Monitor - 24.05.2012, Blaðsíða 3

Monitor - 24.05.2012, Blaðsíða 3
SÓFAAFSLÖPPUN Kvikmyndin The Artist er komin á fl estar myndbanda- leigur landsins en myndin var, eins og mörgum er kunnugt um, fyrsta franska myndin til að vinna Óskarsverðlaunin sem besta myndin. Þrátt fyrir að vera svo til alveg hljóðlaus þá heldur hún athygli manns allan tímann enda ná karakterarnir með svipbrigðum sínum og líkamstjáningu að hrífa áhorfandann með sér. SÓFASTUÐ Monitor er ekki að fi nna upp hjólið þegar mælt er með góðu Eurovision-partíi. En það er engu að síður orðin sígild hefð hjá Íslendingum að samein- ast í heimahúsi með snakk og ídýfu og giska á það hver standi uppi sem sigurvegari. Svei mér þá ef Ísland tekur þetta ekki bara í ár. SÓ FAR SÓ GÚD Stjörnu- og Skaga- mönnum hefur gengið vel það sem af er Íslandsmótsins í knattspyrnu en þessi lið mætast í kvöld í Garðabænum. Þeir sem hafa áhuga á fótbolta ættu ekki að láta þennan leik framhjá sér fara því Skagi hefur unnið alla sína leiki hingað til og Stjarnan hefur boðið upp á skemmtilegan sóknarbolta eins og svo oft áður. „Ég hef mestar áhyggjur af því hvað ég er rólegur yfi r þessu, en þetta leggst mjög vel í mig og ég hlakka gríðarlega til að gera þetta,“ segir söngvarinn Matthías Matthíasson, betur þekktur sem Matti Matt. Á laugardaginn næstkomandi fellur það í hans hlut að kynna stig íslensku þjóðarinnar fyrir allri Evrópubyggð í beinni sjónvarpsútsendingu. Undanfarin ár hefur umrætt hlutverk verið í höndum stórglæsilegra sjónvarpskvenna á borð við Ragnhildi Steinunni og Þóru Tómasdóttur, en Matti segist hvergi banginn við að feta í þeirra fótspor. „Ég ætla svo sem ekki að reyna að feta í fótspor neins heldur bara gera þetta eins og ég geri þetta og reyna að hafa gaman af þessu.“ Það er þekkt innan Eurovision að stigakynnar reyni að stela senunni með því að nýta sínar fi mm mínútur í að lauma einhverjum brönd- urum að Evrópubúum. Hefur Matti einhver áform um slíkt? „Það sem maður þolir síst af öllu þegar maður horfi r á Eurovision er þegar þessir kynnar reyna að vera fyndnir þannig að sjálfsögðu ætla ég ekki að vera sú týpa (hlær). Ég ætla auðvitað að vera léttur og skemmtileg- ur en ég hyggst ekki segja brandara.“ Ætlar ekki að reyna við frönskuna Matti fylgdist grannt með gangi mála í undankeppninni í fyrradag og ennfremur hefur hann setið í Eurovision-spekingastól á sjónvarpsskjánum í vetur í þáttunum Alla leið, þar sem framlög allra landa til keppninnar hafa verið grannskoðuð. Að eigin sögn var hann mjög hrifi nn af frammistöðu Gretu Salóme og Jónsa. „Við hittumst nokkrir félagar sem vorum saman í Hárinu í fyrra og horfðum á Voffa okkar, Pétur Örn, standa sig vel á sviðinu. Mér fannst frammistaðan hjá okkar fólki stórkost- leg, þau voru frábær svo ég er auðvitað bara þokkalega bjartsýnn.“ Ásamt því að setja upp Eurovision-spekings- gleraugun í vor var Matti einn af Vinum Sjonna sem stigu á stokk í Eurovision fyrir hönd Íslendinga í fyrra, svo það er líklega óhætt að fullyrða að keppnin hafi skipað stóran sess hjá honum undanfarið ár. „Þetta hefur verið nördaár hjá mér í þessum efnum og þá spilar þátttakan í fyrra auðvitað líka inn í. Þá kynntist maður keppninni á nýjum forsendum sem keppandi og það opnaði augu manns betur fyrir því hvað þetta er skemmtilegt fyrirbæri,“ segir fyrrverandi Eurovision-farinn, en hverjum spáir hann tólf stigum frá Íslendingum? „Ég held að Svíar fái tólf stigin frá Íslandi, það er nánast fyrir fram ákveðið. Ég er meira að segja byrjaður að æfa mig að segja: „And our twelve points go to, Sweden!“. Ég hugsa að ég sleppi því hins vegar að segja það á frönsku.“ elg Eurovision-farinn fyrrverandi Matti Matt verður í nýju hlutverki á laugardag- inn þegar hann kynnir stig Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva Byrjaður að æfa Greta Salóme fæddist árið 1986, sem var einmitt árið sem Íslendingar tóku fyrst þátt í Eurovision. fyrst&fremst Greta Salóme Very happy with tonight’s results. Next step, get some sleep. Preparat- ions for the final start tomorrow morning :) #eurovision 22. maí kl. 22:40 Vikan á Erna Dís Schweitz Eriksdóttir Var að vinna mína fyrstu jóðlkeppni :D Vonandi ekki sú síðasta! 22. maí kl. 9:29 Halldór Halldórsson Bráðvantar myndir á hverjirvoruhvar - djamm myndir - hipsterar með byssuleyfi - hipsterar að grilla - hipsterar að hipsterast - wipzterar - sipsterar - gifsterar you name it - doridna@fiton.is 22. maí kl. 9:20 Í BLAÐINU FEITAST Strák- arnir í Tilbury voru að senda frá sér plötu og spila á Nasa í kvöld. Það styttist í Hróar- skeldu og ef lánið leikur við þig gætir þú farið þangað frítt. 6 4 Í nótt var sigurveg- arinn í American Idol krýndur og leit Monitor yfi r farinn veg. Mundi- er afar hæfi - leikaríkur drengur sem varð óvart fatahönnuður. MONITOR MÆLIR MEÐ... MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is) Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Þórhildur Þorkelsdóttir (thorhildur@monitor.is) Umbrot: Monitorstaðir Auglýsingar: Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.is) Forsíða: Styrmir Kári (styrmirkari@mbl.is) Myndvinnsla: Ingólfur Guðmundsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569 1136 Efst í huga Monitor Fullkomið kurteisishjal Stundum getur það verið ótrúlega erfi tt að standa sig vel í kurteisishjali. Maður á það til að vera alveg úti á þekju og muna ekkert hvar einhver einstaklingur er staddur í lífi nu almennt þó maður ætti að vera með það allt á hreinu. Auðvitað er þetta persónubundið því sumir virð- ast fæðast með þann hæfi leika að vera góðir mannþekkj- arar, muna öll nöfn, andlit og hvað hver og einn er að fást við á meðan að aðrir þekkja varla móður sína í sjón. Ég var alltaf ágætur í því að tengja saman nöfn og andlit á fólki en eftir því sem árunum fjölgar þeim mun erfi ðari verður sú kúnst því að það safnast alltaf fl eiri og fl eiri andlit í bankann. Í dag er ég í raun ennþá góður í því að muna andlitin en það tekur mig lengri tíma að tengja rétta nafnið við hvert og eitt fés. Það má vel vera að samskiptatæknin hafi þessi áhrif á mann, maður treystir orðið svo mikið á símann sinn eða Fésbókina og fi nnst vart taka því að leggja svona hluti á minnið. Að sama skapi þá fi nnur maður fyrir meiri pressu í hinu dags daglega lífi því maður ætti að vera með allt á hreinu varðandi allt og alla af því að upplýs- ingaöfl unin á að vera leikur einn á tímum internetsins. En tilfi nningin sem fylgir því að standa sig vel í kurteisihjalinu (e. small talk) er ótrúlega góð. Í mínum huga snýst hið fullkomna hjal um rétta blöndu af lengd samtals, tali um sjálfan sig, tali um viðmælandann og hæfi legan hressleika. Lengdin fer auðvitað eftir tilfi nn- ingu. Þegar maður fi nnur það á sér að maður sé að verða uppiskroppa með spurningar þá er fínt að leiða samtalið inn í einhver lokaorð. Það eru allir fegnir því að þurfa ekki að lenda í einhverri óþægilegri þögn með einhverjum sem þú þekkir ekkert svo vel. Það er líka rosalega sterkur leikur þegar maður getur sýnt það í spurningunum til viðmæl- andans að maður hafi einhverja hugmynd um hvað hann sé að stússa í lífi nu og svo er ágætt að geta súmmerað upp sjálfan sig á stuttan og skorinortan hátt án þess að gera viðmælandann þreyttan. Hvað varðar hressleikann þá gengur auðvitað ekki að vera of hress því þá virkar maður bara stressaður en það skiptir auðvitað máli að brosa smá og láta eins og þér líði vel að hitta viðkomandi. Svo er það náttúrulega snilld ef maður nær að henda inn einum góðum brandara svona rétt undir lokin. Þannig stendur viðmælandinn eftir og hugsar: „Mikið er alltaf gaman að hitta þennan einstakling.“ Nei, bara pæling. Ljúfar stundir, Jónsson Antoine Fons NYC = alltof mikið af Antoinette-um ... alltof mikil samkeppni... I better step my game up! 18. maí kl. 15:59 3 FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2012 MONITOR 8 Hemmi Gunn Styttist odum i heimferd, en herna losadi hitinn 44 gradur i morgun, en thad besta vid thetta allt, er ad thad er skollid a bliduvedur heima. Svo er bara ad njota sumarsins med stael. 21. maí kl. 2:55 11 MATTI MATT Á 30 SEKÚNDUM Fyrstu sex: 240975. Uppáhaldsframlag Íslands til Eurovision fyrir Coming Home: Maður leitar einhvern veginn alltaf í Nínuna. Uppáhalds erlenda Eurovision-lag frá upphafi : Gente di mare. Uppáhaldslag í ár: Kuula frá Eistlandi. Mín spá fyrir gengi Íslands: Topp fi mm, jafnvel alla leið. M yn d/ Ár ni S æ be rg „12 points go to Sweden!“

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.