Monitor - 24.05.2012, Blaðsíða 6

Monitor - 24.05.2012, Blaðsíða 6
6 MONITOR FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2012 Rokkhátíðin Roskilde Festival fer fram 5.–8. júlí næstkomandi. Monitor stendur fyrir leik í sameiningu við hátíðina þar sem vinna má ferð fyrir tvo á hátíðina. Hróaðu þig niður hvað þetta er gott! Uppruni: New Jersey, Bandaríkin. Starfandi frá: 1969. BRUCE SPRINGSTEEN & THE E STREET BAND 2.299.197 186.904 Uppruni: Eur Claire, Bandaríkin. Starfandi frá: 2006. BON IVER 244.271 1.195.314 Uppruni: Antibes, Frakkland. Starfandi frá: 2001. Þú ættir að þekkja þá vegna þess að... þeir eiga lagið Midnight City sem hefur notið vinsælda að undanförnu. Ekki missa af þeim vegna þess að... nýjasta plata hljómsveitarinnar, Hurry Up, We‘re Dreaming, sem kom út síðastliðið haust, þykir sú besta til þessa af sex breiðskífum svo ljóst er að sveitin er í banastuði. Ein handahófskennd staðreynd: Lagið Midnight City var valið lag ársins af hinni vinsælu tónlistarsíðu Pitchfork. M83 26.188 419.770 Uppruni: Kansas City, Bandaríkin. Starfandi frá: 2003. Þú ættir að þekkja hana vegna þess að... hún söng með hljómsveitinni Fun í laginu We Are Young. Ekki missa af henni vegna þess að... hér gæti verið á ferðinni stærsta stóra nafnið í R n‘ B- heiminum. Breiðskífa hennar árið 2010 fékk tilnefningu til Grammy- verðlauna, í aðallagi söngkonunn- ar á YouTube, Tightrope, rappar Big Boi úr OutKast auk þess sem hún er á mála hjá plötuútgáfu P. Diddy. Ein handahófskennd staðreynd: Janelle Monáe segir að persónan Dóróthea í Galdrakarlinum í Oz sé á meðal áhrifavalda hennar í tónlist. JANELLE MONÁE 273.159 140.943 Uppruni: Pittsburgh, Bandaríkin. Starfandi frá: 2007. Þú ættir að þekkja hann vegna þess að... hann er sennilega einn efnilegasti rappari heims en fyrsta hljóðversbreiðskífa hans kom út í nóvember síðastliðnum, þegar Miller var enn aðeins nítján ára. Ekki missa af honum vegna þess að... lagið Knock Knock er stemnings- og samsöngslag dauðans. Ein handahófskennd stað- reynd: Líkt og Wiz Khalifa kem- ur Mac Miller frá Pittsburgh og eru þeir nánir vinir. Miller hefur látið hafa eftir sér í viðtali að Khalifa sé honum sem bróðir innan tónlistarbransans. MAC MILLER 2.225.941 2.497567 Uppruni: Philadelphia, Bandaríkin. Starfandi frá: 1987. Þú ættir að þekkja þá vegna þess að... sveitin hefur verið eitt fl ottasta tónleikaband innan hip hop-geirans síðastliðinn áratug og áttu þeir lagið Seed 2.0 sem naut mikilla vinsælda árið 2002. Ekki missa af þeim vegna þess að... hljómsveitin túrar æ sjaldnar um Evrópu með árunum og tónleikar sveitarinnar á Hróarskeldu verða þeir einu á Norðurlöndunum í sumar. Ein handahófskennd staðreynd: Hljómsveitin starfar í hjáverkum sem húsbandið í spjallþættinum Late Night with Jimmy Fallon, sem Of Monsters and Men fóru einmitt á kostum í um daginn. THE ROOTS 37.774 496.276

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.