Morgunblaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2012 Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. • Bodrum í Tyrklandi Frá kr. 124.900 24. ágúst í 11 nætur með allt innifalið Heimsferðir bjóða ferðir til Tyrklands í allt sumar og fram á haust. Núna erum við með sérstakt tilboð á Bitez Garden Life Hotel & Suites 24. ágúst í 11 nætur. Frá kr. 124.900 - allt innifalið í 11 nætur Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í fjölskyldu herbergi. Netverð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 139.900 á mann. Sértilboð 24. ágúst í 11 nætur. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is Margir kaupmenn og fasteignaeig- endur við Laugaveginn í Reykjavík eru mjög óánægðir með hækkun bílastæðagjalda í miðborginni, en hækkunin tekur gildi í dag. Frank Michel- sen, úrsmiður og kaupmaður á Laugaveginum, telur að hækk- unin eigi eftir að valda kaup- mönnum í miðbæ Reykjavíkur miklum skaða. „Stæðunum fer stöðugt fækkandi í miðborg Reykjavíkur. Borgaryfirvöld eru alltaf að gera aðgengið að búðunum erfiðari. Áður fyrr var t.d. mikil um- ferð fram hjá minni búð á morgnana. Nú er þetta algjörlega horfið,“ segir Frank, en hann telur að þetta megi m.a. rekja til erfiðs aðgangs bíla í miðbæ Reykjavíkur. Frank segir borgaryfirvöld vera full af hroka, en hann telur að með þessum aðgerðum sé verið að vega að eldri borgurum og hreyfihöml- uðum. „Hvert á fólkið sem á erfitt með gang að fara? Á það bara að fara eitthvert annað?“ segir Frank, en hann telur að viðhorf borgar- yfirvalda eigi einnig eftir að bitna á þeim sem búa í úthverfum og á landsbyggðinni. Frank gefur lítið fyrir þau rök borgaryfirvalda að hækkunin eigi eftir að styrkja miðbæinn, en hann telur að mál kaupmanna í mið- bænum eigi bara eftir að versna. „Á hvaða plánetu lifa þessir menn? Ég get ekki ímyndað mér það að 50% hækkun bílastæðagjalda um leið og stæðum fer fækkandi eigi eftir að styrkja miðbæinn,“ segir Frank. Aðspurður hvort borgaryfirvöld hafi haft eitthvert samráð við kaup- menn á Laugaveginum, segir Frank að það sé lítið sem ekkert. „Þeir hafa ekkert samráð við okkur. Samráð í þeirra huga eru einhliða ákvarðanir og tilkynningar,“ segir Frank. Morgunblaðið/Árni Sæberg Laugavegurinn Dressmann tók nýlega þá ákvörðun að loka búðinni á Laugaveginum í haust vegna tapreksturs. Telur hækkun gjalda valda miklum skaða  Sakar borgaryfirvöld um hroka  Hækkun tekur gildi í dag Frank Michelsen Alþjóðlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson gerði jafntefli við þýska stórmeistarann og lands- liðsmanninn Rainer Buhmann í 9. og síðustu umferð Czech Open sem lauk um helgina. Hjörvar var grátlega nálægt því að ná lokaáfanga að stórmeistara- titli. Árangur hans samsvaraði 2598 skákstigum en til að ná áfanga þarf árangur upp á 2600 skákstig. Sigur í síðustu skákinni hefði fært honum stórmeistaratitilinn. Fram kemur á heimasíðu Skák- sambands Íslands að Hjörvar hækki um 11 stig fyrir frammistöðu sína og fór upp hann þar með upp fyrir Hannes Hlífar Stefánsson og Hen- rik Danielsen skv. stigalista ís- lenskra afreksmanna. Er þar í fjórða sæti á eftir Jóhanni Hjartar- syni, Héðni Steingrímssyni og Helga Ólafssyni með 2517 skákstig. Hjörvar hlaut 6,5 vinning og end- aði í 5.-19. sæti. Sigurvegari móts- ins var ísraelski stórmeistarinn Tamir Nabity en hann hlaut 7,5 vinning. Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli við hvít-rússneska stór- meistarann Sergey Kasparov í lokaumferðinni. Hannes hlaut 6 vinning og endaði í 20.-37. sæti. Ár- angur Hannesar samsvaraði 2516 skákstigum og stendur hann í stað á stigum eftir mótið. sisi@mbl.is Hjörvar Steinn hársbreidd frá titli Morgunblaðið/Ómar Hjörvar Titill innan seilingar. Árlega flýgur Félag íslenskra einkaflugmanna með krabbameins- veik börn og var að þessu sinni flog- ið frá Múlakoti í Fljótshlíð en þar voru börnin ásamt fjölskyldum sín- um í útilegu. Samkvæmt hefðinni er flogið með litlum einkaflugvélum en að þessu sinni barst verkefninu heldur betur liðsauki þegar stærsta þyrla Norðurflugs og TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, mættu á svæðið til að fljúga útsýnishring með börnin. „Við mættum með stærstu þyrluna okkar hjá Norður- flugi sem er átta farþega þyrla af gerðinni Daulph,“ segir Jón Kjart- an Björnsson, yfirflugstjóri hjá Norðurflugi. Norðurflug tók þátt í því að fljúga með krabbameinsveiku börn- in í ár að sögn Jóns til þess að létta álagið á einkavélarnar sem taka færri farþega og til að tryggja að engin börn verði skilin útundan. „Þetta var í sjálfu sér ekki langur túr sem við tókum því við vildum leyfa sem flestum að prófa að fara í þyrluna en það þótti öllum voðalega gaman og börnin brostu allan hringinn.“ Kostnaðurinn við útsýnisflugið segir Jón vera óveru- legan og að félagið sjái ekki eftir einni einustu krónu. „Brosið á börn- unum borgaði alla ferðina fyrir okkur.“ Jón segir að verði þyrlur félags- ins lausar að ári komi vel til greina að endurtaka leikinn. Brosið á börnun- um borgaði ferðina  Norðurflug og Gæslan flugu útsýnis- flug með krabbameinsveik börn Ljósmynd/Valur Stefánsson Flug Börnunum þótti mjög skemmtilegt að fá að koma um borð í þyrlu og fljúga með henni. Forsvarsmenn Dressmann tóku nýlega þá ákvörðun að loka búð þeirra á Laugaveginum, en búðin hefur verið rekin með tapi síðastliðin ár. „Salan hefur dregist saman seinustu ár og það hefur ekkert upp á sig fyrir okkur að hafa búð á Laugaveginum. Leigan er rándýr og eigendur Dressmann erlendis hafa lengi velt þessu fyrir sér. Þetta er mjög leiðin- legt. Þetta er fyrsta Dressmann búðin sem er opnuð á Íslandi,“ segir Jóhann Ingi Davíðsson framkvæmdastjóri. Dressmann hefur einnig rekið búðir í Smáralind, Kringlunni og á Akureyri, en að sögn Jóhanns verða þær búðir áfram opnar. Loka Dressmann á Laugavegi HEFUR VERIÐ REKIN MEÐ TAPI UNDANFARIN ÁR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.