Monitor - 24.05.2012, Side 8
8 MONITOR FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2012
Fyrsta og skær-
asta stjarnan
Þessi fyrsti sigurvegari Amer-
ican Idol er óneitanlega jafnframt
sá frægasti og farsælasti. Á þeim
áratug sem liðinn er frá sigri hennar
hefur hún selt rúmlega 23 milljónir
um heim allan ásamt því að vinna
til tvenna Grammy-verðlauna,
þrenna MTV-tónlistarverðlauna og
12 Billboard-verðlauna, svo eitthvað
sé nefnt.
Á sölulista Billboard er hún í
14. sæti yfir söluhæstu listamenn
síðasta áratugar.
Fyrsta platan hennar, Thankful,
náði efsta sæti á Billboard 200 en
hún innihélt meðal annars lagið
The Trouble With Love Is, sem er á
meðal hennar frægari laga, auk þess
sem hún seldist í tæplega þremur
milljónum eintaka.
Á jóladag árið 2003 keppti
Clarkson í fyrstu og einu World
Idol keppninni þar sem hún atti
kappi við sigurvegara Idol-keppna
í tíu öðrum löndum, þar á meðal
Will Young. Það var hins vegar
Norðmaðurinn Kurt Nilsen sem stóð
uppi sem sigurvegari keppninnar en
Clarkson lenti í öðru sæti.
Árið 2004 gaf Kelly Clarkson
út sína aðra plötu, Breakaway, og
tókst „hið ómögulega“ með því að
ná betri söluárangri með plötu tvö
heldur en þeirri fyrst. Platan seldist
í 12 milljónum eintaka um heim
allan, náði sexfaldri platínumsölu
í Bandaríkjunum og hristi hún þar
með hálfpartinn af sér „Idol-stimp-
ilinn“. Hún hlaut jafnframt tvenn
Grammy-verðlaun fyrir plötuna.
Söng þjóðsöng Bandaríkjanna á
stærsta íþróttaviðburði hvers árs þar
í landi, Superbowl, árið 2011.
Haustið 2011 gaf hún út
plötuna Stronger, sem er jafnframt
hennar fimmta breiðskífa, en titillag
plötunnar fékk til dæmis mikla
spilun hér í landi, líkt og í öðrum
heimshornum.
KELLY CLARKSON
1. sería
Fædd: 24. apríl 1982.
Andstæðingur í úrslitum: Justin Guarini.
Fann ástina
í WalMart
Ruben Studdard gekk virkilega
vel með fyrstu plötu sína, Soulful.
Fyrsta smáskífan, sem var tökulagið
Flying Without Wings sem Westlife
gerðu frægt, komst í 2. sæti á Bill-
board Hot 100 auk þess sem platan
náði platínumsölu í Bandaríkjunum,
það er seldist í rúmlega milljón
eintökum og komst á toppinn á
Billboard 200. Á plötunni var einnig
lagið Sorry 2004 sem gjarnan ómaði
á PoppTíví hérlendis.
Líkt og þekkt er í tónlistar-
heiminum fékk önnur plata Ruben,
gospelplatan I Need an Angel ekki
alveg jafngóðar viðtökur og sú fyrri
en seldist þó í yfir hálfri milljón
eintaka. Ári eftir útgáfu hennar, eða
2005, höfðaði Ruben mál gegn guð-
föður sínum og viðskiptaráðgjafa
fyrir að hafa dregið til sín fjármuni
frá reikningum hans. Málið var
dæmt Ruben Studdard í hag.
Þriðja plata kappans, The
Return, sem kom út haustið 2006
heppnaðist ekki betur en svo að
hann missti plötusamning sinn eftir
dræma sölu hennar.
Birtist sem hann sjálfur í
myndinni Scooby-Doo 2: Monsters
Unleashed árið 2004. Auk þess
hefur hann leikið í minni myndum,
sjónvarpsþáttum og söngleikjum.
Kynntist eiginkonu sinni, Surata
McCants, í október 2006 er hann
var að árita geisladiska í WalMart
í Atlanta en þau skildu síðastliðið
haust.
Ruben og Clay Aiken, sem beið
lægri hlut gegn honum í úrslitum
American Idol, fóru saman í
tónleikaferðalag um Bandaríkin
árið 2010. Sama ár tilkynnti hann í
viðtali að hann heðfi misst um 36
kíló frá Idol-sigrinum.
Nýjasta og fimmta breiðskífa
hans, sé „Best of-plata“ hans tekin
með, kom út í mars síðastliðnum og
heitir Letters from Birmingham.
RUBEN STUDDARD
2. sería
Fæddur: 12. september 1978.
Andstæðingur í úrslitum: Clay Aiken.
Raunveruleika-
þáttur og sjálfs-
vígstilraun
Fyrsta smáskífa Fantasia, I Beli-
eve, rataði á toppinn á Billboard Hot
100-listanum. Fyrsta plata hennar,
Free Yourself, rataði í áttunda
sæti Billboard 200-listans og náði
platínumsölu í Bandaríkjunum.
Hún hefur allt í allt gefið út þrjár
hljóðversbreiðskífur, verið tilnefnd
átta sinnum til Grammy-verðlauna
og hreppt slíkt verðlaun sinu sinni.
Hún hefur fengið sinn skerf
af dökku hliðum stjörnulífsins en
pabbi hennar höfðaði meiðyrðamál
gegn henni eftir útgáfu ævisögu
hennar auk þess sem hún varð
miðpunktur í harðri hjúskapardeilu
sem endaði með málaferlum þar
sem hún hafði tekið saman við
giftan mann. Um það leyti var hún
flutt án meðvitundar á sjúkrahús
eftir að hafa tekið of stóran skammt
af svefnlyfjum sem hún viðurkenndi
síðar að hafi verið sjálfsvígstilraun.
VH1 hefur framleitt tvær þátt-
araðir af raunveruleikaþáttum um
hana sem heita Fantasia for Real.
Aðdáendur Fantasia binda vonir
að hún sé komin á beinu brautina á
ný en hún vinnu nú að sinni fjórðu
breiðskífu.
FANTASIA BARRINO
3. sería
Fædd: 30. júní 1984.
Vann American Idol árið: 2004.
Andstæðingur í úrslitum: Diana DeGarmo.
Fór út í veitinga-
staðarekstur
Áður en Taylor Hicks vann
American Idol hafði hann gefið út
fáeinar plötur. Fyrsta plata hans
eftir sigurinn mikla var samnefnd
plata sem innihélt smáskífuna „Do
I Make You Proud“ sem fór beint í
fyrsta sæti á Billboard Hot 100-
listanum. Þó svo að platan hafi náð
platínumsölu innan Bandaríkjanna
er hún samt ein af minnst seldu
frumraunarplötum sigurvegara frá
American Idol frá upphafi.
Hann gaf út æviminningabókina
Heart Full of Soul: An Inspirational
Memoir About Finding Your Voice
and Finding Your Way árið 2007 og
fékk að sögn greidda 750 þúsund
dollara fyrir.
Hann tók þátt í uppsetningu á
hinum ódauðlega söngleik Grease
á Broadway árið 2008. Þar fór hann
með hlutverk „Teen Angel“.
Að lokinni útgáfu á fyrstu
plötunni eftir Idol-sigurinn missti
Hicks plötusamning sinn og gaf
því út sína aðra breiðskífu (eftir
sigurinn) hjá eigin plötuútgáfu árið
2009. Samkvæmt skrám Billboard er
platan „aðeins“ sögð hafa selst í 52
þúsund eintökum.
Hann opnaði sinn eigin eigin
veitingastað, ORE Drink and Dine, í
heimaborg sinni árið 2011.
TAYLOR HICKS
5. sería
Fæddur: 7. október 1976.
Andstæðingur í úrslitum: Katharine McPhee.
Drottning
kántrítónlistar
Carrie Underwood er líklega
farsælasti Idol-sigurvegarinn fyrir
utan Kelly Clarkson. Fyrsta plata
hennar, Some Hearts, náði sjöfaldri
platínumsölu í Bandaríkjunum og
er mest selda plata Idol-sigurvegara
frá upphafi.
Önnur og þriðja breiðskífa Und-
erwood náðu þrefaldri og tvöfaldri
platínumsölu innan Bandaríkjanna
og fjórða plata hennar kom út í
byrjun þessa mánaðar.
Söngkonan hefur sópað að sér
verðlaunum frá sigrinum mikla.
Þar á meðal hefur hún unnið fimm
Grammy-verðlaun, sextán Billboard-
verðlaun og sex sinnum hefur hún
unnið Amerísku tónlistarverðlaunin.
Hún hefur tvívegis verið valin
kynþokkafyllsta vegan-grænmeti-
sæta heims af PETA. Chris Martin
hefur fengið sömu útnefningu.
Hún giftist hokkíleikmannin-
um Mike Fisher sumarið 2010, á
meðal gesta í brúðkaupinu voru
Simon Cowell, Paula Abdul og Randy
Jackson. Áður hafði hún verið með
leikaranum Chace Crawford sem
leikur Nate í Gossip Girl.
Fyrr á þessu ári var hún útnefnd
„ríkjandi drottning kántrítónlistar-
innar“ af Billboard.
CARRIE UNDERWOOD
4. sería
Fædd: 10. mars 1983.
Andstæðingur í úrslitum: Bo Bice.
Í tilefni af því að 11. sería American Idol lauk í nótt vestan-
hafs kannaði Monitor hvernig fyrri Idol-stjörnum hefur
gengið að fóta sig í heimi stórstjarna eftir sigra sína
Skína þær
2002
2003
2004
2005
2006