Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 17
29. mars 2012 finnur.is 17 S elfossbær var að stækka og öðlast svip raunveru- legs þéttbýlisstaðar þegar Hergeir Kristgeirsson og Fanney Jónsdóttir hófu byggingu einbýlishúss við Birkivelli þar í bæ. Gatan er austarlega í bænum og við vesturhluta hennar eru tveggja hæða rishús áberandi en einlyft hús austar. Flest húsin eru frekar lítil að grunnfleti enda byggð þegar efni fólks voru takmörkuð og kröfur um stærð aðrar en nú. Synirnir deildu herbergi „Sjálfsagt þótti að synir okkar deildu herbergi og þó eru sex ár á milli þeirra. Hvorugur held ég að hafi beðið nokkurn skaða af sam- býlinu,“ segir Hergeir sem býr á Birkivöllum 24. Þau Fanney eiga fjögur uppkomin börn sem öll hafa látið að sér kveða í lífi og leik, þótt á ólíkum sviðum sé. Margir þekkja til dæmis Þóri, þjálfara kvennalands- liðs Norðmanna í handknattleik sem vann heimsmeistaratitillin í handbolta fyrr á þessu ári. „Við byggðum húsið eftir teikn- ingu Bjarna Pálssonar, bygging- arfulltrúa á Selfossi, sem uppfyllti þær kröfur þessa tíma að hús væru mátulega stór og hönnuð af hugviti svo byggingarkostnaður ryki ekki upp úr öllu valdi. Teikningin stóð undir væntingum og húsið var fljót- byggt. Þá munaði um að vera sjálf- bjarga; sem gamall rafvirki gat ég lagt í, tengt, sett upp ljós og fleira,“ segir Hergeir. Mikið ágætisfólk Um miðan sjöunda áratug var Selfossbær á margan hátt líkastur sveitaþorpi. Sunnan við Birkivellina var óbyggt svæði, tún, kart- öflugarðar og rústir af fjárhúskró. Það leið þó ekki á löngu uns farið var að brjóta þetta svæði undir byggingarlóðir, íþróttaaðstöðu og skógrækt í svonefndum Rauðhól- um. „Lengi vel stóð þetta þannig af sér að út um gluggana sem snúa til suðurs var sjónlína sem ekkert skyggði á og ég sá alltaf í mína gömlu heimasveit, Gaulverjabæj- arhrepp í Flóanum. Ljósin á bæn- um Arnarhóli blöstu alltaf við mér. Það var svo um 1990 þegar fram- kvæmdir hófust við Grund- arhverfið á Selfossi sem tók fyrir þetta útsýni, sem mér þótti vissu- lega skaði,“ segir Hergeir og bætir við að eðlilega hafi margt breyst á Birkivöllunum á þeim 48 árum sem liðin eru síðan fjölskyldan flutti þangað. „Um daginn taldi ég saman þá sem hér hafa búið og lauslega reikn- að þá eru um sextíu manns héðan af Birkivöllum horfnir fyrir stapann; rúmlega einn á ári. Fólk kemur og fer og mér telst svo til að sum húsin séu búin að skipta fimm sinnum um eig- endur. Þar gæti ég nefnt húsið hér austan við mig, þar bjuggu lengi sveitungar mínir hjónin Aðalheiður Ólafsdóttir og Guðmundur Jónsson sem í áratugi var með mikla vinnu- vélaútgerð og var alltaf fljótur til að moka bílastæðin hér við húsin ef snjóaði sem gerist nú varla í síðari tíð. Þau fluttu héðan fyrir allmörgum árum og nú búa þarna Þórdís Jóns- dóttir og Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður, mikið ágætisfólk og þá lýsingu gæti ég notað um alla Birki- vallabúa,“ segir Hergeir. Kólesteról í klóakinu Við Birkivelli er skjólsælt enda eru trén við götuna orðin himinhá, svo einhverjum þykir nóg um. „Það var lengi lenska hér á Selfossi að gróð- ursetja aspir enda fljótsprottnar. Margir uggðu þó ekki að sér. Sjálfur var ég varaður við þegar þessir litlu sprotar sem við gróðursettum voru orðnir fjögurra metra tré og ræt- urnar svo rammar að mér fróðari menn töldu líklegt að þær myndu smeygja sér inn í frárennslisrörin og stífla allt gumsið. Þá ákvað ég hið snarasta að fella trén, enda þekki ég sjálfur hve válegt er þegar kól- esteról kemst í æðakerfið,“ segir Hergeir sem var lögreglumaður á Selfossi í 38 ár – lengst í rannsókn- ardeild. „Ég man ekki eftir því að upp kæmu nein mál hér í götunni að þau kölluðu á rannsókn lögreglu eða afskipti okkar. Jú, sjálfsagt hafa komið smámál eins og að strákar væru að henda snjóbolta í glugga húsa eða einhver missti fót- anna í tilverunni – en staðið fljótt upp aftur. Slíkum málum eru þeir sem starfa í lögreglu fljótir að gleyma, sem raunar er nauðsyn- legt í erilsömu starfi sem oft tekur á,“ segir Hergeir að síðustu. sbs@mbl.is Gatan mín Birkivellir á Selfossi Hafði sveitina mína í sjónlínu Morgunblaðið/Golli „Það var lengi lenska hér á Selfossi að gróðursetja aspir enda fljótsprottnar. Margir ugðu þó ekki að sér,“ segir Hergeir Kristgeirsson fv. lögreglumaður sem býr við Birkivelli þar í bæ, en gatan var byggð um og eftir 1960. Selfoss Ölfusá Birkivellir Austurvegur (þjóðvegur 1) Árvegur Hrísholt VallholtVallholt Víðivellir H ja rð ar ho lt Ra uð ho lt St ek kh ol t Engjavegur G re ni gr un d H eiðm örk Þórsm . G ræ na m . H ör ðu v. Grænuv. Re yn iv el lir Vandaðir og vottaðir ofnar Ofnlokasett í úrvali NJÓTTU ÞESS AÐ GERA BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA FINGERS 70x120 cm • Ryðfrítt stál KROM 53x80 cm • Aluminum / Ál COMB 50x120 cm • Ryðfrítt stál Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem gæði ráða ríkjum á góðu verði. Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Til sölu ef viðundandi tilboð fæst í jarðirnar NORÐUR BOTN I OG II í Tálknafirði. Um er að ræða landmiklar jarðir sem liggja að sjó og til fjalla með laxveiðiá og sjálfrennandi heitu og köldu vatni. Á jörðinni er seiðaeldisstöð sem er í útleigu. Að mörgu leiti mjög áhugaverð jörð. Sjá fasteignamiðstöðin.is Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar. magnus@fasteignamidstodin.is Tilboð óskast. Tilvnr. 10-1799 Til sölu NORÐUR BOTN I OG II TÁLKNAFIRÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.