Morgunblaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2012 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Norræn prjónaráðstefnaGavstrik, danskra gras-rótarsamtaka prjóna-áhuga- og fagfólks, verður haldin í Borgarnesi í byrjun ágúst. Það er prjónablaðið Lopi og band sem skipuleggur ráðstefnuna sem er haldin til skiptis í litlum bæjum eða þorpum á Norðurlönd- unum. Gavstrik-samtökin voru stofnuð fyrir rúmlega 20 árum og er þetta í annað sinn sem þingið er haldið á Íslandi. Rík handverkshefð á svæðinu „Ég kynntist þessum sam- tökum fyrir nokkrum árum þegar slíkt þing var haldið á Hellu og ég var þá á meðal kennara. Það voru nokkrar konur sem starfað hafa hjá Kvenfélagasambandinu sem tóku að sér skipulagninguna en þingið er ætíð unnið af heima- fólki á þeim stöðum sem það er haldið. Mér fannst síðan tími til kominn að halda slíkt þing hér aft- ur og hafði samband við stjórn Gav- strik í nafni Prjónablaðsins Lopi og Band sem ég rek ásamt vinkonu minni Margréti Lindu Gunnlaugs- dóttur. Tekið var vel í þá hugmynd að halda þingið í ár á Íslandi og hófst undirbúningur fyrir tveimur árum síðan. Borgarnes varð fyrir valinu því staðsetningin er þægileg og eins mikil handverkshefð á svæðinu og marga spennandi staðir þar að skoða sem tengjast prjóni,“ segir Ásdís Birgisdóttir textíl- og prjónahönnuður. Framandi prjónaland Þátttakendur á þinginu verða Prjónakonur sam- einast í Borgarnesi Áhugafólk um prjónaskap víða um heim kemur saman á norrænni prjónaráð- stefnu í Borgarnesi í byrjun ágúst. Á ráðstefnunni verða námskeið í hefðbundinni tækni og handverksþekkingu jafnt sem skapandi og frumleg verkefni og útfærslur. Skipuleggjandi Ásdís Birgisdóttir gefur út prjónablaðið Lopi og Band. Heklgraff Hægt verður að fylgjast með vinnu Tinnu Þóru Þorvaldsdóttur. Uppskriftirnar á vefsíðunni smoothieweb.com eru fjölbreyttar og sumar öðruvísi og skemmtilegar. Þar er að finna uppskriftir að alls konar þeytingum sem er gott að fá sér í morgunmat eða á milli mála. Sem dæmi má nefna karamellu- og ban- anahristing sem í er létt vanillujóg- úrt, banani, möndlu- eða sojamólk, karamellusósa eða síróp og síðan klaki og kanill, engifer eða negull eft- ir smekk. Næst þegar þig vantar ný- stárlega hugmynd að þeytingi er góð hugmynd að kíkja inn á smoothie- web.com og athuga hvort ekki sé eitthvað þar sem þér líst vel á. Vefsíðan www.smoothieweb.com Þeytingur Jógúrt, bananar og karamella geta varla klikkað. Þeytingar af ýmsum gerðum Sjálfboðaliðar fara nú um Goðahverf- ið í miðbæ Reykjavíkur og víðar og leita uppi afleggjara og fleira blóm- legt sem borgarbúar vilja ánafna í samfélagsbeð á Óðinstorgi. Milli Óðins- og Týsgötu er nú komin útiaðstaða fyrir íbúa og gesti svæðis- ins en hópur fólks hefur tekið það í fóstur, undir merkjum verkefnis á vegum borgarinnar sem kennt er við Torg í biðstöðu. Markmið þess er að gæða vannýtt almenningsrými lífi og hvetja íbúa og gesti til umhugsunar og umræðu um framtíð þeirra. Markmiðið nú er að fylla blóma- beðið af fjölbreyttri flóru úr borgar- landslaginu og er öllum frjálst að koma með plöntur á torgið, þó síður ágengar plöntur með mikinn út- breiðsluvilja, og planta í beðið. Einnig ef einhver er aflögu-græn/n eða að grisja í garðinum má hafa samband gegnum netfangið odinstorg@gmail.com Endilega… …leggið til plöntur í beðið Samfélagsbeð Ræktað á Óðinstorgi. Flestir hafa sjálfsagt einhverntímann keypt sér flík semvirtist algjörlega fullkomin á því augnabliki en endaði síðan inni í skáp ónotuð. Þá er tilvalið að nýta sér vefsíður á borð við www.fataskipti.is. Þar geta not- endur bæði skipt og selt og keypt fatnað. Myriam Marti Guðmunds- dóttir, ljósmyndaranemi hjá Birt- ingi og áhugakona um tísku, heldur úti vefsíðunni en hugmyndin kvikn- aði í verslunarleiðangri. „Í verslunarleiðangri sá ég peysu sem var mjög lík peysu sem ég átti en í öðrum lit. Þá hugsaði ég með mér hvað það væri nú gaman að geta skipt á peysunum. Þannig þró- aðist hugmyndin yfir í það að búa til vettvang þar sem fólk gæti skipst á fötum. Ég fékk vin minn í lið með mér til að hanna síðuna og nú eru þar skráðir 700-800 not- endur,“ segir Myriam Marti. Fólk skráir sig inn á síðuna ann- aðhvort í gegnum Facebook eða á síðunni sjálfri með notendaorði og lykilorði. Notendur setja síðan inn Rafrænn fatamarkaður Hrist upp í fataskápnum Sætur Kjóll sem fékkst af síðunni.Kjóll Sniðugt er að skiptast á fötum. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 10-18, LAUGARDAGA: LOKAÐ MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM SJÓNMÆLINGAR– LINSUMÁTANIR TRAUS T OG GÓ Ð ÞJÓNU STA Í YFIR 1 5 ÁR T I L B O Ð GLERAUGU FRÁ 19.900,- DAGLINSUR FRÁ 2.500,- PAKKINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.