Monitor - 24.05.2012, Side 9
9FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2012 Monitor
Eigin fatalína
og eigin ilmvötn
Jordin Sparks varð yngsti
sigurvegari American Idol þegar hún
bar sigurorð af Blake Lewis.
Fyrsta plata hennar, sem
heitir einfaldlega Jordin Sparks, náði
platínumsölu og innihélt meðal
annars lagið No Air sem hún söng á
móti Chris Brown.
Hún söng þjóðsöng Bandaríkj-
anna fyrir stærsta íþróttaviðburð
ársins þar í landið árið 2008,
Superbowl XLII.
Hún hefur hannað eigin fatalínu
ásamt því að gefa út tvö ilmvötn
undir eigin nafni.
Hún gaf út sína aðra plötu,
Battlefield, árið 2009 sem náði þó
ekki jafnháu flugi og frumraunin.
Hún leikur í söngleikjamyndinni
Sparkle sem kemur út á árinu en
Whitney Houston heitin fer með
aðalhlutverk í myndinni.
Hún á nú í ástarsambandi með
Jason Derulo og vinnur að sinni
þriðju breiðskífu.
JORDIN SPARKS
6. sería
Fædd: 22. desember 1989.
Andstæðingur í úrslitum: Blake Lewis.
Sykursæti
upphitarinn
Kris Allen varð fyrsti gifti
maðurinn til að vinna American Idol
þegar hann vann árið 2009 en hann
giftist æskuástinni ári fyrr.
Líkt og hjá mörgum fyrirrenn-
urum sínum hét fyrsta plata Kris
Allen eftir honum sjálfum. Í fyrstu
vikunni seldist platan aðeins í 80
þúsund eintökum sem þá voru
lægstu sölutölur í fyrstu viku hjá
nokkrum sigurvegara American
Idol. Platan seldist alls í rúmlega 300
þúsund eintökum og náði því ekki
gullsölu.
Sumarið 2010 túraði hann um
Bandaríkin sem upphitunaratriði
fyrir Maroon 5 og Keith Urban og
hann hefur einnig farið í tón-
leikaferðalag með OneRepublic og
Daughtry, sem einnig keppti í Idol.
KRIS ALLEN
8. sería
Fæddur: 21. júní 1985.
Andstæðingur í úrslitum: Adam Lambert.
Fékk skósamn-
ing að launum
Viku eftir að David vann Amer-
ican Idol sló hann met á Billboard
Hot 100-listanum þegar finna mátti
ellefu lög með honum þar.
Eftir sigurinn skrifaði hann
undir samning við skóframleiðand-
ann Skechers.
Fyrsta breiðskífa hans, sem hét
David Cook, kom út haustið 2008 og
náði platínumsölu.
Árið 2008 stofnaði hann til
sambands við Kimberly Caldwell
nokkra sem gerði garðinn frægan
í 2. seríu American Idol. Sambandi
þeirra lauk síðar það ár.
Árið 2009 féll bróðir hans
frá vegna heilaæxlis og síðan þá
hefur David Cook verið iðinn við að
vekja athygli á styrktarsjóðum og
baráttunni við krabbamein.
DAVID COOK
7. sería
Fæddur: 20. desember 1982.
Andstæðingur í úrslitum: David Archuleta.
Fer í háskóla
í haust
Scotty McCreery reif upp heiður
Idol-stjarnanna á ný með öflugri
plötuútgáfu beint eftir sigurinn í
fyrra. Platan hans, Clear as Day,
seldist í 197 þúsund eintökum í
fyrstu vikunni, náði platínumsölu
í heildina auk þess sem hún rataði
í efsta sætið á plötusölulistanum
Billboard 200. McCreery varð þar
með fyrsti Idol-sigurvegarinn til að
ná plötu í toppsæti listans síðan
Ruben Studdard náði því.
Túraði um Bandaríkin sumarið
2011 með kántrítónlistarmanninum
Brad Paisley.
Hann mun hefja skólagöngu í
North Carolina-háskólanum næsta
haust sem verður eflaust athyglis-
vert að fylgjast með, enda Idol-
stjarnan ansi upptekinn.
SCOTTY MCCREERY
10. sería
Fæddur: 9. október 1993.
Andstæðingur í úrslitum: Lauren Alaina.
Verst selda
„American
Idol-platan“
Þegar Lee DeWyze vann níundu
seríu American Idol hafði hann þá
þegar gefið út tvær plötur á eigin
vegum sem þó sköpuðu honum litla
frægð.
Frumraunarplata hans eftir
sigurinn, breiðskífan Live It Up, ber
þann óspennandi titil að vera sú
frumraunarplata American Idol-
stjörnu sem selst hefur verst allra.
DeWyze missti samning sinn
við plötuútgáfufyrirtækið sem hann
var á mála hjá eftir söluna dræmu.
Hann er trúlofaður fyrirsætu og
leikkonu að nafni Jonna Walsh sem
lék til dæmis í myndinni Faster á
móti Duane Johnson, áður þekktur
sem The Rock.
LEE DEWYZE
9. sería
Fæddur: 2. apríl 1986.
Andstæðingur í úrslitum: Crystal Bowersox.
Hver er
ellefta
stjarnan?
Úrslitin í 11. seríu American Idol voru tilkynnt
í gærnótt en þá áttust þau Phillip Phillips og Jess-
ica Sanchez við í úrslitaþættinum. Úrslitin um
næstu Idol-stjörnu lágu þó fyrir áður en Monitor
fór í prentun og er áhugasömum bent á opinberu
heimasíðuna, americanidol.com
enn jafn skært?
2007
2008
2009
2010
2011
2012