Monitor - 24.05.2012, Blaðsíða 21

Monitor - 24.05.2012, Blaðsíða 21
21 FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2012 MONITOR Þótt Quentin Tarantino eigi enn eftir um tvo mánuði í tökum á vestranum sínum, sem hann kýs að kalla suðra, slógu Weinstein-bræður um sig í Cannes þar sem þeir sýndu sjö mínútna brot úr Django Unchained. Þessar mínútur hafa lítið gert annað en magna enn eftirvæntinguna eftir myndinni. Þeir sem á horfðu virðast fl estir yfi r sig hrifnir enda benda myndbrotin til þess að Tarantino sé í toppformi. Ljóst þykir að Leonardo DiCaprio skemmtir sér konunglega í hlutverki aðal illmennisins, plantekrueigandans Calvin Candie. Hann sést brosa ljótu brosi og spreða hinu illræmda n-orði af miklu kappi. Jamie Foxx sýnir einnig hvað í honum býr sem Django þegar hann plaffar niður rasistaskríl. Foxx er sagður í miklum ham í myndinni og þykir vægast sagt svalur þegar hann kynnir sig gerir hann það með þessum eftirminnilegu orðum: “Django. The D is silent.” Jango er semsagt ekkert lamb að leika sér við frekar en nafni hans Fett í Star Wars. Gamla jaxlinum Franco Nero, sem gerði garðinn frægan í nokkrum Django- myndum fyrir einhverjum áratugum, bregður einnig fyrir og Don Jonson sést gera sig breiðan sem voldugur búgarðseigandi. Christoph Waltz leikur þýskan mannaveið- ara sem frelsar þrælinn Django og samþykkir í framhaldinu að hjálpa þrælnum að ganga milli bols og höfuðs á DiCaprio og hyski hans til þess að bjarga eiginkonu Django sem Candie heldur fanginni á búgarð síðnum. Waltz er sagður minna um margt á nasist- ann Hans Landa, sem hann lék í Inglorious Basterds og að hann sé allt í senn viðkunn- anlegur, fyndinn og hættulegur. Myndbrotið bendir til þess að Django Unchained verði eins og sígildur Sergio Leone spagetti-vestri jafnvel þótt hún eigi sér stað í New Orleans og Mississipi tveimur árum fyrir borgarastríðið. Eins og Tarantinos er von og vísa er tónlistarvalið í myndinni útpælt og ljóst að klassíkerar frá mönnum eins og Johnny Cash og James Brown munu hljóma í myndinni. Heilmikið hefur verið Twittað um sýnis-hornið og þar er meðal annars sagt að í myndinni verði nóg af blóði, mikill hlátur og að allt bendi til þess að Waltz eigi sviðið. Allt sem fyrir augu bar í Cannes er sagt nákvæm- lega eins og við var að búast frá Tarantino hvað varðar kvikmyndatöku, samtöl og útlit og að svo virtist sem Tarantino væri að gera vestra á sama hátt og hann gerði Kill Bill vol. 1 sem samúræja-mynd. Leikhópur myndarinnar er gríðarlega stór eins og vera ber þegar Tarantino er annars vegar en í þessum vestra tefl ir hann fram Kerry Washington, Samuel L. Jackson, Walton Goggins, M.C. Gainey, Don Johnson, Tom Savini, Anthony LaPaglia, rapparinn RZA, og að vitaskuld Foxx, DiCaprio, Waltz pg Johnson. Django Unchained verður frumsýnd um jólin. www.svarthofdi.is Nýjasta hefndarsagan Tarantino ...horfi r til framtíðar Það er klárt að framleiðendur Starhawk hafa verið á vel pússuðum ballskónum þegar þeir unnu að leiknum, enda lyktar hér all af stuði og klárt að markmiðið hefur verið aðeins eitt, að skemmta þeim sem spila. Hér fara leikmenn í hlutverk málaliðans Emmett Graves, en hann ásamt félaga sínum þarf að taka á öllu sínu til að berjast við hin illu Outcast kvikindi og að lokum taka niður foringja þeirra. Sögu- þráðurinn er ekki að fara taka Edduna fyrir handrit, heldur er hann einfaldlega til staðar svo leikmenn kynnist þessum heimi, læri að spila leikinn og undirbúa sig fyrir netspilunina sem er í raun hjarta leiksins. Starhawk er þriðju persónu skotleikur sem inniheldur bæði söguþráð sem 1-2 geta spilað og netspilun þar sem allt að 32 geta spilað saman. Fyrir utan hefðbundna skotleikjaspilun inniheldur leikurinn svokallað „Build & Battle“ kerfi þar sem leikmenn geta hamrað upp byggingar til að bæta varnir og til að fá hin ýmsu vopn og farartæki. Þetta bygging- arkerfi gerir leikinn dýpri og er á sama tíma mjög einfalt og skemmti- legt í framkvæmd. Netspilun Starhawk er einhver sú hraðasta, fjölbreyttasta og skemmti- legasta sem er í boði í dag, en leikmenn þurfa að hafa sig alla við til að bregðast við árásum óvina sem geta komið úr öllum áttum. Hér hjálpar til að stýringar leiksins eru mjög þægilegar sem gerir allan þennan hraða viðráðanlegan og hefur framleiðendum leiksins tekist vel upp með að fi nna hárrétt jafnvægi í stýringum og spilun leiksins. Grafíkin í Starhawk er ekki sú besta sem sést hefur, en efl aust hefur þar einhverju verið fórnað til að geta keyrt upp hraða leiksins. Tónlistin og hljóð þjóna sínu en eru svo sem ekki að lýsa upp heiminn með gæðum. Starhawk er leikur að mínu skapi, hér eru öll réttu atriðin dregin fram og undirstrikuð á kostnað annarra sem skipta minna máli þegar kemur að spilun. Niðurstaðan úr því er hraður og skemmtilegur skotleikur sem nær að velgja hörðustu skotleikjahausum undir uggum. Sturlaður stjörnuhaukur ÓLAFUR ÞÓR JÓELSSON TÖ LV U L E I K U R Tegund: Skotleikur PEGI merking: 16+ Útgefandi: Sony Computer Dómar: Gamespot 7,5 af 10 / IGN 9 af 10 / Eurogamer 7 af 10 Starhawk Django Unchained                                   !  "  ! #   $% &  '  ()%  !  *  !  + % ! ',',-.-,/,  - %   -,/,  %   0$%  %   #12     - % -,3,  %  ! 0$%  %  ! #12    4 5%        55 5%     ' 6!  * )%  !  ( %%)    !  05% !  -,*,    -,*, 5% 3  $    %   7 $  , 12 ) , 4       55      +)  8     !        -,*,     0$%     #92    3   :   % % ;7 !  : +4 *" <' 8( ( 4 /"=;3>;8 ?@A B C2 ?C                      

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.