Morgunblaðið - 29.03.2012, Page 18

Morgunblaðið - 29.03.2012, Page 18
18 finnur.is 29. mars 2012 Þ að er fátt meira sjarm- erandi en val hannaðrar og smíðaðrar viðarinn- réttingar. Í einbýlishúsi nokkru í strandbænum Venice í Kaliforníu eru slíkar innréttingar einmitt í forgrunni. Arkitektinn Marmol Redziner hannaði húsið í hólf og gólf og leyfði viðnum að fljóta óhindrað um herbergin. Að utan er húsið eitursvalt og þá sér- staklega rimlaklæðningin utan á húsinu sem stúkar af svalirnar. Garðurinn umhverfis húsið er ein- mitt vel hannaður og stílhreinn án þess að vera kuldalegur. Eldhúsið flæðir inn í stofuna og er einstaklega fallegt að hafa neðri hluta eyjunnar viðarklædd- an og kemur það vel út þegar horft er í átt að eldhúsinu úr stof- unni. Gólfin eru bæði flotuð og parketlögð og er húsið smekklega innréttað. Baðherbergið er viðarklætt að mestum hluta og kemur það ein- staklega vel út. Húsið er virkar svolítið lífrænt og kemur það ekki á óvart því íbúar Venice eru með- vitaðir um umhverfi sitt. Þeir smörtustu keyra um á Prius frá Toyota, borða hráfæði og stunda jógaæfingar grimmt. martamaria@mbl.is Hús Redziners er hið myndarlegasta að sjá, módernískt og smart. Aðkoman er gróin og fer það vel við skarpar línur hússins. Stílhreint þarf ekki að vera mínímalískt, eins og sjá má í barnaherberginu. Stór motta gefur stílhreinu svefnherbergi hlýlegt yfirbragð. Lífrænt einbýli í stjörnubæn- um Venice Lífrænt og sjálfbært í Suður-Kaliforníu Sjáið umfjöllun og fleiri myndir á mbl.is Viðarinnrétting og múrsteinn eru mótvægi við einfaldleikann á baðinu.Björt, opin og einföld stofan er glæsileg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.