi hér á landi og þeir sem fengu bílpróf fyrir 1968 muna slíkt fyrirkomu- lag. Það var nefnilega á því herrans ári sem skipt var yfir í hægri umferð hér á landi. Gamla lagið má glöggt sjá á mynd- inni hér til hliðar, sem tekin er í þann mund sem umbreytingin átti sér stað. Horft er í vesturátt frá gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar, og efst á myndinni til hægri glittir í gatnamót Miklubrautar og Rauðarárstígs. Flestir eru því eflaust fegnir að ráðist var í um- breytinguna þó það snemma enda væri umstangið, umfangið og tilkostnaðurinn við slíka aðgerð næsta óyfirstíganlegur nú á dögum. Tímavélin Ólafur K. Magnússon Vinstri hægri snú! Hún er þekkt fyrir skemmtileg uppátæki og framúrskarandi leik, en Ágústa Eva Erlendsdóttir á sér ýmsar hliðar sem ekki eru á allra vit- orði. Finnur sló á þráðinn og fékk hana til að deila nokkrum leynd- armálum með lesendum. Ágústa kemur um þessar mundir fram í leikritinu Ævintýri Múnkhásens sem sýnt er í Gaflaraleikhúsinu. 1. Ég stamaði þegar ég var lítil. Fingurinn beinist einna helst að eldri systkinum mínum, því þau kitluðu mig svo mikið. Ég hætti að stama án að- stoðar, þetta fór af sjálfu sér. En ég get dottið um orðin enn þann dag í dag ef ég verð mjög æst eða reið. 2. Þegar ég var barn og búsett í Hveragerði, fannst mér agúrkur bestar í heimi. Ég var oft kölluð Ágústa agúrka. 3. Ég á gleraugu sem ég þyrfti að nota, en nenni því aldrei. 4. Ég er eiginlega alltaf með kalda fingur og tær. 5. Ég trúði á yfirnáttúrlega hluti á tímabili, til dæmis guð, en geri það ekki lengur. Lífið virðist mun merkilegra og innihaldsríkara fyrir vikið. 6. Ég held að ég hafi drepið hest í æsku, óvart. Ég held að ég hafi eitrað fyrir hann um nokkurt skeið, gefið honum reglulega eitraðar jurtir. 7. Ég hef mikið teiknað í gegnum árin og á tímabili var ég í skóla að læra að teikna. Hver veit nema það eða eitthvað því tengt hefði komið í staðinn ef ég hefði ekki dottið inn í leiklistina. 8. Þegar ég var unglingur fór ég til útlanda í keppni í sápuóperuleik, ég fékk tilboð um að flytja til New York til þess að leggja sápu- óperuna fyrir mig. Ég gerði það ekki. 9. Ég er mjög gjörn á að sjúkdómsgreina sjálfa mig, oftast er það einhver alvarlegur sjúkdómur sem ég sannfæri sjálfa mig að ég sé með. Ég hef ekki verið greind með neitt þrátt fyrir ýmsar rann- sóknir. 10. Með því leiðinlegra sem ég á til að gera er það að labba, lengri vegalengdir, útilegur og gisting í tjaldi er þar með talið ásamt fjall- göngum, sem ég fer í bara gegn borgun. Svona 700 metrar myndi ég segja að væri þolanlegt. 11. Það skemmtilegasta sem ég hef séð í sjónvarpi eru breskir grín- þættir sem heita Nighty Night. Þeir eru skrifaðir af aðalleikkonu þáttanna Juliu Davis. Gálgahúmor af bestu gerð. 12. Ég hef áhuga á ættfræði. 13. Ég var feimið barn. Þegar ég komst á unglingsárin fór feimnin að renna af mér. 14. Við áttum heitan pott í bakgarð- inum okkar í Hveragerði og þar lágum við á sólríkum sumardögum. Sælar minningarnar úr þeim bænum og ég bið að heilsa öll- um sem þar eru! 15. Besta leiksýning sem ég hef séð var rússnesk áhuga- mannaleiksýning. Hún fékk mig til að skilja af hverju leikhús væru til yfirhöfuð. ai@mbl.is LEIKKONAN ÁGÚSTA EVA ERLENDSDÓTTIR 15 HLUTIR SEM ÞÚ VISSIR EKKI UM MIG 6 2 10 „Að stofna rokkhljómsveit og spila frumsamin lög er ekki krísa fyrir miðaldra karlmenn sem nenna ekki að ganga í Frímúrararegluna eða Oddfellow og klæðast mörgæsa- búningum. Nei, það er endalaus út- rás fyrir sköpunargleði, ósagðar sögur og skemmtilegheit,“ segir Karl Örvarsson. Hann er einn þeirra sem skipa hljómsveitina Trúboðana sem með sveitinni Heflunum held- ur tónleika á Græna hattinum á Ak- ureyri nk. laugardagskvöld. Herlegheitin byrja kl. 22. „Í báðum sveitum er að finna gamla spilafélaga sem leikið hafa í mörgum rokk- og poppsveitum Norðlendinga. Segja má að hér sameinist akureyrsk rokk- og tónlistarsaga í eitt,“ segir Karl Hann nefnir í þessu sambandi sveitirnar Zýkklana, Hún andar, Ex- it, Stuðkompaníið, Dægurlagapönkhljómsveitin Húfa, Útópía, og fleiri. „En hér er það rokkið sem gildir, orka sem fær fólk til að gleyma stund og stað,“ segir Karl. Heflar og Trúboðar á Græna hattinum á Akureyri á laugardagskvöld Ljósmynd/Daníel Starrason Alveg endalaus útrás Karl Örvarsson Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannes- sen Umsjón Jón Agnar Ólason jonagnar @mbl.is Blaðamenn Sig- urður Bogi Sævarsson sigurdurbogi@ mbl.is Ásgeir Ingvarsson, Bergljót Friðriksdóttir, Finnur Thorlacius. Auglýsingar finnur@mbl.is, sími 5691107 Prentun Landsprent ehf. Maturinn Nú er málið að taka stjórn á lífi sínu og koma sér upp nokkrum helstu kryddjurtunum, ferskum í pott- um. Ferskar kryddjurtir hefja all- an mat upp í æðra veldi en verðið út úr búð er oftast alveg úti í móa. Byrjaðu á steinselju, basil, mintu og blóðbergi, jafnvel rósmaríni, og þér mun vel farnast við matarborðið í framhaldinu. Menningin Ævintýri hins hraðlygna bar- óns von Münch- hausens eru með þeim galn- ari sem heims- bókmennt- irnar geyma, en um leið ómissandi skemmtun fyrir alla aldurs- hópa. Nú hefur Gaflaraleik- húsið sett baróninn á svið, með grallarann Gunnar Helgason í tiltilhlutverki. Við blasir að þetta er hittari. Þarfaþingið Tann- burstinn, gott fólk. Tannburstinn. Við fáum fregnir af því að tannheilsuleysi ógni heilli kynslóð vormanna Íslands því hér gera börnin meira af því að baða tennurnar í gosi en að bursta þær. Gyrðum í brók og gerum bragarbót á; það er miklu fyrirhafnarminna, ódýrara og síður kvalafullt að skrúbba tennurnar en að þurfa að fara í rótarfyllingu. Bókin Afmælisdagar með málsháttum er bráðsniðug bók og eitthvað svo ís- lensk. Bókin kom fyrst út árið 1950 en hefur nú litið dagsljósið í lít- illega endurbættri og uppfærðri útgáfu. Séra Frið- rik A. Friðriksson valdi máls- hættina upprunalega og sagði í inngangi um máls- hættina: „Eru gróði hverjum þeim er kann.“ Orð að sönnu. MEÐMÆLI VIKUNNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.