Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 16
16 finnur.is 29. mars 2012 V ið eigum svo marga hæfi- leikaríka tískuhönnuði og RFF er mikilvægur vett- vangur til að kynna þá, bæði hér heima og fyrir erlendum fagaðilum,“ segir Ellen Loftsdóttir, listrænn stjórnandi Reykjavík Fas- hion Festival sem fer fram dagana 30.-31. mars. Á tískuhátíðinni munu 11 íslenskir fatahönnuðir kynna í Hörpu haust- og vetrarlín- urnar 2012-13 og fjölbreytt dag- skrá verður í gangi víða um borg- ina. „RFF hefur vaxið jafnt og þétt frá því að hún var fyrst haldin vorið 2010. Hátíðin fer nú fram í þriðja sinn og hefur hún breyst þó nokk- uð. Formið hefur haldið sér nokk- urn veginn, við erum með margar sýningar sem raðast niður á tvo daga, en það sem hefur kannski breyst hvað mest er að við höfum þurft að stækka sýningastaðina frá ári til árs því áhuginn hefur aukist á meðal almennings. Það er mjög jákvætt fyrir okkur og það sem við stefndum að og sýnir að við erum að vekja athygli.“ Erlendir blaðamenn Ellen kveðst vera ákaflega stolt af því fólki sem stendur að baki verkefninu. „Tilgangur hátíð- arinnar er að styrkja tískuiðnaðinn á Íslandi og kynna hann hér heima og erlendis. Tískuiðnaðurinn er hluti af stóra samhenginu og við er- um þakklát þeim fjölda bakhjarla sem sjá hag sinn í því að styrkja RFF. Þá hafa til að mynda Icelandair og Icelandair Hotels verið ómet- anlegir stuðningsaðilar. Svona hátíð hefur keðjuverkandi áhrif í hagkerf- inu og er klárlega jákvæð innspýt- ing, til dæmis í ferðaiðnaðinum.“ Fjöldi erlendra blaðamanna sækir RFF heim, þar á meðal fulltrúar bæði þýska og ítalska Vogue. „Það hefur mikla þýðingu að fá erlenda tískublaðamenn sem koma hingað til að fylgjast með fjölbreytileika og framþróun í íslenskri tísku. Þar með fáum við dýrmætt tækifæri til að sýna hvað í okkur býr. Við erum að gera hluti ólíka því sem sést víða er- lendis og blaðamennirnir koma hingað og sjá eitthvað sem þeir sjá ekki á tískupöllum úti.“ Horft til Dana Hún leggur áherslu á að ekki sé síður mikilvægt að kynna íslenska hönnun fyrir okkur Íslendingum. „RFF er jafnframt mikilvægur vett- vangur til að kynna íslenska tísku- iðnaðinn fyrir íslenskum blaða- mönnum og almenningi. Það hefur svo margt skemmtilegt og spenn- andi verið að gerast hér síðastliðin þrjú til fimm ár á sviði fatahönnunar og fólk er orðið miklu meðvitaðra um tísku en áður. Það þarf samt að halda því vel á lofti hvað fatahönn- uðir eru að fást við og þar gegna fjölmiðlar auðvitað lykilhlutverki.“ Og hún heldur áfram: „Við erum fámenn þjóð og búum á lítilli eyju norður í hafi en erum svo rík að hæfileikamiklu og skapandi fólki. RFF er frábært tækifæri fyrir ís- lenska fatahönnuði til að sýna hvað í þeim býr. Við erum að stíga okkar fyrstu skref í að hasla okkur völl er- lendis en ef við gerum þetta rétt næstu ár og höldum okkar stefnu mun það skila sér margfalt til baka og allir munu njóta góðs af. Við erum gjörn á að horfa til Dana á ýmsum sviðum og það á líka vel við í tískuhönnun. Í Danmörku leggjast allir á eitt; aðilar í tískuiðn- aði, stjórnvöld og almenningur, við að gera veg fatahönnunar sem mestan. Við ættum að taka Dani okkur til fyrirmyndar og nota hugs- unarhátt þeirra sem innblástur. Á Íslandi er nægur kraftur og hug- myndaauðgi á sviði tísku. Við þurf- um að virkja þennan kraft og finna honum farveg, hér heima og erlend- is.“ beggo@mbl.is ÝR - Ýr Þrastardóttir BIRNA - Birna Karen Einarsdóttir Við þurfum að virkja þennan kraft Ellen Loftsdóttir er listrænn stjórnandi Reykjavík Fashion Festival sem fram fer dagana 30.-31. mars. Tilgangur hátíðarinnar er að styrkja tískuiðnaðinn á Íslandi og kynna ís- lenska hönnun, hér heima og erlendis, segir Ellen Loftsdóttir hjá RFF. Zizka - Harpa Einarsdóttir Milla Snorrason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.