Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 29
sjálfskiptum bíl. Líklega er mesti munurinn á nú- verandi B-class og forveranum fólginn í undirvagninum sem sett- ur verður í svo marga bíla Benz á næstunni. Þar hefur Benz tekist frábærlega til og hálfgerður mun- aður er að keyra bílinn með svo góða fjöðrun. Hvað það varðar er hann alger bylting frá forver- anum, sem seint gat talist skemmtilegur. Bíllinn er á McPherson-gormum á framöxli og nýjum fjögurra liða afturöxli. Með nákvæmri stýring- unni er bíllinn eins og hugur manns og akstursins er notið í hvívetna. Með nýjum Benz B- class er komin fram ein magnað- asta kynslóðabreyting sem grein- arritari hefur orðið vitni að og ástæða til að hvetja bílakaup- endur til að kanna gripinn. finnurorri@gmail.com Mercedes Benz B-class Árgerð 2012 •Verð frá: 4.590.000 kr. • 4,4 l/100 í bl. akstri • Umboð:Askja • 0-100: 10,7 sek. • Hámark: 190 km/klst • Framhjóladrif •Mengunargildi: • 116 g CO2/km •Farangursrými 486 l./1.545 l. • 1,8 l. díselvél • 109 hö/250Nm • 7 gíra sjálfskipting • 16“ stálfelgur • Eigin þyngd: 1.505 kg • Burðargeta: 520 kg Feglur eru skemmtilega hannaðar og á akstri verður bílinn sportlegur að sjá. Í hönnun og mörgu fleiru tilliti er Mercedes Benz í fararbroddi. Línur bílsins eru sérlega sportlegar að sjá, bæði ljósabúnaður og annað. 29. mars 2012 finnur.is 29 „Þessi útgáfa af B-Class Mercedes-Benz er gjörbreytt frá fyrri gerð sem kom á markaðinn árið 2005. Að sjá er heildarsvipur bílsins líkur fyrri gerð. Þó hafa verið gerðar ýmsar breytingar og þegar sest er undir stýri leynir sér ekki að eitthvað nýtt og framandlegt er á ferðinni,“ segir Sigurður Pálmar Sigfússon, sölustjóri Benz hjá Öskju. „Bæði vél, skipting og stýrisgangur þessa bíls eru með allt öðrum hætti en í fyrri bíl og sama má segja um fjöðrun. Fyrir vikið er þessi bíll afskaplega mjúkur á vegi og fer vel með bæði ökumann og farþega. Heldur samt alveg þeirri Benz-tilfinningu sem jafnan einkennir bíla þessarar tegundar enda finnur maður vel að hörðustu Benz-mennirnir sætta sig vel við hann þennan. Finnst þeir alls ekki vera að taka niður fyrir sig þó hér séu þeir komnir á ódýrari og minni bíl.“ Við sölu á B-Class bílnum leggur Askja mesta áherslu á díselbílana sem kosta rétt tæplega 4,5 millj. kr. „Við náðum góðum samningum við framleiðandann og getum því boðið bílana á hagstæðu verði,“ segir Sigurður Pálmar. Litlu munar þó, sé bíllinn tekinn með ýmsum aukabúnaði sem mörgum þykir sjálfsagður og þarfur. Þá má geta þess að bíllinn mengar lítið og því greiðir ökumað- urinn til dæmis ekkert fyrir annars gjaldskyld stæði í miðborg Reykjavíkur. sbs@mbl.is B-Class Mercedes-Benz er breyttur frá fyrri útgáfu Mjúkur og fer vel með fólk Sigurður Pálmar Sigfússon. Gott úrval af notuðum bílum Komdu og skoðaðu úrvalið! Suzuki bílar hf • Skeifan 17 • 108 Reykjavík • Sími 568 5100 • www.suzuki.is Suzuki Swift Diesel Skr. 06.2009 Ek. 55.000 km. Diesel, beinsk. Verð kr. 1.850.000 Suzuki Grand Vitara Skr. 01.2005 Ekinn 78.000 km Bensín, beinsk. Verð kr. 1.560.000 Suzuki Grand Vitara LUXURY Skr. 06.2007 Ekinn 74.000 km Bensín, sjálfsk. Verð kr. 2.680.000 Toyota Land- Cruiser 150 Skr. 12.2010 Ek. 24.000 km. Dieses, sjálfsk. Verð kr. 8.390.000 Chevrolet Lacetti Stw. Skr. 01.2011 Ek. 28.000 km. Bensín, beinsk. Verð kr. 1.990.000 M. Benz ML400 Skr. 03.2004 Ek. 87.000 km. Diesel, sjálfsk. Verð kr. 3.850.000 Toyota RAV4 Skr. 02.2003 Ek. 125.000 km. Bensín, sjálfsk. Verð kr. 1.280.000 Suzuki Swift GL Skr. 06.2009 Ek. 63.000 km. Bensín, beinsk. Verð kr. 1.620.000 Suzuki SX4 4wd Skr. 12.2009 Ekinn 48.000 km Bensín, beinsk. Verð kr. 2.530.000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.