Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 20
V ið erum stolt af því að reka fyrirtæki sem veitir fjölda fólks atvinnu, skapar gjaldeyri og sparar hann sömuleiðis. Áhersla okkar er á hönnun og vöruþróun á afurðum úr íslenskri ull og skinnum og að framleiðslan fari fram hér heima. Áhugi neytenda, íslenskra og erlendra, á íslensk- um framleiðsluvörum er vaxandi við núverandi aðstæður, bæði vegna náttúrulegs uppruna margra þeirra og eins vegna gæða og aukinnar áherslu á hönnun og vöruþróun,“ segir Birgitta Ásgrímsdóttir hjá ull- arvöruframleiðandanum Varma. Hönnun, handbragð, hráefni Á dögunum kynnti Varmi nýja mokkavörulínu fyrirtækisins sem Sigríður Heimisdóttir iðnhönn- uður skapaði. Fara þar saman ís- lenskt hugvit, hönnun, hand- bragð, hráefni og framleiðsla og má fullyrða að útkoman sé býsna góð. Að þróun línunnar komu, auk Sigríðar, starfsmenn Varma og Loðskinns á Sauðárkróki. Þá voru Impra – nýsköpunarmið- stöð á Akureyri og Íslandsstofa fyrirtækinu bakhjarlar í þessu verkefni. Í nýju mokkalínunni eru vörur eins og vesti, treflar, húfur, lúff- ur, veski og töskur, auk heimilisl- ínu sem samanstendur af púð- um, teppum, inniskóm og eldhúskollum. „Þá erum við með vörur úr ullarbandi sem ganga með þessari línu, svo sem húfur, trefla, sokka og fleira, auk þess sem íslenskt fiskroð er notað í nokkrar vörur. Útkoman af þessu öllu er umfangsmesta hönnunar- og vöruþróunarverkefni í ís- lenskri mokkaframleiðslu í lang- an tíma,“ segir Birgitta. Fiskur um hrygg Fyrirtækinu Varma hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum misserum. Hryggurinn í fram- leiðslunni hefur verið allskyns ullarvörur úr íslensku ullarbandi bæði undir merkjum Varma og í sérvöruframleiðslu fyrir fyrirtæki eins og Spakmannsspjarir, Farm- ers Market, Munda, Geysi Shops og Cintamani. Varmi er í dag stærsti fram- leiðandinn á vélprjónuðum ull- arvörum á Íslandi með fram- leiðslu á Hvolsvelli, á Akureyri og í Kópavogi. Segist Birgitta vænta þess að nýja mokkavörulínan sem framleidd er nyrðra leiði til þess að fyrirtækið fjölgi starfs- fólki fyrr en síðar. Beri í því sam- bandi að hafa í huga að útflutn- ingur á ullarvörum hafi aukist mikið – til dæmis til Skandinavíu og Danmerkur. Þá sé Þýska- landsmarkaður í sókn. Gefa nýsköpun gaum „Hönnun og vöruþróun er meðal burðarásanna í starfsemi okkar. Við munum leggja aukna áherslu á þessa þætti á næstu misserum. Hinsvegar er þetta kostnaðarsamt og því mikilvægt að selja á hverjum tíma sem mest og sækja fram á ný svið og markaði. Mikil tækifæri felast í hefðbundnum greinum á Íslandi með frekari vöruþróun. Það er líka margfalt ódýrara að nýta viðskiptatækifæri með nýsköpun í starfandi fyrritækjum en með uppbyggingu nýrra. Vissulega er ástæða til að örva nýsköpun með sprotum sem þróa nýjar lausnir fyrir nýjar þarfir, en nýsköpun í starfandi fyrirtækjum mætti gefa meiri gaum,“ segir Birgitta Ás- grímsdóttir að síðustu. Snotrir skór bera fótkulda ofurliði. Lúffurnar eru góð- ar á kalda lófa. Gestabækur í mokkaklæðum eru falleg gjafavara. Fallegt mokkavestið er virkilega skjólgóð flík. Veitum vinnu og sköpum gjaldeyri Varmi setur nýja fallega hannaða mokkavörulínu á markaðinn Morgunblaðið/Árni Sæberg „Hönnun og vöruþróun er meðal burðarásanna í starfsemi okkar,“ segir Birgitta Ásgrímsdóttir hjá Varma hf. atvinna Starfsferilinn byrjaði ég sextán ára gömul þegar ég vann í spunadeild Hampiðj- unnar við Brautarholt. Var í nokkur ár í skemmtilegu starfi þar sem bauðst næg aukavinna og góðar tekjur. Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar – stéttarfélags.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.